Hafnarstjórn

27. október 2021 kl. 10:00

á hafnarskrifstofu

Fundur 1608

Mætt til fundar

  • Kristín María Thoroddsen formaður
  • Magnús Ægir Magnússon aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður
  • Sigurður Þórður Ragnarsson aðalmaður
  • Garðar Smári Gunnarsson varamaður

Ritari

  • Lúðvík Geirsson hafnarstjóri
  1. Almenn erindi

    • 1806316 – Hafnarstjórn 2018 - 2022

      Lögð fram samþykkt frá fundi bæjarstjórnar þann 13. október sl. þar sem breyting var gerð á aðalmanni Framsóknar í hafnarstjórn. Í stað Ágústar Bjarna Garðarssonar kemur Guðmundur Fylkisson og nýr varamaður í hafnarstjórn verður Garðar Smári Gunnarsson.
      Kristín María Thoroddsen formaður hafnarstjórnar gerði tillögu um Guðmund Fylkisson sem varaformann.

      Hafnarstjórn samþykkti tillöguna.

    • 2108219 – Fjárhags- og rekstraráætlun 2022

      Farið yfir fjárhags- og rekstraráætlun hafninnar fyrir árið 2022 og langtímaáætlun fyrir 2023-2025.

      Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi fjárhags- og rekstraráætlun fyrir Hafnarfjarðarhöfn og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana með sama hætti.

    • 2109570 – Gjaldskrá Hafnarfjarðarhafnar 2022

      Lögð fram tillaga að endurskoðaðri gjaldskrá fyrir Hafnarfjarðarhöfn.

      Hafnarstjórn samþykkir framlagða tillögu að nýrri gjaldskrá með áorðnum breytingum. Ný gjaldskrá taki gildi frá 1. janúar 2022.

Ábendingagátt