Skipulags- og byggingarráð

6. desember 2018 kl. 13:00

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 665

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson aðalmaður
  • Jón Garðar Snædal Jónsson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Hildur Bjarnadóttir byggingarfulltrúi og Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt.

  1. Almenn erindi

    • 1808180 – Fornubúðir 5, skipulagsbreyting

      Lögð fram á ný eftir að athugasemdafresti lauk þann 4.12. s.l. breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er varðar breytingu á landnotkunarflokki H og breytt deiliskipulag Fornubúða 5. Erindin voru samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 19.09.s.l. með eftirfarandi bókunum:
      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 19.9.2018 framlagða tillögu, dags. 08.08.2018/lagf. 14.9.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 og að málsmeðferð verði í samræmi við 31. gr. skipulagslaga 123/2010. Breytingin felst í að ákvæði um Suðurhöfn, hafnarsvæði (landnotkunarflokk H), verði ítarlegri.

      Bæjarstjórn Hafnarfjaðar samþykkti auk þess á fundi sínum þann 19.9.2018 framlagða tillögu, dags. 10.08.2018/lagfr. 13.09.2018, að breytingu á deiliskipulagi Suðurhafnar í Hafnarfirði vegna lóðarinnar við Fornubúðir 5. Jafnframt var samþykkt að málsmeðferð verði í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í deiliskipulagsbreytingunni felst orðalagsbreyting í greinargerð til samræmis við breytingu á greinargerð aðalskipulags Hafnarfjarðar 2013-2025 og eru aðalskipulagsbreytingin og deiliskipulagsbreytingin auglýstar samhliða, sbr. 2.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

      Frestur til að skila inn athugasemdum var til 4.12.2018. 67 athugasemdir bárust.

      Stutt fundarhlé var gert við afgreiðslu þessa máls

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman greinagerð/svör við framkomnum athugasemdum.

      Fulltrúar Bæjarlistans, Miðflokksins, Samfylkingarinnar og Viðreisnar óska eftir frestun á lið 1 málsnúmer 1808180. Fornubúðir 5, skipulagsbreyting vegna þess að fylgiskjal með athugasemdum íbúa við aðal- og deiluskipulagasbreytingu lá ekki fyrir fyrr en sama dag og fundurinn fer fram. Almenna reglan í samþykktum bæjarins er að dagskrá funda skuli liggja fyrir með amk. sólarhringsfyrirvara, en í því felst að nauðsynleg fundargögn fylgi með fundarboði. Athugsemdir íbúa við breytingarnar eru mikilvægt innlegg í umræðu þessa máls og ráðinu ber að kynna sér vel þau sjónarmið sem þar koma fram. Tíminn sem fulltrúar í ráðinu hafa haft til þess að kynna sér þær fjölmargar athugasemdir sem bárust frá íbúunum er of skammur og því er farið fram á frestun á þessum lið.

      Fulltrúar Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks og óháðra bóka:
      Engar forsendur eru fyrir frestun á þessum tímapunkti. Engar formlegar ákvarðanir verða teknar á fundi þessum. Nú mun skipulagsfulltrúi taka saman svör við framkomnum athugasemdum og leggja fram á næsta fundi ráðsins sem fram fer á mánudaginn. Þá mun ráðið taka formlega afstöðu til málsins, til samþykktar eða synjunar.

    • 1805076 – Hamraneslína, bráðabirgðaflutningur

      Lögð fram á ný eftir að athugasemdafresti lauk þann 4.12. s.l. breyting á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes. Erindið var samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 19.09.s.l. með eftirfarandi bókun:

      Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum þann 19.9.2018 að endurauglýsa framlagða tillögu, dags. 8.8.2018/lagf. 13.9.2018, að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025, er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes og að málsmeðferð verði í samræmi við 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

      Frestur til að skila inn athugasemdum var til 4.12.2018. Engar athugasemdir bárust.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir framlagða breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 8.8.2018/lagf. 13.9.2018 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes. Jafnframt samþykkir skipulags- og byggingarráð að málinu verði lokið í samræmi við 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til bæjarstjórnar með eftirfarandi tillögu til bókunar:

      Bæjarstjórn samþykkir framlagða breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 dags. 8.8.2018/lagf. 13.9.2018 er varðar færslu á háspennulínu við Hamranes og að málinu verði lokið í samræmi við 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    • 1511358 – Stöðuleyfi, reglur

      Tekið fyrir að nýju endurskoðaðar reglur um stöðuleyfi.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir fyrirliggjandi reglur um stöðuleyfi og vísar erindinu til afgreiðslu Bæjarstjórnar.

Ábendingagátt