Hafnarstjórn

25. september 2019 kl. 10:00

á hafnarskrifstofu

Fundur 1558

Mætt til fundar

  • Kristín María Thoroddsen formaður
  • Magnús Ægir Magnússon aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður

Ritari

  • Lúðvík Geirsson hafnarstjóri
  1. Almenn erindi

    • 1909113 – Fjárhags- og rekstraráætlun 2020

      Lögð fram til fyrri umræðu drög að fjárhags- og rekstraráætlun Hafnarfjarðarhafnar fyrir árið 2020 ásamt greinargerð hafnarstjóra og drögum að fjárfestingaáætlun fyrir 2020 – 2023.

      Hafnarstjóri skýrði helstu þætti áætlunarinnar. Hafnarstjórn samþykkir að vísa áætluninni með áorðnum breytingum til síðari umræðu á næsta fundi sínum.

    • 1909474 – Gjaldskrá Hafnarfjarðarhafnar 2020

      Lögð fram tillaga að endurskoðaðri gjaldskrá fyrir Hafnarfjarðarhöfn.

      Hafnarstjórn samþykkir að vísa tillögunni til síðari umræðu á næsta fundi hafnarstjórnar.

    • 1909446 – PortMaster rammasamningur

      Hafnarstjóri kynnti nýgerðan rammasamning Hafnarsambands Íslands við Klappir Grænar Lausnir hf.um þróun og afnot af netkerfinu PortMaster fyrir utanumhald og skráningu á úrgangi frá skipum sem losaður er á hafnarsvæðum. Jafnframt lögð fram drög að þjónustusamningi Hafnarfjarðarhafnar við Klappir Grænar Lausnir hf. um rafræna skráningu á allri úrgangslosun á hafnarsvæði Hafnarfjarðarhafnar.

      Hafnarstjórn samþykkir framlagðan þjónustusamning og felur hafnarstjóra að ganga frá undirritun hans.

Ábendingagátt