Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarsal bæjarráðs, Strandgötu 6
Svæðisskipulagsnefnd leggur fram með bréfi dags. 15.09.2017 ásamt fylgiskjölum, breytingartillögu svæðisskipulagsins vegna Borgarlínu.
Erindið var upphaflega tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 19. september sl. en afgreiðslu þess þá frestað.
Í erindi svæðisskipulagsstjóra kemur eftirfarandi fram:
„Á grunni samkomulags sveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu dags. 2. desember 2016 hefur verið unnin tillaga að breytingu á svæðisskipulaginu Höfuðborgarsvæðið 2040 vegna Borgarlínu. Vinnslutillögur svæðis- og aðalskipulags voru kynntar frá 29. maí til og með 21. júní 2017. Alls bárust athugasemdir og/eða ábendingar frá 33 aðilum og þar af 12 lögbundnum umsagnaraðilum. Tillaga að breytingu á svæðisskipulagi hefur tekið nokkrum breytingum frá forkynningu. Tillagan byggir á greiningarvinnu COWI eins og hún birtist í lokaskýrslu dags. september 2017. Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins fjallaði um lokaskýrslu COWI og tillögu að breytingu á svæðisskipulaginu sínum þann 8. september 2017. Eftirfarandi var bókað: Með tilvísan í 3. mgr. 23. gr. skipulagslaga samþykkir svæðisskipulagsnefnd að leggja til við aðildarsveitarfélögin að samþykkja að auglýsa tillöguna eftir athugun Skipulagsstofnunar. Eins og fram kemur í samkomulagi sveitarfélaganna þá er ætlunin að ljúka skipulagsvinnu á árinu 2017.”
Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 19. september sl. gerði Hrafnkell Proppé svæðisskipulagsstjóri grein fyrir breytingartillögunni og ferli hennar fram til þessa. Á þeim fundi kom í ljós að ónákvæmni gætir í ofangreindri bókun svæðisskipulagsnefndar frá 8. september sl. og var afgreiðslu erindisins þess vegna frestað. Að virtu framangreindu tekur skipulags- og byggingarráð því bókun svæðisskipulagsnefndar hér upp og leiðréttir til samræmis við ákvæði VI. kafla skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi breytingartillögu á svæðisskipulagi í samræmi við 3.mgr. 23.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.