Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Tinna Dahl Christiansen rekstrarstjóri ÍTH sat fundinn.
Kristrún Bára Bragadóttir sat fundinn fyrir Ungmennaráð Hafnarfjarðar.
Fundurinn fór fram rafrænt
Lögð fram til kynningar bókun bæjarstjórnar frá 23. júní sl. varðandi kosningu í ráð og nefndir til eins árs. Á fundi bæjarstjórnar þ. 23.júní sl. var eftirfarandi tekið fyrir: 1806149 – Ráð og nefndir 2018-2022, kosningar
Kosning í ráð og nefndir til eins árs:
Íþrótta- og tómstundanefnd: Formaður Brynjar Þór Gestsson Strandgötu 27 Varaformaður Tinna Hallbergsdóttir Blikaási 25 Aðalfulltrúi Sigríður Ólafsdóttir Háahvammi 11 Varafulltrúi Einar Freyr Bergsson Erluási 3 Varafulltrúi Einar Gauti Jóhannsson Skipalóni 25 Varafulltrúi Vilborg Harðardóttir Stuðlabergi 38
Til fundarins mættu Stella Kristinsdóttir fagstjóri frístundastarfsins og Vetur Nói sem er tímabundin ráðinn í að vinna að upplýsingamálum hjá Hafnarfjarðarbæ.
Unnið verður að því að safna saman upplýsingum um starfsemi íþróttafélaga og frístundaúrræða í Hafnarfirði og upplýsingar um starfið gert aðgengilegt bæjarbúum.
Nefndin fagnar tilkomu þessa verkefnis.
Samtök félagsmiðstöðva, Samfés, hefur óskað eftir því við bæjarráð að nýta gamla Lækjarskóla undir starfsemi sína og aðra starfsemi fyrir börn og unglinga.
Lagt fram til kynningar.
Íþrótta- og tómstundanefnd telur að koma Samfés Plús verkefnisins væri ungmennum bæjarins til hagsbóta og hvetur sveitarfélagið til að finna verkefninu húsnæði í þessu húsnæði eða öðru húsnæði.
Stjórn Brettafélags Hafnarfjarðar óskar eftir því að erindi þess efnis að Hafnarfjarðarbær greiði vetrarkort fyrir iðkendur félagsins í snjóbrettadeild verði lagt fyrir Íþrótta og tómstundaráð Hafnarfjarðar. Sem stendur er Hafnarfjörður eina sveitafélagið á höfuðborgarsvæðinu sem greiðir ekki þessi kort sem eru forsenda fyrir því að komast í æfinaaðstöðuna í Bláfjöllum og Skálafelli.
Nefndin tekur jákvætt í erindið og vísar því til vinnu við fjárhagsáætlunargerð næsta árs.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur líkt og síðastliðin ár hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu. Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive.
Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.
Nefndin samþykkir að taka þátt í verkefninu, kynna skal verkefnið á miðlum bæjarins og ýta skal á stofnanir bæjarins um þátttöku. Nefndin hvetur stýrihóp um heilsubæjarverkefnið til að taka einnig þátt.
Félagsmálaráðuneytið mun áfram á haustönn 2021 leggja tekjulágum foreldrum til íþrótta- og tómstundastyrk vegna þátttöku barna í tómstundum. Unnið er að því að kerfið verði rafrænt og það verði hliðstætt frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar á rafrænu formi.
Lagt fram erindi frá nýstofnuðu íþróttafélagi um samstarf og uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Nefndin vísar erindinu til þings ÍBH þar sem unnið er að forgangsröðun íþróttamannvirkja.
Lagt fram erindi frá Íþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Styrkur Hafnarfjarðarbæjar er eingöngu til þess félags í efstu deild á meistaraflokkksstigi sem verður Ísland,- deildar-, eða bikarmeistarar.
Lögð fram fundargerð 393 fundar stjórnar Bljáfjallasvæðisins auk rekstraryfirlits 2020.