Menningar- og ferðamálanefnd

4. október 2013 kl. 12:00

Sjá fundargerðarbók

Fundur 209

Mætt til fundar

  • Dagbjört Gunnarsdóttir formaður
  • Hlíf Ingibjörnsdóttir aðalmaður
  • Unnur Lára Bryde aðalmaður

Ritari

  • Marín G. Hrafnsdóttir menningar- og ferðamálafulltrúi
  1. Almenn erindi

    • 1310046 – Hótel Hafnarfjörður. Heimsókn nefndar.

      Haukur Birgisson kynnti starfsemi hótelsins og sýndi nefndarmönnum húsakynnin.

      Haukur greindi frá góðu sumri og starfseminni almennt. Þá reifaði hann hugmynd sína um að stofnaður yrði sjóður sem hægt væri að nýta til markaðssetningar erlendis, ferðaþjónustan og bærinn myndu leggja fram fjármagn í sjóðinn. Einnig rætt um merkingar og lagði Haukur áherslu á að sett yrði upp eitt stórt skilti við Reykjanesbrautina auk smærri skiltana sem eiga að fara upp.

    • 1310045 – Bæjarbíó, barnamenningarhús. Umsókn.

      Lagt fram erindi frá Arndísi Þorgeirsdóttur, Eyrúnu Ósk Jónsdóttur, Helga Sverrissyni og Sverri J. Sverrissyni um að gera Bæjarbíó að barnamenningarhúsi með áherslu á kvikmyndasýningar fyrir börn.

      Menningar- og ferðamálafulltrúa falið að skoða málið í samráði við Kvikmyndasafn Íslands.

    • 1309255 – Jólaþorpið 2013

      Menningar- og ferðamálafulltrúi greindi frá fundum með kaupmönnum miðbæjar og sameiginlegri niðurstöðu þeirra og Hafnarfjarðarbæjar á heppilegasta opnunartíma Jólaþorpsins. Einnig rætt um breytingar á uppröðun húsa, kostun og fleira.

      Nefnarmönnum líst vel á breytingarnar.

    • 1308226 – Lista- og hönnunarmiðstöð í Straumi, samningur.

      Samningur og athugasemdir frá umsækjendum ræddar, framhald frá síðasta fundi nefndar.

      Frestað til næsta fundar.

    • 1310047 – Fjárhagsáætlun menningar- og ferðamála 2013.

      Rætt um fjárhagsáætlun, vinna við gerð hennar er framundan.

      Farið yfir liði menningar- og ferðamála og helstu tölur.

Ábendingagátt