Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi og Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi fundinn.
Lögð fram drög að lýsingu á notkun og skipulagi hafnarsvæðisins. Verkefnisstjóri mætti á fundinn og fór yfir lýsingu.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi lýsingu fyrir sitt leyti með þeim breytingum sem fram komu á fundinum um stækkun svæðisins að Stapagötu og leggur til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lýsingu að breyttri notkun og skipulagi hafnarsvæðisins í samræmi við fyrirliggjandi gögn.”
Lagt fram erindi Lex lögmannsstofu dag. 14. desember 2015 þar sem farið er framá afturköllun eða endurupptöku á ákvörðun um byggingarleyfi fyrir ofangreindar lóðir.
Skipulags- og byggingarraáð vísar erindinu til bæjarlögmanns.
Lagt fram erindi umhverfis- og auðlindaráðuneytis dags. 22. janúar þar sem óskað er eftir umsögnum um breytingar á byggingarreglugerðinni.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir umsögn byggingarfulltrúa með þeim orðalagsbreytingum sem fram komu á fundinum og jafnframt telur ráðið að þessar breytingar tryggi ekki að neytendur njóti þess í lækkun íbúðaverðs.
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagsþjónustu að lýsingu fyrir deiliskipulag svæðisins dags. 30.06.2015.
Lagt fram, afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Skipulag svæðisins tekið til umfjöllunar.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að hefja vinnu við lýsingu í samræmi við 1. mr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010, fyrir svæði sem afmarkast af Reykjavíkurvegi, Flatahrauni og Fjarðarhrauni.
Tekið til umfjöllunar að hefja deiliskipulagsvinnu á nokkrum lóðum innan þéttingarsvæða.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að taka saman greinagerð um þær skipulagsbreytingar sem vinna þarf m.t.t. núgtildandi aðalskipulags/deilskipulags á mögulegum þéttingarsvæðum.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 27. janúar sl. vísaði eftirfarandi máli til skipulags- og byggignarráðs:
Lögð fram fyrirspurn Gylfa Bergmann Heimissonar dags. 20.1. 2016 um að breyta ofangreindu húsnæði í íbúðir.
Farið yfir stöðu málsins.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir kostnaðar-ábatagreiningu á verkefninu samhliða áframhaldandi skipulagsvinnu. Um er að ræða eitt stærsta samgönguverkefni sem Hafnarfjarðarbær hefur ráðist í og því mikilvægt að vanda til verka við ákvörðunartöku.
Tekið fyrir að nýju erindi Geymslusvæðisins ehf frá 14.1.2016 varðandi deiliskipulagsbreytingar á eignarlandi Geymslusvæðisins.
Afgreisðlu frestað.
Teknar til umfjöllunar hugmyndir um hundagerði.
Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt mætti á fundinn vegna þessa máls.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að koma upp hundagerði á Hörðuvöllum sem tilraunaverkefni til eins árs í samræmi við fyrirliggjandi tillögu og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu framkvæmd verkefnisins.
Lögð fram umsókn Geco ehf dags. 1.2.2016 um breytingu á byggingarreit innan ofagreindrar lóðar. Jafnframt lagður fram uppdráttur 29.01.2016, er gerir grein fyrir breyttu deiliskipulagi. Gert er ráð fyrir tveimur íbúðum á efri hæð hússins.
Lagt fram, afgreiðslu frestað og umferðarmál verði skoðuð fyrir næsta fund.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 13. janúar vísaði eftirfarandi máli til skipulags- og byggingarráðs: Tekið fyrir að nýju. Laggi ehf sækir 24.11.15 um leyfi til að setja milli gólf og inrétta aðra hæðina sem skrifstofur og húsvarðaríbúð samkvæmt teikningum Davíðs Karlssonar dag.19.11.15 Nýjar teikningar bárust 16.12.15
Afgreiðslu frestað. Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna úttekt á nýtingarhlutfalli Selhrauns norðurs og suðurs m.t.t. gildandi deiliskipuags.
Lögð fram á ný endurskoðuð dags. 8. febrúar 2016 tillaga að breytingu á deiliskipulagi þar sem bílastæðum er komið fyrir. Skipulags- og byggingarráð óskaði 19.05.15 eftir umsögnum frá fyrirtækjum í götunni um þörf bílastæða. Áður lagðar fram umsagnir margra aðila við götuna. Erindið var síðast tekið fyrir á fundi ráðsins þann 12.01.2016.
Berglind Guðmundsdóttir landslagsarkitekt og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri mættu á fundinn vegna þessa máls.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytta tillögu að deiliskipulagi og vísar til afgreiðslu sinnar á fundi ráðsins 12. janúar sl. Skipulags- og byggíngarráð áréttar að breytingin felur í sér að komið verður fyrir almennum bílastæðum en ekki til einkanota og verður því óheimilt að sérmerkja stæðin.
Tekið fyrir að nýju. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 8. september sl. var umhverfis- og skipulagsþjónustu falið að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi til samræmis við samþykktar byggingarnefndarteikningar. Send var út grenndarkynning með athugasemdarfresti til 16. nóvember sl. Athugasemdir bárust. Haldinn var íbúafundur í kjölfarið til nánari útskýringar. Lögð fram drög að svörum vegna athugasemda.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að ljúka deiliskipulagsbrreytingunni í samræmi við 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt leggur skipulags- og byggingarráð til við bæjarstjórn: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breyttu deiliskipulagi Vesturgötu 18- 20 og að málinu verði lokið í samræmi við 1. mgr. 42 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.”
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 27. janúar sl.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 3. febrúar sl.