Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Guðmundur Sveirrisson, sérfræðingur á fjármálasviði, Hrönn Bergþórsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Þórey Ósk Sæmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, , Jónína Rósa Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Hulda Þórarinsdóttir, fulltrúi starfsfólks leikskóla, Sigríður Ólafsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskóla, Inga Nína Sigríður Jóhannsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna
Þróunarfulltrúi kynnti niðurstöður grunnskólahlutans.
Skólavogin 2016-17 lögð fram, samantekt á niðurstöðum fyrir leikskóla Hafnarfjarðar.
Lagt fram
Lögð fram fundargerð 257. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.
Lagt fram bréf dags. 25. september sl. þar sem óskað er eftir styrk vegna android útgáfu á málörvunarforritinu Orðagulli.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og felur sviðinu að finna mögulega útfærslu að stuðningi.
Sviðsstjóri kynnti tímasetta umbótaáætlun þar sem miðað er við að umbótaverkefni snúist um það sem hægt er að gera innan hvers skóla í samstarfi kennara og skólastjórnendur og áherslur í fjárhagsáætlun 2018 til úrbóta í grunnskólum út frá skýrslu starfshópsins frá 1. júní 2017.
Lagt fram og tekið til frekari umræðu síðar.
Tillaga um stofnun starfshóps um starfsaðstæður í leikskólum lögð fram. Erindisbréf lagt fram.
Fræðsluráð samþykkir stofnun starfshóps og fyrirliggjandi erindisbréf um starfsaðstæður í leikskólum. Tilnefnt í starfshópinn á næsta fundi fræðsluráðs.
Til umræðu.
Málið rætt og óskað eftir að fulltrúar Hjallastefnunnar verði boðið að mæta á næsta fund ráðsins. Fulltrúi Vinstri grænni lagði fram eftirfarandi bókun: “Ég geri alvarlegar athugasemdir við það að fyrir fundinn óskaði ég eftir því að gögn er varða þetta mál yrðu undir málinu. Þetta eru greinargerðir sem bæði Sambandið og Ráðuneytið hafa lagt fram þar sem það kemur skýrt fram að sjálfstætt reknir grunnskólar öðlist ekki sjálfkrafa kröfu á hendur sveitarfélagi um aukin framlög til þess að veita frístundaþjónustu. Ég óska eftir að leggja fram eftirfarandi gögn undir málsliðinn. Ég ítreka fyrri bókanir mínar um málið og tel ég það siðlaust af Hafnarfjarðarbæ að ráðstafa enn meiri pening í Barnaskóla Hjallastefnunnur. Það stangast á við jafnræðislög að sum börn fá meiri og betri þjónustu í skjóli fjárútláta frá Hafnarfjarðarbæ og fyrirgreiðslna nemanda til skólans. Hjallastefnan hefur rekið þetta mál áfram á andlýðræðislegum forsendum m.a. með því að ætlast til að Hafnarfjörður endurgreiðir þeim upphæð vegna nýrra laga og spýti þar að auki pening inn í kerfi sem snýst alltaf á endanum um hagnað og halla. Forsvarsmenn Hjallastefnunnar hafa rekið ódýra herferð í þessu máli m.a. með því að telja öðrum sveitarfélögum trú um það að hagstæður samningur liggi fyrir hjá Hafnarfjarðarbæ. Þar að auki vil ég benda forsvarsmönnum Hjallastefnunnar á það að ákveði þeir að hækka gjaldskrá sína fyrir frístundaheimili, þá er þeim velkomið að gera það en Hafnarfjörður verður ekki notaður sem einhverskonar skiptimynt í þeirri hótun.”