Hafnarstjórn

11. mars 2020 kl. 10:00

á hafnarskrifstofu

Fundur 1569

Mætt til fundar

  • Kristín María Thoroddsen formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson aðalmaður
  • Magnús Ægir Magnússon aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður
  • Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir aðalmaður

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri mætti til fundarins.

Ritari

  • Lúðvík Geirsson hafnarstjóri

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri mætti til fundarins.

  1. Almenn erindi

    • 1609670 – Lóðir í eigu hafnarinnar og lóðarleigusamningar

      Með vísan í nýsamþykkt rammaskipulag Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis er lagt til að stofnað verði “Land Hafnarfjarðarhafnar” skv. meðfylgjandi tillögu að uppdrætti. Lóða-/landamörk meðfram Hvaleyrarbraut og Strandgötu eru óbreytt frá núgildandi lóðamörkum en lagt er til að landfyllingarsvæði undir Vesturhamri og svæði við núverandi hringtorg við innkeyrslu að hafnarsvæði þar sem skilgreind er lóð skv. rammaskipulaginu verði sett undir land Hafnarfjarðarhafnar.

      Lagt fram til kynningar og óskað eftir umsögn frá umhverfis- og skipulagssviði.

    Kynningar

    • 1701604 – Háibakki - undirbúningur og framkvæmdir

      Hafnarstjóri fór yfir stöðu framkvæmda við Háabakka og undirbúning fyrir smíði trébryggju og annan frágang á svæðinu.

    • 2003050 – COVID-19 viðbragðsaðgerðir á hafnarsvæðum

      Kynntar viðbragðsáætlanir fyrir hafnarsvæði vegna COVID-19.

    • 1911169 – Útstöð FMS í Hafnarfirði

      Farið yfir stöðu fiskmarkaðsþjónustu við smábáta eftir lokun á starfsstöð FMS í Hafnarfirði.

    • 1912342 – Súrálsbakki Straumsvík- tjón. v. óveðurs

      Greint frá frekari úttekt á skemmdum á norðurhlið súrálsbakkans í Straumsvík og tillögum ráðgjafa hafnarinnar og Náttúruhamfaratrygginga Íslands um viðgerðir.

Ábendingagátt