Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í Krosseyri, Linnetsstíg 3
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Leifur Garðarsson, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Kristín Guðnadóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ólöf Karla Þórisdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Ilmur Dögg Níelsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Sjálfstæði Engidalsskóla.
Fræðsluráð vísar samþykkt um sjálfstæði Engidalsskóla til frekara samþykkis í bæjarstjórn.
Lagt fram bréf skólastjóra Öldutúnsskóla varðandi húsnæðismál frístundarheimilis.
Fræðsluráð vísar erindi frá skólastjóra Öldutúnsskóla um viðbótaraðstöðu Öldusels, frístundaheimilis, til umhverfis- og skipulagssviðs með ósk um samstarf við mennta- og lýðheilsusviðs að lausn mála.
Kynning á UDL
Fræðsluráð þakkar Dögg Gunnarsdóttur, skólastjóra Lækjarskóla og Ingu Magnúsdóttur, skólastjóra Skarðshlíðarskóla fyrir kynninguna.
Drög að erindisbréfi lögð fram. Undirskriftarlisti starfsmanna í leikskólum lagður fram.
Meirihluti fræðsluráðs þakkar góðar og gagnlegar umræður varðandi sumaropnun leikskóla.
Fulltrúi Samfylkingarinnar lagði fram eftirfarandi bókun; Samfylkingin í Hafnarfirði bókar að óskað er eftir umsögn þróunarfulltrúa leikskóla um möguleg áhrif breytinga sumaropnunar, þ.e. á mögulega fækkun leikskólakennara, á faglegt starf leikskólanna, kostnaðarauka við opnunina, hvenær viðhaldi verður sinnt ef skólarnir eru alltaf opnir, mögulega nýtingu sumaropnunar og hvort sumaropnun ætti að gilda um alla leikskóla bæjarins? Einnig vill Samfylkingin lýsa yfir vonbrigðum með að ekki skyldi haft samráð við starfsfólk leikskólanna um sumaropnunina. Faglegt samráð er afar mikilvægt þegar er verið að ræða starf leikskólanna. Steinn Jóhannsson, sign
Fulltrúi Miðflokksins lagði fram eftirfarandi bókun; Starfsfólk leikskóla í Hafnarfirði hefur skilað hér inn undirskriftalistum og komið viðhorfum sínum á framfæri við fræðsluráð varðandi sumaropnanir leikskólanna.390 starfsmenn leikskóla bæjarins hafa mótmælt þessari ákvörðun. Mikilvægt er að breytingar sem þessar séu gerðar í sátt við starfsfólk leikskólanna og er meirihluti fræðsluráðs hvattur til að endurskoða ákvörðun sína um sumaropnanir leikskóla. Hólmfríður Þórisdóttir, sign
Fulltrúi leikskólastjóra lagði fram eftirfarandi bókun; Leikskólastjórar Hafnarfjarðarbæjar vilja koma á framfæri mótmælum vegna fyrirhugaðrar sumaropnunar leikskólanna 2021. Áhyggjur okkar snúa að hag leikskólabarna. Við sem erum sérfræðingar í kennslu á leikskólastigi sjáum illa hvernig þessi breyting getur verið skref í átt að barnvænna samfélagi. Sem stjórnendur skólastofnana höfum við einnig áhyggjur af upphafi og enda skólaársins, útskrift, innritun og aðlögun nýnema sem mun seinka við þessa aðgerð. Skortur á samtali, samráðsleysi og upplýsingum til okkar fyrir ákvörðunina, hefur einnig virkað neikvætt. Benda má á að í breytingastjórnun þykja ákvarðanir sem teknar eru af yfirvöldum, og eiga að hríslast niður, vekja tortryggni og oftar en ekki virka þær illa. Í okkar huga er hlutverk leikskólans skýrt en skilin annarsvegar á milli kennslu/umönnunar sem er hlutverk okkar í daglegu leikskólastarfi og hinsvegar vistunar/gæslu, orðin óskýrari með þessari ákvörðun Fræðsluráðs. Leitt er til þess að hugsa að Fræðsluráð, sem þó hefur staðið fyrir mörgum góðum breytingum í leikskólum bæjarins á kjörtímabilinu, geri ekki meiri greinarmun á kennslu og gæslu. Í okkar huga þurfa mörkin milli kennslu og þjónustu að vera skýr þegar rætt er um sumarlokun og í því sambandi bendum við á að í grunnskólanum fara allir kennarar í orlof á sama tíma og við taka leikjanámskeið. Yfirlýsing fræðsluráðs um að starfsemi leikskólanna verði óskert í sumaropnun stenst því enga skoðun. Á sama tíma og dregið er úr framkvæmdum við að bæta starfsaðstæður í leikskólunum vegna samdráttar í rekstri bæjarfélagsins, er farið í dýra breytingu á skólahaldi með því að halda leikskólunum opnum allt árið. Sumaropnun þýðir flóknara starfsmannahald og dýrari rekstur leikskólanna. Þetta kemur sérkennilega fyrir sjónir okkar sem berum ábyrgð á starfssemi leikskólanna. Við viljum vekja athygli á að 79% foreldra vill val um sumarleyfistíma, en 56% þeirra sem svara könnuninni vilja fara í frí í júlí, 21% velur ágúst og 23% velja júní. Í sömu könnun kom einnig fram að 94% foreldra gátu verið með barninu sínu í sumarorlofi að hluta eða að öllu leyti. Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir, sign
Fundargerð ÍTH frá 19. febrúar sl. lögð fram.