Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi og Ívar Bragason lögmaður hjá stjórnsýslu fundinn.
Teknar fyrir á ný hugmyndir VA arkitekta að uppbyggingu og þróun Hamraness sem nýbyggingarsvæðis. Fulltrúar VA arkitekta mættu til fundarins og kynntu.
Kynning.
Lagt fram erindi Bjargs íbúðafélags dags. 11. jan. 2018 þar sem óskað er eftir að fjölga íbúðum úr 42 í 54 í 3 húsum. Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 05.02.2018 er varðar skilmálabreytinguna.
Skipulags- og byggingarráð tekur neikvætt í erindið samanber umsögn skipulagsfulltrúa dags. 05.02.2018.
Á fundi skipulags- og byggingarráð þann 28.11.2018 óskuðu fulltrúar Samfylkingar, VG og Bjartrar framtíðar eftir umræðu um staðsetningu knatthúsa í Hafnarfirði. Afgreiðslu erindisins var frestað með vísan til þess að lögð yrði fram tillaga að verkefnalýsingu af hálfu fulltrúum Bjartrar Framtíðar, Samfylkingar og VG.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð um deiliskipulagsforsendur fyrir nýju knatthúsi í Kaplakrika.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins vísar til bókunar sinnar 28.11. s.l.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 3. október 2017 breytingu á deiliskipulagi fyrir Sörlasvæðið og að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsingatíma er lokið. Athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að gefa umsögn um framkomnar athugasemdir.
Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 8. apríl 2015 heimilaði skipulags- og byggingarfulltrúi uppsetningu markatöflu innan lóðar FH við Kaplakrika en vísaði jafnframt í samþykkt um skilti í lögsögu Hafnarfjarðar varðandi blikk og ljósmagn. Athugasemdir hafa verið gerðar við staðsettningu, hæð og gerð skiltis með vísan til samþykktra uppdrátt. Lögð fram samanburðargögn mælingarmans Hafnarfjarðar ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 05.02.2018.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu í samræmi við fyrirliggjandi umsögn dags. 05.02.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 23.01.2018 að afgreiðslu deiliskipulagsbreytingarinnar yrði lokið skv. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsstofnun gerði athugasemdir við breytinguna með vísan til 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þess efnis að lagfæra þyrfti texta deiliskipulagsins. Lagður fram breyttur deiliskipulagsuppdráttur í samræmi við athugasemdir Skipulagsstofnunar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti lagfærðan uppdrátt deiliskipulagsins og leggur til við bæjarstjórn: „Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir lagfærðan uppdrátt deiliskipulagsins með vísan til 1. mgr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að erindinu verði lokið með vísan til 3. mgr. skipulagslaga 123/2010“.
Krads og Teiknistofa Arkitekta Gylfi Guðjónssonar og félagar kynntu stöðu deiliskipulagsvinnunar fyrir svæðið Hraun vestur.
Tekið til umfjöllunar.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að hefja undirbúning að aðalskipulagsbreytingu vegna borgarlínu.
Með bréfi dags. 31. desember 2017 sækir forsætisráðuneytið um stofnun fasteignar (þjóðlendu), sbr. 14. gr. laga um skráningu og mat fasteigna, nr. 6/2001. Landssvæðið sem óskast stofnað er þjóðlenda samkvæmt úrskurði byggðanefndar í máli nr. 2/2004, dags. 31. maí 2006 og dómi Hæstaréttar Ísland í máli nr. 768/2009, dags. 11. nóvember 2010. Um þjóðlenduna fer eftir ákvæðum laga um þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta, nr. 58/1998. Umrædd þjóðlenda er innan staðarmarka Hafnarfjarðarkaupstaðar samkvæmt úrskurði óbyggðanefndar í máli nr. S-1/2011, dags. 20. júní 2014 og dómi Hæstaréttar Íslands í máli nr. 862/2016, dags. 16. nóvember 2017.
Afmörkun þjóðlendunnar: Land innan eftirfarandi marka, þ.e. Skógræktarsvæði norðan Krýsuvíkur en sunnan Garðakirkjulands er þjóðlenda: Frá Markargili í Undirhlíðum er farið norðaustur að Hæstaholti í Dauðadölum. Þaðan er dregin lína til suðurs með því að tekin er stefna af Húsfelli og þeirri stefnu fylgt frá framangreindu Hæstaholti á Dauðadölum að skurðarpunkti við dæmd norðurmörk Krýsuvíkur. Frá þeim skurðarpunkti ráða norðurmörk Krýsuvíkur. Frá þeim skurðarpunkti ráða norðurmörk Krýsuvíkur til vesturs að fyrrnefndu Markargili í Undirhlíðum.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti erindi forsætisráðuneytisins og leggur eftirfarandi tillögu fyrir bæjarstjórn: „Bæjarstjórn samþykkir umsókn forsætisráðuneytisins um stofnun þjóðlendu og felur umhverfis- og skipulagsþjónustu að annast stofnun þjóðlendunnar.“
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 8. nóvember 2017 breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 – 2025 i tengslum við gerð nýs deiliskipulags við Ásvallabraut. Skv. ákvæðum skipulagslaga 2. mgr. 30. gr þarf að kynna tillöguna áður en hún er samþykkt til auglýsingar. Búið er að kynna lýsingu fyrir almenningi og hagsmunaaðilum og fyrir liggur umsögn Skipulagsstofnunnar.
Kynning á aðalskipulagsbreytingunni og forsendur hennar hefur farið fram í almennri kynningu ásamt kynningu vegna nýs deiliskipulags Ásvallabrautar.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögur og að þær verði auglýstar skv. 1. mgr. 36. gr skipulagslaga 123/2010 og skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010 og gerir eftirfarandi tillögu til bæjarstjórnar Hafnarfjarðar: ‘Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir breytingu á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar dags. 12.05.2016, 2013-2025 og hún auglýst í samræmi við 1. mgr. 36.gr. laga 123/2010. Einnig er samþykkt að auglýsa tillögu deiliskipulagi aftur samhliða framangreindri aðalskipulagsbreytingu ásamt breytingum á skipulagsmörkum við Ásland 3 og Hlíðarþúfum skv. 1. mgr. 41. gr skipulagslaga 123/2010.
Lögð fram tillaga Arkitektastofanna Krads og Tripólí að deiliskipulagi Lækjargötu 2, Dvergsreits dags. 05.02.2018.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi og málsmeferð í samræmi við 1.mgr. 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Miðbæjarskipulag Hafnarfjarðar tekið til umræðu að nýju en það er að grunni til frá 2001 með seinni tíma breytingum. Afmörkun miðbæjarins er svæði sem afmarkast af Víkingastræti, Suðurgötu, Strandgötu og allt að safnahúsum við Vesturgötu. Lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að framhaldi verksins.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir áframhaldandi vinnu verksins í samræmi við tillögu skipulagsfulltrúa sem fram kemur í minnisblaði dags. 5. feb. 2018.
Svava Björk Jónsdóttir leggur inn fyrirspurn þann 25.01.2018 þar sem óskað er eftir stækkun á lóðinni Rauðhella 3 til norðurs og vesturs, en þegar er búið að byggja einhverjar byggingar utan lóðar til norðurs á Rauðhellu 3.
Afgreiðslu frestað.
Lagt fram erindi Önnu Maríu Karlsdóttur o.fl. f.h. Íshúss Hafnarfjarðar o.fl. dags. 01.02. 2018 varðandi aðgengi að svæðinu við smábátahöfnina, gamla íshúsið og Drafnarhúsið. Sambærilegt erindi var til umfjöllunar í október 2015.
Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfullrúa að skoða aðal- og deiliskipulag svæðisins með hliðsjón af gangandi umferð á svæðinu.
HS Veitur hf. Brekkustíg 36, 260 Reykjanesbæ óskuðu eftir heimild til að auglýsa tillögu að deiliskipulagi lóðar við Hamranes vegna tengivirkis samkvæmt uppdrætti Batterísins arkitekta dags. 03.11.2017. Skipulags- og byggingarráð heimilaði auglýsingu á fundi sínum þann 14.11.2017. Deiliskipulagið var auglýst frá 20.12.2017-01.02.2018. Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að afgreiðslu deiliskipulagsins verði lokið með vísan til 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á fundi skipulags- og byggingarráð þann 18.12.2017 var samþykkt breyting á skilmálum íbúðarhúsa í 2. áfanga Skarðshlíðarhverfis. Breytingin var auglýst frá 21.12.2017-01.02.2018. Engar athugasemdir bárust.
Reglur um birtingu gagna með fundargerðum frá 2012 teknar til umfjöllunar.
Til upplýsinga.
Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrú 24.1. 2018 vísaði eftirfarandi erindi til skipulags- og byggingarráðs: „Óðalhús ehf. sækir um að byggja raðhús samkvæmt teikningum Friðriks Ólafssonar dags. 18.12.2017.“ Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 05.02.2018.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir minnisblað skipulagsfulltrúa dags. 05.02.2018 og fellst ekki á þau frávik frá skipulagi sem óskað er eftir eins og þau liggja fyrir.
Tekið fyrir að nýju erindi 220 Miðbær ehf. dags. 23.6.2017 um að byggja 5.hæða hús með inndreginni, 5.hæð og inngarði fyrir hótel á efri hæðum og þjónustu á verslun á 1.hæð samkvæmt teikningum Valdimars Harðarsonar dags. 22.6.2017 og 22.01.2018.
Skipulags- og byggingarráð fellst á framlagða uppdrætti með vísan til skilmála.
JM veitingar ehf. sótti 16.1.2018 um leyfi að setja timbur sjólvegg 1,80cm á hæð, samkvæmt teikningum Björgvins Snæbjörnssonar dagsettar 30.11.2017. Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa synjaði erindinu með hliðsjón af ákvæði um gangstéttir við hús í lóðarleigussamningi. Að beiðni fulltrúa VG er erindið tekið fyrir.
Til umfjöllunar.
Lögð fram fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 26.1.2018.
Lagt fram til kynningar. 7. liður fundargerðarinnar, Umferðarflæði um Garaðhraun. Fyrirhuguð lokun á vegtengingu við Herjólfsbraut, tekinn til umfjöllunar.
Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 24.1. s.l.
Lagt fram til kynningar.