Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Helga Stefánsdóttir aðstoðarsviðsstjóri fundinn.
Lögð fram skipulagslýsing fyrir Kaldárselsveg dags. 30. desember 2016. Skipulagshöfundur mætti á fundinn og kynnti.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða lýsingu og að hún verði auglýst í samræmi við skipulagslög nr.123/2010.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Ásvallabrautar, tenging Valla og Áslands.
Lagt fram.
Umræða um tillögur og kynnt yfirferð rýnihóps.
Borghildur Sturludóttir vék af fundi við umfjöllun þessa máls.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að undirbúa kynningu á tillögunum fyrir lóðarhöfum á svæðinu.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa 30.11.2016 vísaði eftirfarandi erindi til skipulags- og byggignarráðs: Borgarafl ehf leggur 29.11.16 inn fyrirspurn um breytingu á byggingarreit og innkeyrslu inn á lóð. Sjá meðfylgjandi bréf og teikningar Ríkharðs Oddssonar dags. 29.11.2016.
Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu varðandi umferðartengingar á fundi sínum þann 13.12. s.l. Lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu dags. 21.12.2016.
Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu eins og það liggur fyrir í samræmi við framlagt minnisblað umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Lögð fram drög að skýrslu vegna vinnu við hagkvæmniúttekt á vegtengingum við Velli. Skýrslan var kynnt á fundi ráðsins þann 13.12. s.l.
Lögð fram fyrirspurn Eðvarðs Inga Hreiðarssonar og Drafnarfells ehf dags 3.1. 2017 um hvort byggja megi samsíða Álfhellu,eins og upphaflegt deiliskipulag gerði ráð fyrir og halda báðum innkeyrslum. Deiliskipulagi var breytt 2007. Einnig er óskað eftir því að breyta regnvatnslögnum frá húsi.
Skipulags- og byggingaráð óskar eftir umsögn umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Innheimta stöðuleyfa og framhald málsins tekin til umræðu.
Reglur um stöðuleyfi gáma voru samþykktar í bæjarstjórn á síðasta ári. Skipulags- og byggingarráð fagnar þeim árangri sem náðst hefur nú þegar á framkvæmd reglnanna. Skipulags- og byggingarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að vel takist til með framkvæmd og eftirfylgni og að málum sé fylgt eftir með skýrum og gegnsæjum hætti. Því samþykkir ráðið að í samráði við gæðastjóra Hafnarfjarðarbæjar verði samdir skýrir verkferlar um framkvæmd og eftirfylgni bæjaryfirvalda á reglunum.
Staða málsins kynnt.
Skipulags- og byggingarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að vel takist til við hreinsun iðnaðar- og athafnasvæða svo og annarra svæða í bæjarlandinu og að málum sé fylgt eftir með skýrum og gegnsæjum hætti. Því samþykkir ráðið að í samráði við gæðastjóra Hafnarfjarðarbæjar verði samdir skýrir verkferlar um framkvæmd og eftirfylgni bæjaryfirvalda á lóðum og svæðum þar sem umgengni er ábótavant.
Tekið fyrir að nýju og lagt til að hafin verði vinna við húsaskráningu miðbæjarskipulagsins.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að unnin verði húsaskráning fyrir miðbæinn.
Deiliskipulag svæðisins tekið til umfjöllunar. Formaður leggur fram eftirfarandi tillögu: “Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við undirbúning að tillögu á nýju deiliskipulagi undir íbúðarbyggð í Hamranesi.”
Afgreiðslu frestað.
Tekið fyrir að nýju en skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa breytingu á gildandi skipulagi þann 13.12. s.l.
Við yfirferð á gögnum málsins hefur komið í ljós að bifreiðageymsla sem samþykkt var 22.10.2008 og gerð var fokeld 20.01.2009, er að fullu lokið og ekki liggur fyrir lokaúttekt.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að fresta auglýsingu deiliskipulagsins með hliðsjón af nýjum upplýsingum í málinu.
Gunnar Agnarsson Selvogsgötu 12, leggur fram fyrirspurn um stækkun, hækkun og breytingu á innra skipulagi hússins samkvæmt uppdráttum Gísla Gunnarssonar byggfr. dags. 29.12.2016. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 09.01.2017.
Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu eins og það liggur fyrir með hliðsjón af umsögn skipulagsfulltrúa.
Lagðar fram fundargerðir svæðiskipulags höfuðborgarsvæðisins nr. 70, 71 og 72.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram fundargerð afgreiðsælufundar frá 7. desember s.l.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 14. desember s.l.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 21. desember s.l.