Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Fanney D. Halldórsdóttir, sviðsstjóri, Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Ingibjörg Magnúsdóttir, áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla, Elín Soffía Harðardóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Oddfríður Jónsdóttir, áheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Ásrún Sigrid Steindórsdóttir, áheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.
Lagt fram.
Lögð fram beiðni um umsögn um breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2015, landnotkun Selhraun suður.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra mennta-og lýðheilsusvið að taka saman umsögn um málið og senda til umhverfis- og skipulagssviðs.
Lögð fram umsókn um bráðabirgðastarfsleyfi til daggæslu í heimahúsi fyrir Signý Lind Þorbergsdóttur
Samþykkt.
Lögð fram fyrstu drög að grunnskóladagatali 2021-2022.
Fulltrúi skólastjóra gunnskóla lagði fram eftirfarandi bókun; Sérstakir starfsdagar kennara á starfstíma nemenda eru fimm og skulu ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara og með hliðsjón af kjarasamningum, líkt og tekið er fram á skóladagatali. Fræðsluráð Hafnarfjarðar hefur ákveðið að hluti þessara daga skuli vera sameiginlegur í leik- og grunnskólum. Á síðusta skólaári voru sameiginlegir dagar þrír. Fundur skólastjóra grunnskólanna í Hafnarfirði 11. janúar 2021 óskar eftir að farið verði eftir því að dagar þessir skuli ákveðnir af skólastjóra í samráði við kennara og með hliðsjón af kjarasamningum. Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri Skarðshlíðarskóla
Fulltrúi foreldraráðs grunnskólabarna lagði fram eftirfarandi bókun; Foreldraráð grunnskólabarna telur mikilvægt að kannað verði meðal foreldra afstaða þeirra til mismunandi útfærslna á vetrarfríum, t.d. vikufrí, óbreytt og aðra möguleika. Með öðrum orðum; að vetrafrí séu í stöðugri skoðun og öll sjónarmið liggi fyrir varðandi hvaða möguleikar nýtast fjölskyldum best. Um langt skeið hafa vetrarfrí verið bæði vor- og haustönn í 2-3 daga, en það er hægt að fara margar aðrir leiðir hvað það varðar og kanna afstöðu foreldra til þess. Fh. foreldraráðs grunnskólabarna Kristín Blöndal Ragnarsdóttir
Lögð fram fundargerð 325. fundar íþrótta- og tómstundanefndar.