Hafnarstjórn

22. janúar 2013 kl. 12:00

á hafnarskrifstofu

Fundur 1421

Mætt til fundar

  • Eyjólfur Sæmundsson formaður
  • Guðfinna Guðmundsdóttir aðalmaður
  • Sigurbergur Árnason aðalmaður
  • Haraldur Þór Ólason aðalmaður
  • Helga R Stefánsdóttir aðalmaður
  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir bæjarstjóri

Ritari

  • Ína Illugadóttir skrifstofustjóri
  1. Almenn erindi

    • 1301378 – Óseyrarbraut, stöðuleyfi

      Tekin fyrir að nýju ósk Vélsmiðju Orms og Víglundar, frá 23. nóvember 2012, um heimild til að reisa bráðabirgða starfsmannaaðstöðu við flotkvíar fyrirtækisins.

      Hafnarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin no 31 við Óseyrarbraut verði skipt í samræmi við fyrirliggjandi uppdrátt í no 31 og 31b og leggur til að Vélsmiðja Orms og Víglundar fái úthutað lóð no 31b.

    • 1003131 – Frystigeymsla

      Rætt um möguleika á að reisa frystigeymslu, í framhaldi af úttekt EFLU.

    • 1209314 – Markaðssetning

      Farið yfir markaðssetningu hafnarinnar og ýmsar forsendur tengdar henni.

      Samþykkt að taka þennan lið til umræðu á ný á næsta fundi.

    • 0701138 – Framtíðarhafnarsvæði.

      Farið yfir stöðu mála varðandi umhverfi hugsanlegs framtíðarhafnarsvæðis Hafnarfjarðarhafnar

      Samþykkt að taka þennan lið til umræðu á ný á næsta fundi.

    • 1109041 – Fjárhagsáætlun, uppgjör og ársreikningur 2012

      Lagt fram yfirlit yfir vörumagn og skipaumferð um Hafnarfjarðarhöfn árið 2012

Ábendingagátt