Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Sjá fundargerðarbók
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar framtakinu og þakkar fyrir áhugaverða dagskrá og vonar að bæjarbúar og aðrir gestir fjölmenni í menningar- og heilsugöngur í sumar.
Menningar- og ferðamálanefnd hvetur íbúa til þess að nýta fjölbreytt útivistarsvæði í bænum í veðurblíðunni og leggur áherslu á að útbúnar verði góðar leiðbeiningar fyrir viðburðahaldara á vef bæjarins.
Farið yfir stöðuna á viðræðum við Gaflaraleikhúsið um nýjan samstarfssamning. Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Lögð fram umsögn menningar- og ferðamálanefndar um Markaðsstefnumótun og aðgerðaráætlun fyrir Hafnarfjörð:
Menningar- og ferðamálanefnd fagnar nýútgefinni skýrslu Manhattan um Markaðsstefnumótun og aðgerðaáætlun fyrir Hafnarfjörð. Þar er margt gagnlegt sem kemur fram um viðhorf bæði íbúa og innlendra og erlendra gesta Hafnarfjarðar. Þetta er góð samantekt á anda Hafnarfjarðar og fyrir hvað hann stendur fyrir bæjarbúa og gesti. Aðgerðaráætlun sem unnin er upp úr þeim punktum sem komu fram hjá viðmælendum mun nýtast vel til að styrkja ímynd og stöðu Hafnarfjarðar til framtíðar.
Menningar- og ferðamálanefnd tekur undir það að vanda þurfi til þegar þessi stefnumótun verði innleidd og eftirfylgni með aðgerðum verði í höndum stýrihóps eins og tekið er fram í skýrslunni. Nefndin býðst til að taka þátt í þeirri vinnu og veita verkefninu stuðning.
Menningar- og ferðamálanefnd leggur einnig áherslu á að skoða þurfi betur málefni ferðamanna sem heimsækja Hafnarfjörð og gera sérstaka úttekt á því. Með þeim upplýsingum væri hægt að vinna að ferðamálastefnu fyrir Hafnarfjörð sem væri hægt að vinna eftir. Lagt er til að settur verði saman vinnuhópur til að vinna að þeirri stefnu.
Menningar- og ferðamálanefnd Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Þórey Anna Matthíasdóttir Sigurbjörg Anna Guðnadóttir 11. júní 2019