Lögð fram skipulagslýsing aðalskipulags Hafnarfjarðar 2026-2038. Skipulagsráðgjafi mætir til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð
Fundarsalurinn Hamarinn, Norðurhellu 2 (1. hæð)
Mætt til fundar
- Birna Lárusdóttir varamaður
- Árni Rúnar Árnason varaformaður
- Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
- Guðrún Lísa Sigurðardóttir aðalmaður
- Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
- Sigurjón Ingvason áheyrnarfulltrúi
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri, Anne Steinbrenner verkefnastjóri, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi.
Ritari
- Anna Margrét Tómasdóttir verkefnisstjóri
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri, Anne Steinbrenner verkefnastjóri, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi.
-
Almenn erindi
-
2208015 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2026-2038
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa og leita umsagna við framlagðri skipulagslýsingu og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar. Haldinn verður opin kynningarfundur á auglýsingartímanum.
-
2302617 – Rauðamelsnáma, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að matsáætlun fyrir Rauðamelsnámu og Straumsvík. Ráðgjafi VSÓ mætir til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð vísar matsáætluninni til Skipulagsstofnunar.
-
2111539 – Straumsvík, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að matsáætlun fyrir Rauðamelsnámu og Straumsvík. Ráðgjafi VSÓ mætir til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð vísar matsáætluninni til Skipulagsstofnunar.
-
2310078 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, breyting Fornubúðir
Lögð fram drög að lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, Fornubúða og Hamarshafnar. Lýsingin gerir grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025, Hamarshöfn þar sem hafnarsvæðið H6 er fært til þar sem tanginn/hafnargarðurinn flyst norðar. Samhliða er gerð breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025, Fornubúðir þar sem miðsvæði M7 er að hluta til breytt í svæði fyrir samfélagsþjónustu S42.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa og leita umsagna við framlagða skipulagslýsingu og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2306599 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, breyting Hamarshöfn
Lögð fram drög að lýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, Fornubúða og Hamarshafnar. Lýsingin gerir grein fyrir fyrirhuguðum breytingum á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 ? 2025, Fornubúðir þar sem miðsvæði M7 er að hluta til breytt í svæði fyrir samfélagsþjónustu S42. Og Hamarshöfn þar sem hafnarsvæðið H6 er fært til þar sem tanginn/hafnargarðurinn flyst norðar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa og leita umsagna við framlagða skipulagslýsingu og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2310364 – Baughamar 13, reitur 33.C, deiliskipulag
Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna tillögu að deiliskipulagi reitsins. Tillagan gerir ráð fyrir 52 íbúðum á tveimur 5 hæða húsum með inndreginni 6. Hæð. Húsin tengjast á sameiginlegri bílgeymslu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa skipulagstillöguna og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar
-
2308577 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, breyting Álhella 1
Lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025. Breytingin felst í stækkun á iðnaðarsvæði.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa skipulagstillöguna samhliða breytingu á deiliskipulagi Álhellu 1 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2302624 – Álhella 1, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir stækkun lóðar, aðkomu að lóð verði hnikað til, jarðvegsmanir verði færðar og lengdar. Gert verði ráð fyrir hljóðvegg innan lóðar meðfram lóðarmörkum Álhellu 1 og 3. Nýtingarhlutfall lóðar verði Nh= 0,4.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa skipulagstillöguna samhliða breytingu á aðalskipulagi Álhellu 1 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
2308876 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2024 og 2025-2027
Lögð fram bókun bæjarstjórnar frá 8. nóvember sl.
Meirihluti skipulags- og byggingarráðs bendir á að á síðustu misserum hefur verið unnið að sjálfvirknivæðingu og móttöku umsókna og eyðublaða með rafrænum hætti í nánu samstarfi við þjónustu- og þróunarsvið, HMS og Skipulagsstofnun. Til að mynda er móttaka umsókna um byggingarleyfi og fylgiskjala orðin rafræn. Hins vegar eru enn atriði í meðferð skipulagsmála sem bundin eru í lög og ekki hægt að vinna með öðrum hætti.
Fulltrúi Viðreisnar leggur fram eftirfarandi bókun:
Bókun meirihluta um tillöguna bendir til þess að ekki sé vilji til þess að gera frekari úrbætur. Það eru vissulega vonbrigði að meirihlutinn hafi ekki meiri vilja til að nútímavæða vinnubrögð og bæta þjónustu.
Fulltrúar Samfylkingarinnar bóka eftirfarandi:
Gjaldskrárhækkanir
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja áherslu á að þær tillögur sem vísað var til ráða og nefnda við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun á 1920. fundi bæjarstjórnar 08.11. sl. fái vandaða og ítarlega umfjöllun á milli umræðna um fjárhagsáætlun 2024 og 2025-2027.Ljóst er að þjónustugjöld, gjaldskrár og álögur á bæjarbúa á að hækka langt umfram áætlaðar verðlagsbreytingar, eða tæp 10%. Það er íþyngjandi fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem nýta sér þjónustu framkvæmda- og skipulagssviðs. Óábyrgar gjaldskrárhækkanir eru verðbólguhvetjandi í sjálfu sér. Á sama tíma kalla aðilar vinnumarkaðarins og opinberir aðilar, svo sem Seðlabankinn og ríkisstjórn eftir því að sveitarfélög haldi að sér höndum gagnvart verðlagshækkunum. Því ákalli ætlar meirihlutinn í Hafnarfirði, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, ekki að svara. Á sama tíma hlífir meirihluti Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tekjuhæsta hópi samfélagsins með því að fullnýta ekki útsvarið. Það er sýndarmennska á meðan meirihlutinn fullnýtir heimildir sínar og rúmlega það til að hækka gjaldskrár og þjónustugjöld. Það birtist hvað skýrast í 9,9% hækkun fasteignaskatta, þegar verðhjöðnun hefur átt sér stað á fasteignamarkaði. Hafnarfjarðarbær er einfaldlega að hækka álögur á bæjarbúa.
Tillögur
Vistvænar byggingar
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að áfram verði unnið að því að innleiða hvata til að hvetja framkvæmdaraðila til að draga úr umhverfisáhrifum framkvæmda og minnka kolefnisspori hvort heldur sem nýbyggingar, viðgerðir eða endurbætur á eldra húsnæði. Þetta á við um atvinnuhúsnæði, íbúðarhúsnæði, skrifstofur og frístundahúsnæði og framkvæmdir á vegum bæjarins. Ávinningurinn af því er mikill t.d. sporna hnattrænni hlýnun, verndar heilsu þeirra sem koma að verkinu á framkvæmdartíma og þeirra sem nota bygginguna eftir að hún er tekin í notkunReykjanesbraut
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að hafin verði vinna í samstarfi við Vegagerðina að finna framtíðarlausn á vegakaflnaum Reykjanesbrautar Lækjargötu-Álftanesveg. Umferðarþungi er mikill og umferðartalningar sýna að umferðin eykst með hverju árinu með fjölgun íbúa á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu og auknum ferðamannastraumi. Vegabætur heyra undir samgöngusáttmála höfuborgarsvæðinsins 2025-2028 og brýnt er að vinna hefjist sem fyrst að finna viðunandi lausn á þungri umferð og tilheyrandi töfum sem liggur í gegnum bæinn.Óttarsstaðir
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að hafin verði vinna við skipulag Óttarstaða vestan við Straumsvíkur í samvinnu við landeigendur. Í aðalskipulagi Hafnarfjarðar er það merkt sem óskipulagt svæði. Aukin eftirspurn eftir íbúðar- og atvinnuhúsalóðum og grænum svæðum og stækkandi byggð kallar á nauðsyn þess að hafin sé vinna við við að móta framtíðarsýn svæðisins með gerð skipulags í samstarfi við íbúa og aðra hagaðila.Bláfjallavegur
Fulltrúar Samfylkingarinnar minna á mikilvægi Bláfjallavegar sem tengingar Hafnfirðinga og Suðurnesjabúa að skíðasvæðinu í Bláfjöllum og einnig er vegurinn mikilvæg öryggisleið ef vá steðjar að. Heimild til lokunar var veitt tímabundið og all nokkrum sinnum hefur bæjarstjórn bókað um opnun vegarins, en ekkert hefur gerst. Fulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir úttekt á stöðu mála og tímaáætlun fyrir opnun vegarins.Hagkvæmar íbúðir
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að stofnaður verði starfshópur sem hefur það markmið að finna leiðir til að mæta fyrirsjáanlegum samdrætti í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og horfi í því sambandi til rammaáætlunar ríkis og sveitarfélaga um uppbyggingu íbúða á hagkvæmu verði.Hreinsunarátak
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að farið verði í átak í hreinsun á iðnaðar- og nýbyggingarsvæðum. Mikilvægt er fyrir uppbygging atvinnulífs hér sem annars staðar sé snyrtilegt og umgengni góð. Sama má segja um nýbyggingarsvæði bæjarins eða þar sem framkvæmdir eru í byggðum hverfum. Snyrtilegt umhverfi bætir ímynd bæjarins sem verður eftirsóknarverðara sem valkostur fyrir rekstraraðila og íbúa bæjarins.Útivistar og almenningssvæði
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að hafin verði vinna við skipulag Vallanna vegna útivistar og almenningssvæðis á Völlunum samanber tillögur starfshóps þess efnis sem var að störfum vorið 2022. Einnig að áfram verði unnið að grænkun Vallanna.Skilvirkni og styttri biðtími
Fulltrúar Samfylkingarinnar leggja til að gerð verði úttekt á afgreiðslutíma tillagna og erinda hjá Hafnarfjarðarbæ til að finna leiðir til úrbóta til að auka skilvirkni og stytta afgreiðslutíma tillagana og erinda. -
2306600 – Lækjargata 2, reyndarteikningar
Tekið til umræðu.
Skipulags- og byggingarráð heimilar að leitað verði leiða til úrbóta við Brekkugötu til að auka öryggi vegfarenda.
Fundargerðir
-
2310044F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingafulltrúa - 950
Lögð fram fundargerð 950. fundar.
-
2311005F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingafulltrúa - 951
Lögð fram fundargerð 951. fundar.
-