Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Leifur S. Garðarsson, áheyrnarfulltrúi skólastjórnenda grunnskóla, Kristín Guðnadóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Inga Líndal Finnbogadóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Karla Þórisdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla og Kristín Erla Pétursdóttir áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Frá fundi bæjarstjórnar 26. júní sl.
Kosið í ráð og nefndir til eins árs:
Fræðsluráð: Kristín María Thoroddsen, Burknaberg 4, formaður Margrét Vala Marteinsdóttir, Hvammabraut 10, varaformaður Bergur Þorri Benjamínsson, Eskivellir 7 Sigrún Sverrisdóttir, Hamrabyggð 9 Bjarney Grendal Jóhannesdóttir, Miðvangi 107 Auðbjörg Ólafsdóttir, Hverfisgötu 52b, áheyrnarfulltrúi Birgir Örn Guðjónsson, Daggarvöllum 3, áheyrnarfulltrúi
Varamenn: Kristjana Ósk Jónsdóttir, Heiðvangi 58 Jóhanna Erla Guðjónsdóttir, Miðvangi 10 Guðvarður Ólafsson, Lindarhvammi 10 Steinn Jóhannsson, Lindarbergi 84 Hólmfríður Þórisdóttir, Eskivöllum 5 Klara G. Guðmundsdóttir, Þrastarási 73, varaáheyrnarfulltrúi Vaka Ágústsdóttir, Stuðlabergi 80, varaáheyrnarfulltrúi
Lagt fram.
Niðurstaða útboðs vegna fæðismála í sjö grunnskólum og þrem leikskólum bæjarins lögð fram og þjónustusamningur við Skólamat lagður fram til kynningar.
Kynnt.
Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn fulltrúa Samfylkingarinnar um spjaldtölvuvæðingu í skólum bæjarsins.
1)Hver er staðan á innleiðingu spjaldtölva í leik- og grunnskólum bæjarins? 2) Hvaða skólar/bekkir eru með spjaldtölvur og hversu mikið kostaði innleiðingin í hverjum skóla fyrir sig? 3) Hvaða ákvörðun hefur verið tekin um endurnýjun á spjaldtölvum í leik- og grunnskólum bæjarins til framtíðar? 4) Hvað er gert ráð fyrir að kostnaður við endurnýjun á spjaldtölvum verði mikill á ársgrundvelli á næstu árum? 5) Hefur árangur innleiðingarinnar verið metinn og þá með hvaða hætti, eða stendur það til?
Minnisblað lagt fram sem svar.
Fulltrúar allra flokka í fræðsluráði þakka svörin. Við leggjum jafnframt til að innleidd verði aðferðafræði sem getur metið ávinning af notkun spjaldtölva í skólastarfi, jafnt fyrir nemendur sem kennara þegar meiri reynsla verður komin af innleiðingunni.
Lagt fram minnisblað Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 1. júní 2019 um forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda ársins 2020 og fjárhagsáætlana til þriggja ára.
Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 24. júní sl. vegna nýs starfsheitis leiðsagnarkennara.
Lagt fram til kynningar.
Skipað í stýrihóp menntastefnu.
Eftirtaldir eru skipaðir í starfshópinn: Kristín Thoroddsen, Sjálfstæðisflokki, Margrét Vala Marteinsdóttir, Framsókn og óháðir, Sigrún Sverrisdóttir, Samfylkingunni, Sigurður Þ. Ragnarsson, Miðflokki, Vaka Ágústsdóttir, Viðreisn og Arnbjörn Ólafsson, Bæjarlista.
Lögð fram beiðni heilsuleikskólans Hamravalla dags 12. ágúst sl. um breytingu á skipulagsdegi ásamt staðfestingu foreldraráðs leikskólans.
Fræðsluráð samþykkir breytingartillöguna.
Lagt er til að styrkir til íþróttastarfs hækki frá hausti 2019.
Fræðsluráð samþykkir að hækka frístundastyrk hafnfirskra barna, 6-18 ára, úr 4000,- í 4500,- . Samþykktin tekur gildi 1 september. Með hækkuninni er Hafnarfjarðarbær að styðja við íþrótta og tómstundaiðkun hafnfirskra barna enn frekar.