Menningar- og ferðamálanefnd

17. janúar 2012 kl. 15:00

í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6

Fundur 175

Mætt til fundar

  • Þorsteinn Kristinsson aðalmaður
  • Jóhanna Marín Jónsdóttir aðalmaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður

Ritari

  • Marín Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1108149 – Jólaþorpið 2011

      Menningar- og ferðamálafulltrúi greindi frá því hvernig til tókst með jólaþorpið 2011 en almenn ánægja var með Þorpið og yfirleitt góð aðsókn.

    • 11021243 – Kvikmyndasafn Íslands og Bæjarbíó.

      Samkvæmt samningi Hafnarfjarðabæjar og Kvikmyndasafns Íslands, dags. 1. desember 2011, þurfa aðilar samnings að gera með sér sérstakt samkomulag um notkun á Bæjarbíói og skal það vera tilbúið fyrir 17. febrúar nk. Samningsaðilar skulu skipa fulltrúa til að vinna að samkomulaginu og til að annast framkvæmd þess.

      Nefndin tilnefnir menningar og ferðamálafulltrúa sem samningsaðila.

    • 1201201 – Reykjavíkurvegur 45, Upplýsingaþjónusta fyrir ferðamenn

      Lagt fram erindi frá Góða hirðinum um styrk til reksturs upplýsingamiðstöðvar ferðamanna að Reykjavíkurvergi 45.

      Upplýsingarmiðstöð ferðamanna er hluti af annarrri starfsemi stofnana bæjarins, s.s. Þjónustuvers. Nefndin getur ekki orðið við erindinu.

    • 1201307 – Styrkir menningar- og ferðamálanefndar 2012.

      Lögð fram drög að auglýsingu. Rætt um dagsetningar og fyrirkomulag styrkveitinga ársins 2012.

Ábendingagátt