Íþróttafulltrúi lagði fram til upplýsingar drög að tímaúthlutun í íþróttamannvirki til skóla vegna skólaársins 2014 – 2015. Um er að ræða um 40 þúsund tíma í úthlutun.
Íþrótta- og tómstundanefnd
í Íþróttahúsinu við Strandgötu
Mætt til fundar
- Ragnheiður Ólafsdóttir aðalmaður
- Daníel Haukur Arnarsson aðalmaður
- Lára Janusdóttir aðalmaður
- Hrafnkell Marinósson áheyrnarfulltrúi
- Ingvar Sigurður Jónsson starfsmaður
- Geir Bjarnason starfsmaður
- Daníel Pétursson fundarritari
Ritari
- Daníel Pétursson
-
Almenn erindi
-
1203248 – Tímaúthlutun í íþróttamannvirkinum til skóla 2014 - 2015
Lagt fram til kynningar.
-
1303026 – Kvartmíluklúbburinn, styrkumsókn
Á fundi bæjarráðs þann 27. mars sl. var styrkbeiðni Kvarmíluklúbbsins vegna King of Street 2014,. Bikarmót til umfjöllunar. Bæjarráð vísaði beiðninni til íþrótta- og tómstundanefndar til afgreiðslu.
Íþrótta- og tómstundanefnd samþykkir að styrkja Bikarmót í kvartmílu um 75.000- Kr.
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
Lögð fram drög að samningi milli FH og Hafnarfjarðarbæjar um flýtiframkvæmdir vegna uppbyggingu við Íþrótamiðstöð FH í Kaplakrika.$line$Framkvæmdin tekur til jarðvinnu, lóðafrágang, lokafrágang frjálsíþróttahússs að utan ásamts smærri verkum.
Lagt fram til kynningar.
-
1201584 – 17. júní, framkvæmdanefnd
Lögð fram til kynningar drög að dagskrá vegna 17. júní hátíðarhalda 2014, sem haldin verður í miðbæ Hafnarfjarðar.
Lagt fram til kynningar.
-
0905228 – Vettvangsferð í Íþróttamiðstöð FH Kaplakrika
Ákveðið að nefndin fari í vettvangsferð og skoða framkvæmdir við frjálsíþróttahús í Kaplakrika.
Fundargerðir
-
0702036 – Íþróttahús Kaplakrika, framkvæmdir
115. fundur vinnuhóps/byggingarnefndar um uppbyggingu FH svæðis í Kaplakrika var haldinn mánudaginn 31. mars 2014, kl. 08.07 á skrifstofu Fimleikafélagsins í Kaplakrika.
Lagt fram til kynningar.
-