Farið yfir fundargerðir framkvæmdanefndar um uppbyggingu knatthúss á Ásvöllum.
Íþrótta- og tómstundanefnd
á fjarfundi
Mætt til fundar
- Brynjar Þór Gestsson formaður
- Tinna Hallbergsdóttir varaformaður
- Sigríður Ólafsdóttir aðalmaður
Elísabet Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍBH og Ronja Halldórsdóttir fulltrúi ungmennaráðs sátu fundinn.
Ritari
- Geir Bjarnason
Elísabet Ólafsdóttir framkvæmdastjóri ÍBH og Ronja Halldórsdóttir fulltrúi ungmennaráðs sátu fundinn.
-
Fundargerðir
-
1510061 – Ásvellir, uppbygging
-
1509776 – Ungmennaráð, fundargerð
Farið yfir nýjustu fundargerð ungmennaráðs Hafnarfjarðar.
-
2008513 – ÍBH, fundargerðir 2020-2021
Fundargerð ÍBH lögð fram.
-
1809417 – Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins (SHB), kjörtímabil 2018-2022, samstarfssamningur
Farið yfir fundargerð frá Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins.
Almenn erindi
-
1808351 – Suðurbæjarlaug, framkvæmdir
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar dags. 27.1.2021 voru framkvæmdir við Suðurbæjarlaug til umræðu og óskað eftir umsögn og tillögum frá íþrótta- og tómstundanefnd.
Íþrótta- og tómstundanefnd ákveður að fara í skoðunarferð í Suðurbæjarlaug til þess að skoða aðstæður á næsta fundi nefndarinnar 2.mars.
-
2012125 – ÍBH, íþróttafélög, stuðningur
Farið yfir fyrstu niðurstöður spurningakönnunar um tekjumissi íþróttahreyfingarinnar í Covid 2020.
-
2102042 – Brettafélag Hafnarfjarðar, vetrarkort í Bláfjöllum og Skálafelli
Stjórn Brettafélags Hafnarfjarðar óskar eftir því að erindi þess efnis að Hafnarfjarðarbær greiði vetrarkort fyrir iðkendur félagsins í snjóbrettadeild verði lagt fyrir Íþrótta og tómstundaráð Hafnarfjarðar.
Sem stendur er Hafnarfjörður eina sveitafélagið á höfuðborgarsvæðinu sem greiðir ekki þessi kort sem eru forsenda fyrir því að komast í æfinaaðstöðuna í Bláfjöllum og Skálafelli.Íþrótta- og tómstundanefnd tekur vel í beiðnina og vísar henni til vinnu við fjárhagsáætlun 2022.
Kynningar
-
2008789 – Íþrótta- og viðurkenningarhátíð 2020
Nýtt kynningarefni með íþróttafólki Hafnarfjarðar til kynningar.
-