Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný D. Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Ingibjörg Magnúsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Elín Soffía Harðardóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Oddfríður Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ásrún Sigrid Steindórsdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Yfirferð á skólastarfi í ljósi hættustigs haustið 2020 og viðbrögð við neyðarstigi 5. október 2020.
Sviðsstjóri fór yfir viðbrögð skólayfirvalda í Hafnarfirði í ljósi hættustigs almannavarna haustið 2020 og viðbrögð við neyðarstigi 5. október 2020. Fræðsluráð þakkar ítarlega kynningu og hvetur skólasamfélagið áfram í sínum mikilvægu störfum samhliða því að sýna aðgát í samskiptum og sinna því mikilvæga hlutverki sem skólarnir hafa á tímum sem þessum.
Lagt fram til kynningar drög vegna endurskoðunar á samþykkt um stjórn Hafnarfjarðarkaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar
Lagt fram.
Lagt fram bréf skólastjóra og formanns foreldrafélags Áslandsskóla varðandi íþrótta- og sundaðstöðu, hreystibraut og endurskipulagningu skólalóðar.
Fulltrúi foreldraráðs grunnskóla lagði fram eftirfarandi bókun;
Fulltrúi Foreldraráðs Hafnarfjarðar tekur undir ábendingar og fyrirspurn skólastjóra og formanns foreldrafélags Áslandsskóla um að bæta þurfi skólalóð Áslandsskóla og ítrekar mikilvægi góðra skólalóða. Skólalóðir sem eru með leiktækjum, sparkvöllum og fjölbreyttum tækifærum til leikja og afþreyingar stuðla að hollri hreyfingu og samveru sem leiðir til betri skólaanda og námsárangurs. Skólalóðir eru einnig gjarna miðsvæðis í hverfunum og nýtast því til leikja fyrir börnin eftir að skóla lýkur. Vel útfærð og skipulögð skólalóð getur einnig nýst til að efla fjölbreytt skólastarf utandyra. Því er lagt til að gerð verði úttekt á skólalóðum grunnskóla Hafnarfjarðar, gæðum þeirra, öryggismálum og hvernig megi bæta þær fyrir börn í Hafnarfirði.
Fulltrúi Samfylkingar tekur undir bókun fulltrúa foreldraráðs og telur brýnt að gera heildstæða úttekt á skólalóðum í Hafnarfirði og bregðast við og gera endurbætur við fyrsta tækifæri. Öflug og fjölbreytt leiksvæði styðja gott skólastarf innan og utan veggja skólanna.
Ósk um tímabundna aukningu á opnun Hamarsins.
Fræðsluráð samþykkir að auka við opnunartíma Hamarsins fram að áramótum og styður þannig við nám ungmenna og félagslíf þeirra. Jafnframt þakkar ráðið húsfélagi Hamarsins fyrir áskorunina og frumkvæði þeirra með minnisblaði þeirra. Opnunartími Hamarsins verður því frá kl. 9:00 til 23:00 alla virka daga til jóla. Kostnaður vegna aukins opnunartíma rúmast innan fjárhagsáætlunar 2020