Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður hjá stjórnsýslu fundinn.
Endurskoðun skilmála deiliskipulagsins Vellir 6 er snýr að almenningssamgöngum við Hvannavelli. Athugasemdir bárust frá íbúum.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að svara framkomnum athugasemdum og bendir á að stoppistöð strætisvagna hefur verið þarna frá upphafi og tilkoma skýlisins er til að koma til móts við farþega í samræmi við aukna notkun á þessum stað sem talning sýnir.
Lögð fram lýsing vegna breytingu á aðalskipulagi samanber samþykkt ráðsins frá 9.11. s.l.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða lýsingu.
Lagt fram erindi Markaðsstofu Hafnarfjarðar dags. 17. október 2017 þar sem hvatt er til að farið verði í aðgerðir til að tryggja umferðaröryggi á svæðinu.
Lagt fram.
Ingvar og Kristján ehf sóttu 30.09.2016 um leyfi til að byggja 45 eininga gistiheimili samkvæmt teikningum Sigurðar Þorvarðarssonar dags. 25.09.2016 en skipulags- og byggingarráð synjaði því erindi 1.11. 2016.
Lögð fram breytt tillaga að deiliskiplagsbreytingu vegna Trönuhrauns 9 dags. 26. júlí 2017.
Skipulags- og byggingarráð vísar framlagðri tillögu umsækjanda til þeirrar deiliskipulagsvinnu sem nú er í gangi á reitnum Hraun vestur.
Tekin til umfjöllunar breyting á bílastæðum, aðkomu og skilmálum íbúðarhúsa í 2. áfanga.
Til upplýsinga.
Tekið fyrir að nýju erindi Arnars Skjaldarsonar sækir 17.02.2017 um að breyta deiluskipulagi í tvíbýli á lóðini samkv. uppdráttum Svövu Bjarkar Jónsdóttur 17.02.17.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum að grenndarkynna nýja tillögu dags. 30.05.2017 að breyttu deiliskipulagi á lóð við Hamarsbraut 5 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á lóð fyrir einbýlishús í lóð fyrir tvíbýlishús og færslu á bílastæðum á lóð. Breytt tillaga var grenndarkynnt frá 29.06.2017-10.08.2017. Athugasemdir bárust frá 10 aðilum.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum 22.11. s.l. að vísa málinu aftur til skipulags- og byggingarráðs.
Gert var stutt fundarhlé.
Skipulags- og byggingarráð frestar afgreiðslu málsins og felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð varðandi umferðar- og skólamál.
Tekið fyrir að nýju erindi 220 Miðbær ehf. dags. 23.6.2017 um að byggja 5 hæða hús með inndreginni, 5.hæð og inngarði fyrir hótel á efri hæðum og þjónustu á verslun á 1.hæð, samkvæmt teikningum Valdimars Harðarsonar dagsettar 22.6.2017. Skipulags- og byggingarráð vísaði erindinu hvað varðar bílastæðakjallara og kostnað vegna hans til bæjarráðs 3.10. s.l. Lögð fram afgreiðsla bæjaráðs frá 19.10. s.l. þar sem bæjarráð fellst á að ekki verði gerð krafa um bílakjallara undir Strandgötu 30 en leggur áherslu á að við endurskoðun á miðbæjarskipulaginu verði athugaðir möguleikar á bílakjallara undir núverandi bílastæðum í bænum.
Skipulags- og byggingarráð óskar eftir nánari skýringum á fyrirkomulagi aðkomu vegna rekstrarþátta hótelsins og staðsetningu bílastæða fyrir hreyfihamlaðra.
Lögð fram svör bæjarstjórnar Garðabæjar við innsendum athugasemdum og umsögnum.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að leggja fram drög að kæru á næsta fundi.
Lögð fram lokadrög skýrslu starfshóps um umhverfis- og auðlindastefnu en umhverfis- og framkvæmdaráð óskaði eftir umsögn um skýrsluna á fundi sínum 1.11. s.l.
Fulltrúar Samfylkingar, VG og Bjartrar framtíðar óska eftir umræðu um staðsetningu knatthúsa í Hafnarfirði.
Afgreiðslu frestað.
Fulltrúar Bjartrar Framtíðar, Samfylkingar og VG óska eftir því að fenginn verður óháður aðili, óháðra skipulagsfræðinga, sem mun koma með að lágmarki 3 staðsetningar innan bæjarmarkanna (íþróttavellir bæjarins eru hér undir) . Tillaga að verkefnalýsingu verður lögð fram að hálfu fulltrúar Bjartrar Framtíðar, Samfylkingar og VG á næsta fundi.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokks bendir á að í uppbyggingu fyrir knattspyrnu í Hafnarfirði hafi bæjarráð stofnað starfshóp úr öllum stjórnmálaflokkum í bæjarstjórn sem vann góða úttekt á möguleikunum fyrir knattspyrnuiðkun og skilaði af sér niðurstöðum. Í niðurstöðunni segir m.a. „Starfshópurinn telur heppilegast að möguleg bygging knatthús ætti að vera á íþróttasvæðum Hauka eða FH. Á íþróttasvæðum FH og Hauka er öll önnur aðstaða sem þarf til staðar utan vallarins sjálfs eins og búnings- og sturtuklefar, bílastæði og stjórnunaraðstaða, svo ekki sé minnst á starfsmenn. Sé byggt annarstaðar þarf að hafa allt slíkt inni í byggingarkostnaðinum og jafnframt yrði rekstur dýrari.“
Selið Fasteignafélag ehf. sækja 18.10.2017 um að fá að byggja gitiheimili á 2 hæðum skv. teikningum Guðmundar Gunnlaugssonar dags. 18.8.2017. Óskað er eftir að veitt verði leyfi til að hafa svalir á húsinu sem stangast á við gildandi deiliskipulagsskilmála en þar segir að húsin skulu öll vera innan byggingarreitar þ.m.t. svalir. Ósk umsækjanda stangast á við gildandi skilmála skipulagsins og því yrði að sækja um deiliskipulagsbreytingar.
Skipulags- og byggignarráð heimilar umsækjanda að fara í deiliskipulagsbreytingu á eigin kostnað.
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn Taper ehf um uppbyggingu á lóðinni.
Skipulags- og byggingarráð hafnar erindinu á sömu forsendum og um erindi uppbyggingar íbúðarhúsnæðis á Ásvöllum og Þorlákstúni.
Í umsögn skipulagsfulltrúa um erindi Hauka um breytingu á aðal- og deiliskipulagi og byggingu íbúðarhúsnæðis á Ásvöllum segir m.a. „Telji menn landið sem þeim var úthlutað í fyrstu of stórt og að ekki verði þörf á að nýta það undir íþróttir og íþróttatengda starfsemi, væri eðlilegast að afhenda þann hluta lóðarinnar aftur Hafnarfjarðarbæ. Verði horft til þess að fara í uppbyggingu íbúðahúsnæðis á svæðinu ætti það að vera alls ótengt íþróttasvæðinu og lóðin sett á almennan markað.” Í umsögn bæjarlögmanns um erindi Syðra Langholts um breytingu á deiliskipulagi Þorlákstúns og uppbyggingu íbúða segir m.a. ” Að virtu framangreindu verður ekki talið sveitarfélaginu sé unnt að taka ákvörðun um slíkar verulegar breytingar á skipulagi umræddrar lóðar, sem vissulega fæli í sér ráðstöfun á takmörkuðum gæðum í eigu sveitarfélagsins, án þess að gefa öðrum aðilum sama tækifæri að sækja um slík gæði. Þá leggur gildandi lóðarleigusamningur enga skyldu á sveitarfélagið um að verða við erindi lóðarhafa.“
Skipulags- og byggingarráð bendir á að mögulega geti lóðarhafi í samráði við Hafnarfjarðarbæ skipt upp lóðinni og skilað þeim hluta lóðar sem ekki er talin þörf fyrir vegna bílastæða við Tækniskólann.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 15. nóvember s.l.
Lagt fram til kynningar.