Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð)
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri, Anne Steinbrenner verkefnastjóri, Berglind Guðmundsdóttir verkefnastjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 14.09.2023 að auglýsa skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun iðnaðarsvæðisins I4 inn á óbyggt svæði til austurs vegna stækkunar lóðarinnar Álhellu 1. Frestur til að skila inn umsögn vegna lýsingarinnar var til 17.10.2023. Umsagnir lagðar fram.
https://skipulagsgatt.is/issues/724
Lagt fram.
Á fundi bæjarstjórnar 30.8.sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 skv. 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felst í breyttri legu Hamraneslínu 1 og 2 frá strengendavirki við Kaldárselsveg að tengivirki í Hamranesi. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 25.10.2023. Umsagnir og svar við athugasemdum lagt fram.
https://skipulagsgatt.is/issues/576
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs við framkomnum athugasemdum og samþykkir breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Tekið til umræðu aðalskipulag við Hamarshöfn m.t.t. flutnings tanga til norðurs.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og vísar til samþykktar Hafnarstjórnar.
Á fundi bæjarstjórnar þann 13.9.sl. var samþykkt að auglýsa að nýju tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna bættrar hafnaraðstöðu í Straumsvíkurhöfn, bæta tengingar milli Straumsvíkurhafnar og iðnaðarsvæða sunnan Reykjanesbrautar og almennt bæta umferðaskipulag við Kapelluhraun. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 30.10.2023. Lögð fram athugasemd og svar við athugasemd.
https://skipulagsgatt.is/issues/603
Á fundi bæjarstjórnar þann 13.9.sl. var samþykkt að auglýsa að nýju tillögu að breytingu á deiliskipulagi álversins í Straumsvík vegna stækkunar á hafnarsvæði með stækkaðri landfyllingu og nýjum aðkomuvegi að svæðinu. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 30.10.2023. Lagðar fram athugasemdir og svör við athugasemdum.
https://skipulagsgatt.is/issues/608
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs við framkomnum athugasemdum og samþykkir breytingu deiliskipulagi álversins í Straumsvík með áorðnum breytingum eftir auglýsingu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Á fundi bæjarstjórnar 13.9. sl. var samþykkt að auglýsa að nýju tillögu að nýju deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni dagsetta í febrúar 2023. Í tillögunni felst að sniðinn er rammi um iðnaðarhverfi í samræmi við breyttar áherslur í aðalskipulagi Hafnarfjarðar. Um er að ræða svæði er liggur á milli iðnaðarhverfis 2. áfanga Kapelluhrauns og Reykjanesbrautar, sem er skipt upp í rúmlega 30 nýjar lóðir fyrir iðnaðar- og athafnastarfsemi. Þar á meðal eru lóðir undir þegar byggð mannvirki ÍSAL. Á skipulagssvæðinu megi koma fyrir Coda Terminal, móttöku- og förgunarstöð fyrir koldíóxíð auk hefðbundnum iðnaðarlóðum. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 30.10.2023. Lagðar fram athugasemdir og svör við athugasemdum.
https://skipulagsgatt.is/issues/605
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs við framkomnum athugasemdum og samþykkir breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 13.9.sl. að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Rauðamelsnámu. Í tillögunni felst afmörkun að 15,7 ha efnistökusvæði við Rauðamel sunnan Reykjanesbrautar. Gert er ráð fyrir 1,6 ha byggingarreit á svæðinu þar sem heimilt verði að reisa allt að 6 mannvirki, samtals 500m² að hámarki. Aðkoma verði um Barböruveg. Þegar efnistöku er lokið ber að ganga frá svæðinu þannig að það falli vel að umhverfi sínu. Tillagan var auglýst með athugasemdafresti til 30.10.2023. Lagðar fram athugasemdir og svör við athugasemdum.
https://skipulagsgatt.is/issues/607
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs við framkomnum athugasemdum og samþykkir nýtt deiliskipulag Rauðamelsnámu og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 01.03.2023 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Reykjanesbrautar skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í breytingunni felst breyting á afmörkundeiliskipulagsins vegna nýs deiliskipulags Straumsvíkur sunnan Reykjanesbrautar. Einnig er gert ráð fyrir nýjum undirgöngum undir Reykjanesbraut austan við lóð Álversins. þar sem málsmeðferð erindisins var ábótavant við síðustu auglýsingu, var það tekið aftur fyrir í sveitarstjórn þann 13. september sl. og var auglýst að nýju með athugasemdarfresti til 30. okóber 2023. Lagðar fram athugasemdir og svör við athugasemdum.
https://skipulagsgatt.is/issues/604
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs við framkomnum athugasemdum og samþykkir nýtt deiliskipulag Straumsvíkur sunnan Reykjanesbrautar og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti þann 13. september 2023 að auglýsa tillögu að breytingu á skipulagsmörkum fyrir deiliskipulag Hvaleyrar. Tillagan felst í að mörk skipulagssvæðisins breytast vegna breytinga á deiliskipulagsmörkum álversins í Straumsvík. Skipulagssvæðið minnkar þannig að vegtenging frá Reykjanesbraut að dælu- og hreinsistöð fellur út úr deiliskipulagi Hvaleyrar, en verður þess í stað innan deiliskipulags álversins í Straumsvík eftir breytingu þessa. Minnkun skipulagssvæðisins er um 2500m². Að öðru leiti gildi núgildandi skilmálar. Frestur til að gera athugasemdir við tillögun var til 30. október 2023. Lagðar fram athugasemdir og svör við athugasemdum.
https://skipulagsgatt.is/issues/610
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs við framkomnum athugasemdum og samþykkir breytingu á skipulagsmörkum deiliskipulags Hvaleyrar og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Hákon Barðason f.h. lóðarhafa leggur 09.10.2023 inn deiliskipulagsuppdrætti reits 33.C. Tillagan gerir ráð fyrir lóðarstækkun um tæpa 600fm, 52 íbúðum í tveimur 6 hæða fjölbýlishúsum auk bílakjallara og samfélagsrýmis.
Skipulags- og byggingarráð vísar erindi um lóðarstækkun til umfjöllunar í bæjarráði.
Lögð fram tillaga að breytingu á skilmálum deiliskipulags Hellnahrauns 2. áfanga. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á nýtingarhlutfalli verður 0,5 fyrir húsnæði á einni hæð og 0,6 fyrir húsnæði á tveimur hæðum.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á skilmálum deiliskipulags Hellnahrauns 2. áfanga og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Kynnt tillaga að nýju deiliskipulagi Gráhelluhrauns. Skipulagshöfundur mætir til fundarins. Tillagan gerir ráð fyrir að samhliða verði gerðar breytingar á skipulagi Kaldárselsvegs og athafnasvæði Sörla.
Skipulags- og byggingarráð þakkar Þráni Haukssyni fyrir kynninguna og samþykkir að tillagan verði kynnt á opnum fundi.
Tekið fyrir að nýju erindi vegna húsnæðismála Villikatta sem bæjarráð vísaði 10. ágúst sl. til umræðu í skipulags- og byggingarráði.
Skipulags- og byggingarráð getur ekki orðið við beiðni samtakanna um lóð við Kaplaskeið þar sem skilmálar svæðisins heimila eingöngu hestatengda starfsemi. Þær atvinnuhúsalóðir sem í boði eru í sveitarfélaginu núna gera ráð fyrir stærra húsnæði en 300fm.
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa.
Lagt fram og erindinu vísað til meðferðar hjá bæjarlögmanni.
Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. sækir um leyfi til stækkunar aðstöðusvæðis meðan á framkvæmdum stendur.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir stækkun á aðstöðusvæði í samræmi við tillögu 01.
Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs.
Lögð fram fundargerð 120. fundar.
Lögð fram fundargerð 948. fundar.
Fundagerð
Lögð fram fundargerð 949. fundar.