Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, María Pálmadóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Sólveig Kristjánsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Inga Líndal Finnbogadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Karla Þórisdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla og Þorgils Þorgilsson, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna.
Verkefnastjóri Ungmennahúss kynnir starfsemi hússins.
Fræðsluráð þakkar kynninguna.
Umræða um styttingu opnunartíma í frístundaheimilum grunnskóla.
Fræðsluráð samþykkir að visa tillögu um styttingu opnunartíma frístundaheimila grunnskóla til umsagnar hjá skólaráðum grunnskóla, foreldraráði Hafnarfjarðar og grunnskólastjórnendum. Jafnframt er óskað eftir upplýsingum um raunnýtingu síðasta klukkutíma dagsins. Lagt er til að frístundaheimili grunnskóla loki kl 16:30 í stað 17:00. Tillagan byggir á umræðu í þjóðfélaginu um styttingu vinnuvikunnar í íslensku atvinnulifi. Vitað er að viðvera ungra grunnskólabarna er oft á tíðum löng líkt og hjá leikskólabörnum en til stendur að stytta opnunartíma leikskóla líkt og hér er lagt til með opnunartíma frístundar.
Kynning á niðurstöðum viðhorfakönnunar foreldra um þjónustu frístundaheimila grunnskóla Hafnarfjarðar vorið 2019.
Kynntar niðurstöður Rannsókna & greiningar í febrúar 2019 varðandi vímuefnanotkun unglinga í Hafnarfirði.
Kynntar niðurstöður úr ritfangaútboði fyrir grunnskóla Hafnarfjarðar skólaárið 2019-2020.
Fræðsluráð lýsir yfir ánægju sinni með vinnu grunnskólanna og sviðsins við greiningu á þörfum á ritföngum á liðnu skólaári.
Niðurstöður könnunar starfsmanna leikskóla lagðar fram til kynningar.
Fyrri tillaga og álit fræðslu- og frístundasviðs um að frítt verði í sund fyrir yngri en 18 ára til umræðu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að farið verði að dæmi Kópavogsbæjar og börnum að 18 ára aldri verði gefin kostur á að nýta sundlaugar bæjarins sér að kostnaðarlausu. Samkvæmt nýbirtum niðurstöðum rannsóknarhóps í íþrótta- og heilsufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands sem hefur í yfir áratug fylgst með heilsu, svefni og andlegri líðan íslenskra ungmenna kemur m.a. fram að töluvert dregur hreyfingu hjá 15-17 ára unglingum. Að bjóða hafnfirskum ungmennum upp á frían aðgang að sundlaugum bæjarins gæti verið góð hvatning fyrir meiri hreyfingu og styður vel við markmið um heilsubæinn Hafnarfjörð.
Adda María Jóhannsdóttir Friðþjófur Helgi Karlsson
Fræðsluráð samþykkir að veita börnum og ungmennum allt að 18 ára aldri frítt í allar sundlaugar Hafnarfjarðar. Samþykkt þessi tekur gildi frá 1 janúar 2020.
Hafnarfjörður er heilsueflandi bæjarfélag og er sundiðkun liður í þeirri stefnu. Jafnframt er Hafnarfjörður barnvænt samfélag sem setur fjölskyldur í forgrunn og er þetta liður í því að þjónusta barnafjölskyldur enn frekar og stuðla þannig að hollri hreyfingu.
Tillögunni er vísað til fjárhagsáætlunarvinnu fyrir fjárhagsárið 2020.
Lagt fram til kynningar.
Fræðsluráð felur fræðslustjóra að skoða hvernig staðan á óskum um launað starfsnám er í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar. Mikilvægt er að fylgja framkvæmdinni vel eftir og styðja við skólana í að taka við nemum. Fjölga þarf í kennarastéttinni og nauðsynlegt að sveitarfélög greiði veg kennaranema til menntunar.