Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Lagðar fram fundargerðir frá afgreiðslufundum skipulags- og byggingarfulltrúa 08.04.2009, 15.04.2009 og 22.04.2009.

A-hluti fundargerðanna fer til samþykktar bæjarstjórnar.

Sverrir Júlíusson sækir um að breyta deiliskipulagi fyrir lóðina við Austurgötu 31, skv. uppdrætti Halldórs Hannessonar dags. 15.01.07. Grenndarkynningu lokið, athugasemd barst. Umbeðnum lagfæringum á lóðamörkum er lokið og staðreynt hefur verið að allir hlutar skipulagsins eru innan viðkomandi lóðar. Erindið var grenndarkynnt að nýju 02.03.2009 skv. 2. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga með athugasemdafresti til 30.03.2009. Engin athugasemd barst. Frestað á fundi 219.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir skipulagið og að málinu verði lokið samkvæmt 26. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Arkur ehf leggur 25.03.09 fram fyrispurn um að byggja nýtt hús, eina hæð og ris á lóðinni skv gögnum frá Jon Nordsteien. Bæjarráð hefur samþykkt breytt lóðamörk. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu 07.04.2009 til umsagnar Byggðasafns Hafnarfjarðar. Lögð fram umsögn Byggðasafns Hafnarfjarðar dags. 16.04.2009, sem bendir á að sökum aldurs hússins þurfi samþykki Húsafriðunar ríkisins. Erindið hefur verið sent þangað.

Lagt fram.

Aðalheiður Dröfn Eiríksdóttir sækir um leyfi til að setja tvö bílastæði innan lóðar í samræmi við uppdrátt dags. febrúar 2009. Umsögn framkvæmdasviðs dags. 10.3.2009 liggur fyrir. Erindið var grenndarkynnt 13.03.2009 skv. 7. mgr. 43. greinar skipulags- og byggingarlaga með umsagnarfresti til 14.04.2009, athugasemd barst. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

Skipulags- og byggingarráð frestar erindinu milli funda.

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Norðurbakka hvað varðar innkeyrslu, staðsetningu og hæð spennistöðvar og grenndargám skv. uppdrætti Batterísins dags. 29.01.2009. Deiliskipulagið hefur verið auglýst 06.03.2009 skv. 2. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með athugasemdafresti til 03.04.2009. Athugasemdir bárust. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að vinna samantekt á innkomnum athugasemdum og tillögu að umsögn um þær.

Lögð fram tillaga að verksamningi við Arkitektur.is ehf dags. 24.04.2009. Skipulagshöfundar Arkitektur.is mættu á fundinn ásamt verkefnisstjóra Stefáni Veturliðasyni VSB og kynntu framgang vinnu við verkefnið.

Skipulags- og byggingarráð þakkar Páli Tómassyni og Stefáni Veturliðasyni kynninguna.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða samninga.

Samþykkt með 3 atkvæðum, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna sitja hjá.

Fulltrúi VG telur þessa vinnu ekki tímabæra og allt of dýra. Fulltrúi VG vill einblína á legu Ásvallabrautar sem tengir Velli og Ásland saman.

Lögð fram tillaga að verksamningi við Batteríið ehf með rágjafa Landslag ehf dags. 02.04.2009. Skipulagshöfundar Batteríið og Landslag mættu á fundinn ásamt verkefnisstjóra Stefáni Veturliðasyni VSB og kynntu framgang vinnu við verkefnið.

Skipulags- og byggingarráð þakkar Stefáni Veturliðasyni, Sigurði Einarssyni, Önnu Margréti Tómasdóttur og Þráni Haukssyni kynninguna.

Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða samninga.

Samþykkt með 3 atkvæðum, fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna sitja hjá.

Fulltrúi VG telur þessa vinnu ekki tímabæra og allt of dýra. Fulltrúi VG vill einblína á legu Ásvallabrautar sem tengir Velli og Ásland saman.

Tekin til umræðu tillaga Skipulags- og byggingarsviðs að 2. áfanga iðnaðarsvæðis í Kapelluhrauni skv. uppdrætti skipulags- og byggingarsviðs dags. 08.02.2009. Skipulagið var auglýst 02.03.2009 skv. 1. mgr. 26. greinar skipulags- og byggingarlaga og lauk athugasemdatíma 17.04.2009. Lagðar fram umsagnir Landsvirkjunar dags. 08.04.2009 og Rio Tinto – Alcan dags. 17.04.2009. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að ræða við umsagnaraðilana.

Tekin fyrir að nýju umræða um þróunaráætlun miðbæjar. Sameiginlegur fundur var haldinn með miðbæjarnefnd 31.03.2009, þar sem Bjarni Reynarsson Land-ráð ehf mætti og kynnti tillögu að þróunaráætlun. Lögð fram drög að þróunaráætlun dags. mars 2009. Frestað á síðasta fundi.

Skipulags- og byggingarráð frestar erindinu.

Lögð fram fundargerð Umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 dags. 15.04.2009.

Lagt fram.

Litboltafélag Hafnarfjarðar óskar eftir framlengingu á afnotum af æfinga- og keppnissvæði við Krýsuvíkurveg. Einnig er óskað eftir leyfi til jarðvegsframkvæmda. Lagðar fram umsagnir fjölskylduráðs dags. 06.04.2009, umhverfisnefndar/Staðardagskrár 21 dags. 15.04.2009 og framkvæmdaráðs dags. 27.04.2009.

Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið.

Verkefnastjóri Sd 21 kynnir fyrir ráðinu drög að samningi varðandi hrossabeit í Krýsuvík.

Skipulags- og byggingarráð frestar erindinu.

Sviðsstjóri og formaður gera grein fyrir viðræðum við hafnarstjóra og formann hafnarstjórnar um að hefja vinnu við breytingu á aðalskipulagi hafnar vestan Straumsvíkur, þar sem skipulagi er frestað í Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025. Lagðir fram minnispunktar sviðsstjóra.

Skipulags- og byggingarráð felur skipulags- og byggingarsviði að hefja vinnu við undirbúning að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar svæði vestan Straumsvíkur þar sem skipulagi var frestað. Skipulags- og byggingarráð gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar:

”Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hafin verði vinnu við undirbúning að breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2005 – 2025 hvað varðar svæði vestan Straumsvíkur þar sem skipulagi var frestað.”

Trausti Baldursson gerir grein fyrir atkvæði sínu: Ég samþykki framangreinda samþykkt um að hafin verði vinna við að ljúka skipulagi fyrir framangreint svæði en með þeim fyrirvara að það sé skipulagsvinnan sem eigi að leiða í ljós til hvers svæðið verður nýtt.

Á bílastæði hússins gegnt Suðurgötu hefur staðið gámur í heilt ár. Haft var samband við húseigendur, Bílamálun Minney, um að fjarlægja gáminn og lofuðu þeir að það yrði ekki bið á því. Gámurinn stendur enn, en samkvæmt deiliskipulagi er það óheimilt. Gámurinn er þarna á ábyrgð húseiganda/lóðarhafa, sem hefur ítrekað verið beðinn um að fjarlægja gáminn, og gert skylt á afgreiðslufundi 27.08.2008 að fjarlægja hann þá þegar. 18.03.2009 gerði skipulags- og byggingarfulltrúi húseiganda/lóðarhafa Melabrautar 17 skylt að fjarlægja umræddan gám innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við erindinu innan þess tíma yrði gerð tillaga til skipulags- og byggingarráðs um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga. Ekki hefur verið brugðist við þessu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 08.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu:%0D”Skipulags- og byggingarráð gerir húseiganda skylt að fjarlægja umræddan gám innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.”

Skipulags- og byggingarráð gerir húseiganda skylt að fjarlægja umræddan gám innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um að beitt verði dagsektum í samræmi við 57. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Tekið fyrir að nýju mál varðandi ólöglegar framkvæmdir við húsið og ólöglega búsetu í húsinu. Komið hefur í ljós að ekki hefur verið brugðist við þessu. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerir 08.04.2009 tillögu til skipulags- og byggingarráðs að ítrekuð verði samþykkt til nýrra eigenda um að beitt verði dagssektum í samræmi við VI kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Skipulags- og byggingarráð ítrekar að í gildi eru dagsektir, sem samþykktar voru í bæjarstjórn 29. apríl 2008, vegna ólöglegrar búsetu og framkvæmda að Hvaleyrarbraut 22 og beinir því til bæjarlögmanns að nýjum eigendum verði tilkynnt þetta og beinir því jafnframt til bæjarstjórnar að ítrekuð verði samþykkt til nýrra eigenda um að beitt verði dagssektum í samræmi við VI kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 04.03.2009 lóðarhafa skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Yrði ekki brugðist við því myndi verða gerð tillaga um aðgerðir í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 15.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: “Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu um dagssektir í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. “

Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhafa skylt að bæta frágang á lóðinni innan fjögurra vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu um dagssektir í samræmi við 57. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Borist hefur kvörtun með tölvupósti dags. 10.03.2009 frá íbúum Hafravalla 14 og 16 vegna slæms frágangs á byggingarlóð Hafravalla 18 og 20. Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur áður sent lóðarhöfum bréf út af sama máli, dags. 25.07.2008. Skipulags- og byggingarfulltrúi gerði 01.04.2009 lóðarhöfum skylt að lagfæra ástand lóðarinnar innan tveggja vikna. Yrði ekki brugðist við því myndi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Ekki hefur verið brugðist við erindinu. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: “Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhöfum skylt að lagfæra ástand lóðarinnar innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.”

Skipulags- og byggingarráð gerir lóðarhöfum skylt að lagfæra ástand lóðarinnar innan tveggja vikna. Verði ekki brugðist við því mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um beitingu dagsekta í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.

Mjölnir Gunnarsson sækir um húsaleigubætur og skráningu lögheimilis að Dalshrauni 15. Lagður fram þinglýstur húsaleigusamningur fyrir íbúðarhúsnæði í húsinu. Skipulags- og byggingarfulltrúi benti 01.04.2009 á að ekki er samþykkt íbúð í húsinu, sem er á athafnasvæði. Íbúðin væri því ólögleg og bæri að rýma hana án tafar. Yrrði það ekki gert innan tveggja vikna mundi skipulags- og byggingarfulltrúi gera tillögu til skipulags- og byggingarráðs um beitingu dagsekta í samræmi við VI. kafla skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Erindið var til umfjöllunar á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa 22.04.2009, sem vísaði því til skipulags- og byggingarráðs með eftirfarandi tillögu: “Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda skylt að rýma hinar ólögmætu íbúðir í húsinu tafarlaust. Verði það ekki gert innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir með tilvísun til 57. greinar skipulags- og byggingarlaga.”

Skipulags- og byggingarráð gerir eiganda skylt að rýma hinar ólögmætu íbúðir í húsinu tafarlaust. Verði það ekki gert innan tveggja vikna mun skipulags- og byggingarráð gera tillögu til bæjarstjórnar um dagsektir með tilvísun til 57. greinar skipulags- og byggingarlaga.