Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sat Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi fundinn og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður bæjarins að hluta.
Lagt fram erindi Stefáns Guðmundssonar dags. 09.01.17 þar sem sótt er um stækkun á byggingarreit, skv. teikningum Rúnars I Guðjónssonar dags.27.12.16 Umsókninni fylgir umsögn Minjastofnunar dags.20.12.2016.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi í samræmi við 1. mgr, 43. gr. 123/2010.
Lögð fram ný fyrirspurn Þorbjörns Inga Stfeánssonar, sent í tölvupósti 17.1.2017,um leyfi til að byggja viðbyggingu við núverandi hús innan sömu lóðar skv. teikningum Einars Ólafssonar arkitekts dags. 17.1.2017. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa 6.2.2017.
Skipulag- og byggingarráð synjar erindinu og tekur undir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 06.02.2017.
Lagt fram bréf Sturlu Haraldsson dags. 14.11.2015 ásamt fylgigögnum er varða Gunnarsbæ, Gunnarssund 1.
Borghildur Sturludóttir vék af fundi við umfjöllun og afgreiðslu þessa erindis.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til nánari skoðunar samhliða vinnu við húsaskráningu vegna endurskoðunar á deiliskipulagi miðbæjarins.
Hafnarfjarðarbær sækir um að breyta gildandi deiliskipulagi, sem tók gildi 29. apríl 2008. Þar er gert ráð fyrir sameinaðri lóð 8-10 með nýtingarhlutfalli 0,5. Breytingin felur í sér að breyta deiliskipulaginu í upprunalegt horf þ.e.a.s. tvær lóðir: nr. 8, lóðarstærð 4787,9 m2 með nýtingarhlutfalli 0,43 og nr. 10, lóðarstærð 4185,4 m2 með nýtingarhlutfalli 0,43.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu og samþykkir að grendarkynna hana með vísan til 2.mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Norðurport efh eignarhaldsfélag sækir með bréfi dags. 16. desember 2016 um lóðina Gjáhellu 13 með þeim fyrirvara að heimild fáist til að breyta deiliskipulagi og að byggja í áföngum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10.01.2017
Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í skipulagsbreytingu á lóðinni með vísan í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10.01.2017
Lögð fram fyrirspurn Arnars Skjaldarsonar dags. 19.1.2017 varðandi breytingu á húsinu á ofangreindri lóð úr einbýli í tvíbýli.
Skipulags- og byggingarráð heimilar umsækjanda, með hliðsjón af umsögn skipulagsfulltrúa dags 24.1.2017, að vinna deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað enda er fordæmi fyrir tvíbýlishúsum í gildandi deildiskipulagi reitsins.
Tekið fyrir að nýju, en skipulags- og byggingarráð samþykkti að auglýsa breytingu á gildandi skipulagi þann 13.12. s.l. Við yfirferð á gögnum málsins kom í ljós að bifreiðageymsla sem samþykkt var 22.10.2008 og gerð var fokheld 20.01.2009, var að fullu lokið en ekki lá fyrir lokaúttekt.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti að fresta auglýsingu deiliskipulagsins á fundi sínum 10.01.2017 með hliðsjón af nýjum upplýsingum í málinu. Lokaúttektarvottorð var gefið út 24.01.2017. Nýr uppdráttur deiliskipulagsbreytingar, dags. 06.01.2017, lagður fram.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir á ný framlagða tillögu og auglýsingu hennar með vísan til 1. mgr. 41. gr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 10.01.2017 skipulagslýsingu vegna deiliskipulags Kaldárselsvegar og tengingu við Reykjanesbraut. Lagt fram svarbréf skipulagsstofnunar dags. 19.01.2017. Ennfremur lögð fram tillaga Teiknistofunar Storð ásamt greinagerð dags. 3.2.2017 að deiliskipulagi Kaldárselsvegar, tenging við Reykjanesbraut.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi og að hún verði auglýst skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010. og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir tillögu að deilskipulagi og að hún verði auglýst í samræmi við 1. mgr. 41.gr. laga 123/2010.”
Tekin fyrir að nýju tillaga að deiliskipulagi Ásvallabrautar, tenging Valla og Áslands.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 24.01.2017 að farið yrði í forval vegna alútboðs á lóðinni Lækjargata 2. Lögð fram drög að alútboðsgögnum dags. feb. 2017.
Lagt fram, afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Teknar til umræða á ný fyrirliggjandi tillögur, næstu skref og kynnt yfirferð rýnihóps.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að koma á samráðshópi með lóðarhöfum á svæðinu.
Tekið fyrir að nýju erindi Syðra Langholts frá 22. júní 2016 varðandi uppbyggingu á svæðinu.
Skipulags- og byggingarráð felur byggingarfulltrúa að afgreiða stöðuleyfi varðandi gám og setja nánari skilmála með frágang hans.
Miðbæjarskipulag Hafnarfjarðar tekið til umræðu að nýju en það er að grunni til frá 2001, með seinni tíma breytingum. Afmörkun miðbæjarins er svæði sem afmarkast af Vikingastræti, Suðurgötu, Strandgötu og allt að Safnahúsum við Vesturgötu.
Skipulags- og byggignarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að taka saman grunngögn um skipulagssvæðið, húsaskráningu, tölfræðigögn o.fl.
Geymslusvæðið ehf óskar með tölvupósti dags. 2. febrúar 2017 eftir að framtíðarlega Reykjanesbrautar verði ákveðin en í aðalskipulagi Hafnarfjarðar liggur hún í gegnum land þeirra. Jafnframt er óskað eftir nýrri tengingu við mislæg gatnamót við álverið í Straumsvík.
Lagt fram og vísað til nánari skoðunar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu.
Lögð fram fundargerð afgeiðslufundar skipulags- og byggingarfulltrúa frá 18. janúar s.l.
Lagt fram til kynningar.