Skipulags- og byggingarráð

14. ágúst 2018 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 654

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson aðalmaður
  • Sigurður Pétur Sigmundsson aðalmaður
  • Einar Pétur Heiðarsson varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi, Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslu og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingafulltrúi, Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslu og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.

  1. Almenn erindi

    • 1808180 – Fornubúðir 5, skipulagsbreyting

      Með úrskurði ÚUA þann 12. júlí s.l. var samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Fornubúða 5 felld úr gildi. Jafnframt var samþykkt byggingarfulltrúans í Hafnarfirði frá 27 mars s.l. á umsókn um byggingu skrifstofu- og rannsóknarhúss sem tengist sjávarútvegi felld úr gildi.

      Með vísan til úrskurðar ÚUA frá 12 júlí s.l. og 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er lögð fram breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 er varðar breytingu á greinagerð aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 um landnotkunarflokk H. Lýsing skipulagsverkefnisins dags 19.07.2018 samanber 1. mgr. 30 gr. sömu laga var samþykkt á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 20.07.2018. Jafnframt lagt fram deiliskipulag lóarinnar Fornubúða 5 dags. 10.08.2018.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 og deiliskipulagi Fornubúða 5 dags. 10.08.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar deiliskipulag Fornubúða 5.

      Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarða:
      “Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 og deiliskipulagi Fornubúða 5 dags. 10.08.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og í samræmi við 41. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar deiliskipulag Fornubúða 5.”

    • 1805076 – Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur

      Lögð fram breyting með vísan til 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes.
      Skipulagslýsing dags. 22. maí 2018 var samþykkt 10.07.2018 í skipulags- og byggingarráði. Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 19.07.2018 um ákvörðun á matskyldu.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018. Jafnframt er samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.

      Skipulags- og byggingarráð leggur til við bæjarstjórn Hafnarfjarðar:
      “Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 08.08.2018 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010 er varðar breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025.”

    • 1804119 – Brattakinn 12, breyting á skipulagi

      Atli Steinn Jónsson óskar eftir með umsókn dags. 6.4. 2018 að fara í deiliskipulagsbreytingu. Breytingin nær til lóðarinnar við Bröttukinn 12 og felst í að komið verði fyrir auka stæði innan lóðar. Með erindinu fylgja skissur er sýna fyrirhugaða framkvæmd.

      Skipulags- og byggingarráð synjar erindinu þar sem það samræmist ekki gildandi deiliskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að gera heildstæða úttekt á bílastæðamálum í Kinnahverfinu.

    • 1606249 – Sveitarfélög, fasteignaskattur o.fl. á mannvirki, ferðaþjónusta, ábendingar

      Lögð fram greinagerð starfshóps bæjarráðs um mótun framtíðarstefnu á uppbyggingu ferðaþjónustu.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu í samræmi við tillögur starfshóps um framtíðarstefnu á uppbyggingu ferðaþjónustu.

    • 1701084 – Hamranes I, nýbyggingarsvæði

      Teknar fyrir á ný hugmyndir VA arkitekta að uppbyggingu og þróun Hamraness sem nýbyggingarsvæðis.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að vinna greinagerð er varðar framvindu deiliskipulagsins og úthlutunarleiðir.

    • 1806391 – Brenniskarð 1-3, fyrirspurn

      Þrastarverk ehf. leggja fram fyrirspurn um að byggja fjölbýlishús á lóðinni samkvæmt meðfylgjandi teikningum Jóns Guðmundssonar dags. 19.07.2017. Sjá nánar á meðfylgjandi bréfi með umsókn.
      Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa vísaði fyrirspurninni til skipulags- og byggingarráðs á fundi þann 25.7. s.l.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinargerð um skipulagsskilmál varðandi bílakjallara og bílastæði.

    • 1602144 – Þéttingarsvæði, deiliskipulag

      Tekin til umræðu deiliskipulagsvinna á þéttingarsvæðum.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að yfirfara fyrirliggjandi þéttingarskýrslu auk annarra svæða með hliðsjón af hugsanlegri uppbyggingu.

    • 0710169 – Óla Run tún, hugmyndasamkeppni.

      Uppbygging á Óla Run túni tekin til umfjöllunar.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að hefja vinnu við skipulagslýsingu í samræmi við 1. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    • 1808075 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2019 og 2020-2022

      Lagt fram minnisblað vegna fjárhagsáætlunar 2019.

      Lagt fram til kynningar.

    Fyrirspurnir

    • 1808042 – Einhella 1,Fyrirspurn

      Strókur ehf. óskar eftir að samnýta lóðirnar við Álfhellu 2 og Einhellu 1 og 3. Fyrirhuguð samnýting lóðanna gæti hent starfsemi sem Vegagerð Ríkisins.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa áframhaldandi úrvinnslu erindisins með hliðsjón af bréfi og tillögu Zeppilín arkitekta dags. 06.08.2018 og 08.08.2018.

    Fundargerðir

    • 1807001F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 712

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 4.7. s.l.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1807007F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 713

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 11.7. s.l.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1807010F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 714

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 18.7. s.l.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1807012F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 715

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 25.7. s.l.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1807013F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 716

      Lögð fram fundargerð afgreiðslufundar frá 1.8. s.l.

      Lagt fram til kynningar.

Ábendingagátt