Menningar- og ferðamálanefnd

10. janúar 2018 kl. 11:00

í Hafnarborg

Fundur 297

Mætt til fundar

  • Kristín María Thoroddsen aðalmaður
  • Helga Björg Arnardóttir aðalmaður
  • Jón Grétar Þórsson aðalmaður

Jón Grétar Þórsson var á fundinum í gegnum síma.

Ritari

  • Ágústa Kristófersdóttir Forstöðumaður

Jón Grétar Þórsson var á fundinum í gegnum síma.

  1. Kynningar

    • 1801223 – Bæjarlistamaður 2018

      Farið var yfir texta auglýsingar og ábendingaeyðublaðs vegna tilnefningar bæjarlistamanns Hafnarfjarðar árið 2018. Auglýst verður eftir ábendingum á næstu dögum. Tilnefning bæjarlistamanns verður tilkynnt síðasta vetrardag.

    • 1801242 – Menningarviðburðir - kynningarmál

      Rætt var um sameiginleg kynningarmál menningarstofnana. Samþykkt að fela verkefnisstjóra menningar og viðburða að vinna að viðburðadagatali og sameiginlegri kynningu þeirra viðburða sem standa almenningi til boða í menningarstofnunum bæjarins.

Ábendingagátt