Hafnarstjórn

24. janúar 2012 kl. 12:15

á hafnarskrifstofu

Fundur 1403

Mætt til fundar

  • Eyjólfur Sæmundsson formaður
  • Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Haraldur Þór Ólason aðalmaður
  • Helga R Stefánsdóttir aðalmaður

Ritari

  • Ína Illugadóttir skrifstofustjóri
  1. Almenn erindi

    • 1112193 – Óseyrarbraut 17, deiliskipulagsbreyting

      Skipulags og byggingaráð umsagnar Hafnarstjórnar um tillögu að breytingu deiliskipulags Óseyrarbrautar 17, samanber fundargerð afgreiðslufundar 4. janúar 2012.

      Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leiti tillögu um breytingu deiliskipulags Óseyrarbrautar 17.

    • 1009245 – Óseyrarbraut 26b

      Lögð fram ósk Atlantseigna um að skila lóðinni nr. 26b við Óseyrarbraut, ásamt skilyrti veðbandslausn Landsbankans hf.

      Hafnarstjórn telur sér ekki fært að fallast á skilyrta veðbandslausn Landsbankans hf.

    • 1112037 – Skipaniðurrif, fyrirspurn

      Tekin fyrir fyrirspurn Íslandsstofu um möguleika á að koma upp aðstöðu fyrir skipaniðurrif í Hafnarfjarðarhöfn.

      Hafnarstjórn getur ekki fallist á framlagða fyrirspurn og hafnar því erindinu.

    • 1010890 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2011

      Lagt fram yfirlit yfir viðskiptamenn pr. 31. 12. 2011.$line$Ennfremur lagt fram bráðabirgða-yfirlit yfir skipakomur og vöruumferð ársins 2011

      Hafnarstjóri lagði fram skýrslu um losun og lestun í Hafnarfjarðarhöfn og Straumsvíkurhöfn ásamt skrá um skipakomur. Jafnframt var farið yfir skuldalista viðskiptavina og tölur um veltu.

    • 1109041 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2012

      Farið yfir skuldastöðu hafnarinnar í upphafi árs og áætlaða greiðslubyrði ársins.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1112201 – Óseyrarbraut 29, lóða- og byggingamál

      Farið yfir stöðu mála á lóðinni.

      Lagt fram til kynningar

    • 1112202 – Óseyrarbraut 31, lóða- og byggingamál

      Farið yfir stöðu mála á lóðinni.

      Lagt fram til kynningar

    • 1201465 – Bláfáninn 2012

      Lagt fram erindi Landverndar vegna Bláfána fyrir skemmtibátahafnir, dagsett 19. janúar 2012, sendandi Sigrún Pálsdóttir.

      Hafnarstjórn samþykkir að láta taka saman greinagerð um hvaða aðgerða sé þörf svo að Hafnarfjarðarhöfn uppfylli skilyrði til Bláfána.

Ábendingagátt