Skipulags- og byggingarráð

22. september 2020 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 714

Mætt til fundar

  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Sigurður Pétur Sigmundsson aðalmaður
  • Óli Örn Eiríksson áheyrnarfulltrúi
  • Gísli Sveinbergsson áheyrnarfulltrúi
  • Kristján Jónas Svavarsson varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragason lögmaður á stjórnsýslusviði.

  1. Almenn erindi

    • 2001456 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2021 og 2022-2024

      Lagðar fram upplýsingar um forsendur og tímaáætlun fjárhagsáætlunar 2021-2024.

      Lagt fram til umræðu.

    • 2005141 – Kaldársel, Kaldárbotnar og Gjárnar, deiliskipulagsbreyting

      Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Kaldársels, Kaldárbotna og Gjárna. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi og stækkun bílastæða.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Kaldársels, Kaldárbotna og Gjárna og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2009385 – Sléttuhlíð, breyting á skipulagsmörkum

      Lögð fram tillaga að breyttum skipulagsmörkum deiliskipulags Sléttuhlíðar vegna breytinga á deiliskipulagi Kaldársels, Kaldárbotna og Gjárna.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttum skipulagsmörkum Sléttuhlíðar og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2007341 – Sléttuhlíð, deiliskipulagsbreyting

      Lagt fram erindi stjórnar félags sumarhúseiganda í Sléttuhlíð dags. 25.6.2020 þar sem óskað er eftir endurskoðun á byggingarskilmálum gildandi deiliskipulags Sléttuhlíðar.

      Erindi Félags sumarhúsaeigenda í Sléttuhlíð lagt fram. Skipulags- og byggingarráð óskar eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs.

    • 2001526 – Reykjanesbraut, tvöföldun, aðalskipulagsbreyting

      Tekið til umræðu.

      Farið yfir stöðu málsins.

    • 1809389 – Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2013-2025, endurskoðun

      Tekið til umræðu. Lögð fram endurskoðuð lýsing m.t.t. umsagna.

      Tekið til umræðu.

    • 1802033 – Hraun vestur, aðalskipulagsbreyting

      Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar dags. 18.9.2020.

      Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að vinna áfram að málinu í samræmi við leiðbeiningar Skipulagsstofnunar og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

      Fulltrúar Viðreisnar, Bæjarlistans og Samfylkingar bóka: Ábendingar Skipulagsstofnunar staðfesta þau varnaðarorð sem fulltrúar Viðreisnar, Bæjarlistans og Samfylkingar hafa haft varðandi þetta verkefni undanfarin misseri. Deiliskipulag fyrsta áfanga við Hraunin víkur frá faglegu undirbúningsferli rammaskipulags hverfisins og fylgir ekki þeirri heildarsýn og þeim gæðaviðmiðum sem voru sett fram þar. Nær allar athugasemdir Skipulagsstofnunnar má rekja til þeirrar ákvörðunar að víkja frá hugmyndafræði rammaskipulagsins.

      Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
      Meirihlutinn leggur áfram áherslu á að fyrirliggjandi deiliskipulagstillaga opnar á fjölbreytta byggð íbúðar-, verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Tillagan fellur einnig vel að markmiðum svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins þar sem meginstefnan er uppbygging og þétting byggðar við miðkjarna og önnur samgöngumiðuð þróunarsvæði og að hlutfall íbúðabyggðar á þeim svæðum vaxi úr 30% í 66%. Landsvæðið liggur að fyrirhugðuðum samgönguás Borgarlínu sem styrkir markmið svæðisskipulagsins og þéttingu byggðar. Þá er deiliskipulagstillagan í samræmi við þá framtíðarsýn og hugmyndir sem settar eru fram í rammaskipulagsdrögum fyrir Hraun vestur. Í greinargerð aðalskipulagsins dags. 20.04.2020 er gerð góð grein fyrir leik- og grunnskólum ásamt opnum grænum svæðum. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á öllu svæðinu, Hraun vestur, geti tekið allt að 20 árum og gera má ráð fyrir ýmsum breytingum á því tímabili er varðar samgöngur og samfélag sem getur haft áhrif á skipulag framtíðar. Að þessu sögðu teljum við rétt og mikilvægt að brugðist verði við minniháttar leiðbeiningum Skipulagsstofnunar.

    • 1909118 – Hlíðarbraut 10, þétting byggðar

      Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar varðandi deiliskipulagsbreytingu Hlíðarbrautar 10.

      Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að svara framkomnum athugasemdum Skipulagsstofnunar.

    • 1110006 – Vesturbær, endurgert og nýtt deiliskipulag

      Tekið til umræðu. Gerð grein fyrir stöðu verkefnisins.

      Tekið til umræðu.

    • 1701084 – Hamranes I, nýbyggingarsvæði

      Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2007683 – Hraunhvammur 8, stækkun á lóð

      Á fundi bæjarráðs þann 16. júlí var tekið jákvætt í fyrirspurn er varðar lóðarstækkun við Hraunhvamm 8. Umsókn um lóðarstækkun barst 27.7.sl. og var erindið grenndarkynnt þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á ummræddu svæði. Nágrannar staðfesta með undirritun sinni er barst 10.9.2020 að þeir gera ekki athugasemd við breytta stærð lóðar.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir umbeðna lóðarstækkun og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 1701175 – Selhraun suður, breyting á deiliskipulagi

      Lagt fram erindi lóðarhafa Norðurhellu 13 um breytingu á skipulagi lóðarinnar.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman umsögn vegna erindisins.

    • 2006235 – Hjallabraut, bílastæði

      Tekið til umræðu bílastæðamál við Hjallabraut.

      Tekið til umræðu.

    • 1801074 – Smyrlahraun 41a

      Bæjarráð samþykkti þann 14.3.2020 að í stað byggingar leikvallar/leikskóla á lóðinni yrði byggður búsetukjarni fyrir fatlað fólk og vísaði til afgreiðslu umhverfis- og skipulagssviðs. Fjölskylduráð óskaði eftir lóðinni fyrir búsetukjarna þann 14.9.2018.

      Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu.

    Fyrirspurnir

    • 2008397 – Íþróttasvæði 7, Hvaleyrarvatnsvegur, fyrirspurn, gokartbraut

      Erindi Ragnheiðar R. Vernharðsdóttur og Tommy Ravnaas þar sem óskað er eftir leyfi til byggingar gokartbrautar á fyrirfram skipulögðu íþróttasvæði (íþ7) í Hafnarfirði er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa.

      Skipulags- og byggingarráð óskar umsagnar íþrótta- og tómstundafulltrúa Hafnarfjarðar auk þess að fela skipulagsfulltrúa að ræða við umsóknaraðila.

    • 1811412 – Ólöglegt húsnæði

      Sigurður P. Sigmundsson fulltrúi Bæjarlistans í ráðinu óskar eftir upplýsingum um stöðu á úttekt SSH á ólöglegu húsnæði.

      Boðað hefur verið til samráðsfundar þann 22.9. nk. þar sem heilbrigðiseftirlitið, fulltrúar slökkviliðsins og byggingarfulltrúar á höfuðborgarsvæðinu ræða leiðir til að skerpa á eftirliti með þessari starfsemi og hvernig embættin geta unnið saman að farsælli lausn málsins.

      Fulltrúi Bæjarlistans leggur fram eftirfarandi bókun: Það er mjög mikilvægt að sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu láti gera faglega úttekt á búsetu fólks í ólöglegu húsnæði. Undanfarin misseri hafa því miður orðið alvarlegir brunar í ólöglegu húsnæði þar sem fólk hefur haft búsetu, nú síðast á Bergstaðarstræti í Reykjavík þar sem þrír einstaklingar létust. Það gengur ekki að hver vísi á annan varðandi ábyrgð þegar slíkir atburðir verða. Sveitarfélögin verða að taka höndum saman og beita sér fyrir úrbótum hvað varðar búsetuleyfi, byggingarleyfi, skráningu íbúa, öryggismál, eftirlit og annað sem við á.

    • 1906222 – Skarðshlíð, framkvæmdir

      Sigurður P. Sigmundsson fulltrúi Bæjarlistans í ráðinu óskar eftir uppfærslu á upplýsingum sem lagðar voru fram á 680. fundi ráðsins vegna fyrirspurnar um úthlutunarskilmála og framkvæmdir í Skarðshlíð. Samantekt dags. 18.9.2020 lögð fram.

      Fulltrúar Bæjarlistans, Samfylkingar og Viðreisnar leggja fram eftirfarandi bókun:
      Í samanburði við önnur stærri sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hefur Hafnarfjörður setið eftir hvað varðar uppbyggingu íbúðahúsnæðis á undanförnum árum.
      Samkvæmt framangreindum upplýsingum var lóðum með byggingarheimildum fyrir 221 íbúð úthlutað í Skarðshlíð haustið 2016. Nú fjórum árum seinna eru einungis hafnar framkvæmdir við 40% íbúðanna.
      68 íbúðir eru á byggingarstigi 2 þ.e. komnar með sökkul og 19 íbúðir á byggingarstigi 4 þ.e. orðnar fokheldar. Á árunum 2017 ? 2020 hefur 139 íbúðum til viðbótar verið úthlutað í Skarðshlíð og hefur lokaúttekt einungis farið fram á 19 þeirra.
      Þetta er dapurleg tölfræði sem núverandi meirihluti bæjarstjórnar ber fulla ábyrgð á.

      Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:
      Meirihlutinn hefur unnið ötullega að því að skipuleggja nýbyggingarsvæði ásamt þéttingarreitum. Nú þegar rúm tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu hefur lóðum undir mörg hundruð íbúðir verið úthlutað, m.a. í Skarðshlíð og Hamranesi. Framkvæmdir fara að hefjast í Hamranesi, en þar er nú unnið við gatnagerð. Ánægjulegast er að sjá hve vel gengur við uppbyggingu í Skarðshlíðinni þar sem allt fór á fljúgandi ferð þegar raflínurnar voru loks færðar og framkvæmdir við Ásvallabraut voru samþykktar og fóru í framkvæmd. Við Hafnfirðingar munum sjá kröftuga uppbyggingu íbúðarhúsnæðis víðsvegar um bæinn á næstu mánuðum. Staðreyndirnar tala sínu máli.

    Fundargerðir

    • 2009005F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 810

      Lögð fram fundargerð 810 fundar.

    • 2009013F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 811

      Lögð fram fundargerð 811 fundar.

Ábendingagátt