Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt og Ívar Bragason bæjarlögmaður.
Kynnt frumathugun á byggingarheimildum á reit 1.
Tekið til umræðu.
Tekin til umræðu á ný tillaga að uppbyggingu að Strandgötu 11-13.
Lagt fram til kynningar.
Kynntar frumhugmyndir að endurskoðun rammaskipulags frá 2018.
Farið yfir stöðu skipulagsvinnu vesturbæjar. Skipulagshöfundar mæta til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar Þórhildi Þórhallsdóttur og Áslaugu Traustadóttur frá Landmótun fyrir kynninguna.
Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Haukasvæðisins. Breytingin gerir ráð fyrir færslu og snúningi á æfingarvelli, breytingu á gönguleiðum, girðingum. Gerð er grein fyrir staðsetningu fornleifa.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Haukasvæðis og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn. Málsmeðferð fari skv. 43. grein skipulagslaga.
Hugmyndir að uppbyggingu teknar fyrir á ný. Jafnframt lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa varðandi uppbyggingaráform og áframhaldandi vinnu.
Tekin til umræðu á ný umferðarmál í Norðurbæ vegna lokunar gamla Álftanesvegar.
Erindi Gunnlaugs Björns Jónssonar fh. lóðarhafa er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Sótt er um skiptingu á lóð í tvær, annarsvegar 698,8 m2 og hinsvegar 526.2 m2. Í dag er íbúðarhús og verkstæðisbygging á lóðinni sem er 1224,9 m2 að stærð. Verkstæðisbyggingunni verður breytt í íbúðarhús og og er byggingarreitur fyrir allt að 20 m2 viðbyggingu sunnan hússins. Að teknu tilliti til horfinnar 6,5 m2 skúrbyggingar norðan hússins verður stækkunin 13, 5 m2. Kvöð er um aðkomu gegnum lóð núverandi íbúðarhúss.
Skipulags- og byggingarráð óskar umsagnar skipulagsfulltrúa.
Umsókn Kristins Ragnarssonar fh. lóðarhafa er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Sótt er um breytingu á byggingarreit lóðarinnar.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt i að byggingin verði á einni hæð en fella skal byggingarreit að heildarskipulagi svæðisins.
Lagt fram erindi stjórnar Húsfélags Hlíðarþúfna dags. 19.3.2021 er varðar starfsemi Villikatta í Hlíðarþúfum. Stjórn Húsfélagsins gerir athugasemd við starfsemina og telur að hún sé á skjön við skilmála gildandi aðal- og deiliskipulags svæðisins sem og að henni fylgi ónæði.
Skipulags- og byggingarráð óskar umsagnar umhverfis- og skipulagssviðs.
Þann 23.03. leggur Jóna Guðrún Jóhannsdóttir inn fyrirspurn vegna þakhalla í Sléttuhlíð. Erindið var tekið fyrir á afgreiðslufundi og bókun fundarins var: í bréfi dags. 4. júní sl. óskaði félag sumarhúsaeigenda í Sléttuhlíð eftir að gerðar yrðu breytingar á gildandi deiliskipulagi fyrir svæðið þar sem m.a. yrði gerð breyting á þakhalla. Á fundi skipulags- og byggingarráðs þann 22. september sl. var erindið tekið fyrir og óskað eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs vegna málsins. Á fundi skipulags-og byggingarráðs þann 6. október sl var umrædd umsögn lögð fram og kom fram að verulegir vankantar væru á að teikningum hafi verið skilað inn fyrir sumarhús í Sléttuhlíð einnig kom fram að ekki sé ljóst hvernig staðið sé að skolpmálum á svæðinu. Skipulags- og byggingarráð fól umhverfis- og skipulagssviði að leggja fram gögn um stöðu samþykktra byggingarnefndarteikninga svo og ástands á fráveitu/rotþróm í Sléttuhlíð. Afgreiðslu erindis var frestað þar til umbeðin gögn liggja fyrir. Þar sem breyting á þakhalla kallar á breytt deiliskipulag og með vísun í bókun ráðsins er ekki hægt að verða við erindinu að svo stöddu. Þann 13.4.2021 óska Jóna G. Jóhannsdóttir og Þorgils Ámundason eftir að erindið verði tekið fyrir í skipulags- og byggingarráði.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina og heimilar umsækjanda að hefja vinnu við breytt deiliskipulag lóðarinnar á sinn kostnað.
Fyrirspurn Kristins Ragnarssonar dags. 20.3. sl. er vísað til skipulags- og byggingarráðs frá afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa. Óskað er eftir að fara í deiliskipulagsbreytingu á Skarðshlíð 2. áfanga við lóðina að Drangsskarði 8. Í breytingunni felst að: byggingarreit er breytt og hann stækkaður. Í stað tvíbýlishúss verði komið fyrir parhúsi á lóðinni með einhalla eða flötu þaki. Byggingarmagn helst óbreytt.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í fyrirspurnina en bendir á að sýna skal uppbrot íbúðahluta í samræmi við aðliggjandi byggð.
Hafsteinn Hilmarsson fh. Gluggasmiðjan innflutningur ehf. óskar þann 16.4.2021 eftir að fyrirspurn dags. 25.3.2021 er snýr að merkingu að Steinhellu 17a sé tekin fyrir í skipulags- og byggingarráði. Um er að ræða merkingu á gafl hússins sem snýr að Reykjanesbraut með nafni og upplýsingum um vöruúrval á svipaðan máta og Geymsla 1. Tekið var neikvætt í fyrirspurnina á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa þann 30.3.sl. með vísan til “Samþykktar um skilti í lögsögu Hafnarfjarðar”, sem kveður á um hámark 6m að lengd, 9 fm að flatarmáli.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið til reynslu í eitt ár.
Lögð fram fundargerð 831 fundar.