Skipulags- og byggingarráð

24. ágúst 2021 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 740

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson aðalmaður
  • Óli Örn Eiríksson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragson bæjarlögmaður.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Ívar Bragson bæjarlögmaður.

  1. Almenn erindi

    • 1110006 – Vesturbær, endurgert og nýtt deiliskipulag

      Farið yfir stöðu skipulagsvinnu vesturbæjar. Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna drög að deiliskipulagi ásamt greinargerð.

      Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.

    • 2105289 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2022 og 2023-2025

      Tekið til umræðu. Guðmundur Sverrisson mætir til fundarins.

      Lagt fram til kynningar.

    • 1604079 – Húsnæðisáætlun

      Lögð fram endurskoðuð húsnæðisáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar. Ráðgjafi KPMG fer yfir áætlunina.

      Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:

      Það er ánægjulegt að húsnæðisáætlun liggi nú fyrir. Áætlunin er unnin í góðu samstarfi og byggir hún m.a. á upplýsingum frá bæjarfélaginu sjálfu, Hagstofu Íslands, Þjóðskrá Íslands og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Hér er um að ræða mikilvægt verkfæri sem getur gefið raunverulega mynd af stöðu mála hverju sinni. Hún gefur okkur einnig tækifæri til að greina framboð og eftirspurn eftir mismunandi húsnæðisformum og setja okkur áætlun um það hvernig bregðast skuli við í nútíð og framtíð; bæði þegar kemur að skipulagi nýrra hverfa og á framtíðarsvæðum. Því er mikilvægt að áætlunin verði endurskoðuð reglulega og eftir þörfum.

      Núverandi meirihluta er full alvara í því verkefni að tryggja íbúum bæjarfélagsins og framtíðar íbúum fjölbreytt búsetuúrræði og góða blöndu húsnæðis. Það má m.a. sjá með því að nefna uppbyggingu Bjargs íbúðafélags á 150 íbúðum í Hamranesi og þau samningsmarkmið sem samþykkt voru fyrir Hraun vestur, Gjótur í bæjarráði þann 17. janúar 2019. Þar koma eftirfarandi markmið m.a. fram:

      -Tryggja þarf blandaða byggð, þar sem 15-20% íbúða séu til þeirra sem eru að kaupa/leigja með áherslu á minni og ódýrari íbúðir.
      -Lóðarhafar skuldbinda sig að leita eftir samstarfi við félög sem sérhæfa sig í sérstökum búsetaréttaríbúðum og leiguíbúðum.
      -Ákveðið hlutfall íbúða verði leiguíbúðir með kaupréttarákvæði, horft verði til þess hóps á leigumarkaði sem ekki kemst í gegnum greiðslumat.
      -Tryggt verði að Hafnarfjarðarbær fái kauprétt á allt að 4,5% íbúða á svæðinu undir félagslegt húsnæði.

      Við þetta má bæta að sérstök áhersla hefur verið lögð á að tryggja íbúðir fyrir alla í þeirri miklu uppbygginu sem nú er hafin í Hamranesi; uppbyggingu skóla, hjúkrunarheimilis og á tengdri þjónustu.

      Fulltrúi Samfylkingarinnar bókar eftirfarandi: Það vekur athygli að í skýrslu um húsnæðisáætlun Hafnarfjarðar er ekki minnst einu orði á þá fólksfækkun sem var á síðasta ári í Hafnarfirði og var í fyrsta skiptið síðan 1939. Þetta gerist lengst af í góðæri og þegar mikil uppbygging á sér stað í nágrannasveitarfélögum okkar. Ekkert lát er á fækkuninni, en samkvæmt upplýsingum frá þjóðskrá fækkaði íbúum um 154 frá 1. des 2020 til 1. ágúst 2021. Það er ljóst að það þarf að lyfta Grettistaki í byggingu íbúða í Hafnarfirði til að snúa við þessari þróun.

      Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Bæjarlistans þakka KPMG fyrir vandaða skýrslu.

      Hálfu ári fyrir lok kjörtímabils er uppskeran rýr, fáar íbúðir í byggingu og fremur einhæf uppbygging framundan.

      Einungis 8% íbúða í Hafnarfirði eru á vegum húsnæðisfélaga eða á leigumarkaði en æskilegt væri að þetta hlutfall væri nær 20%. Það er ekkert í kortunum sem bendir til þess að þetta hlutfalli sé að hækka. Stöðugur húsnæðismarkaður kallar á öflugt framboð af húsnæði á vegum húsnæðisfélaga sem skapar stöðugleika og minnkar sveiflur.

      Þá er áhyggjuefni að stór hluti framtíðaruppbyggingar er á jaðri byggðar og illa tengdur við almenningssamgöngur sem mun auka akstur og þar með útblástur gróðurhúsalofttegunda til viðbótar við að auka tafatíma í umferð. Það er neyðarástanda í loftslagsmálum og ekki hyggilegt að framtíðaruppbygging sé til þess að auka vandann frekar en að draga úr honum.

      Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar bóka eftirfarandi:

      Lyft hefur verið grettistaki í uppbyggingu íbúða hér í Hafnarfirði á yfirstandandi kjörtímabili og má þar helst nefna hundruði íbúða í Hamranesi, þar sem uppbygging er nú þegar hafin, við Hraun vestur-Gjótur, Hjallabraut, Hrauntungu og Flensborgarhöfn svo dæmi séu tekin. Auk þess gengur skipulagsvinna við Ásland 4 mjög vel, en þar er gert ráð fyrir 480 íbúðum – mest megnis sérbýli í bland við lítil fjölbýli. Það kemur spánskt fyrir sjónir að minnihlutinn skuli auk þess sérstaklega telja það áhyggjuefni að stór hluti framtíðaruppbyggingar sé á jaðri byggðar og illa tengdur almenningssamgöngum.

      Hraun vestur – Gjótur, er hluti af mjög vænlegu byggingarlandi og var nefnt í upptalningu okkar hér að ofan. Þar er fyrirhuguð byggð, 490 íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Aðal- og deiliskipulag liggur fyrir og gert er ráð fyrir því að framkvæmdir hefjist nú á næstu mánuðum. Þeirri skynsamlegu og kröftugu uppbygginu hefur Samfylkingin, Viðreisn og Bæjarlistinn ítrekað lagst gegn; lagst gegn uppbyggingu á besta stað við samgönguás Borgarlínunnar.

      Svona er þetta nú. Allt niðurrifstal Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Bæjarlistans í skipulags- og byggingarráði er á sandi byggt. Staðreyndin er sú að það er bjart framundan hér í Hafnarfirði og íbúum mun fjölga svo um munar á næstu mánuðum og árum annars vegar á þegar byggðum svæðum, sem eru að taka rökréttum breytingum og að þróast í takt við tímann, og hins vegar á nýbyggingarsvæðum sem loks hafa opnast. Allt er þetta í samræmi við markmið svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins.

      Fulltrúar Viðreisnar, Bæjarlistans og Samfylkingarinnar bóka eftirfarandi:

      Málflutningur meirihlutans er á þann veg undanfarna mánuði er að það sé bjart framundan í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis. Tölurnar tala sínu máli og því miður er staðreyndin sú að lítið er byggt í Hafnarfirði miðað við nágrannasveitarfélögin og íbúum heldur því miður áfram að fækka í Hafnarfirði.

    • 2103477 – Hnoðraholtslína, jarðstrengur

      Tekin til umræðu lega Hnoðraholtslínu með vísan til skipulagsvinnu sem hafin er við Ásland 4 og 5.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Landsnet um að setja Hnoðraholtslínu í jörð vegna skipulagsvinnu við Ásland 4 og 5. Erindinu er jafnframt vísað til fjárhagsáætlunargerðar á umhverfis- og skipulagssviði.

    • 2108140 – Hringhamar reitur 25.B, deiliskipulag

      Lögð fram á ný tillaga að deiliskipulagi reits 25.B í Hamranesi. Lögð fram viðbótargögn umsækjanda varðandi bílastæði og fyrirkomulag þeirra.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa deiliskipulag með vísan til tillögu 2. Erindinu er vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 2105166 – Sléttuhlíð, aðalskipulagsbreyting

      Lagður fram aðalskipulagsuppdráttur vegna breytinga á aðalskipulagi Sléttuhlíðar.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytt aðalskipulag Sléttuhlíðar. Málmeðferð verði í samræmi við skipulagslög og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2001526 – Reykjanesbraut, tvöföldun, aðalskipulagsbreyting

      Samþykkt var á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar þann 17.3.2021 að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar ásamt umhverfisskýrslu. Tillagan var auglýst 9.7-23.8.2021. Frummatsskýrsla, þar sem lagt er mat á umhverfisáhrif framkvæmdarinnar, var auglýst samhliða.
      Athugasemd barst.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman umsögn vegna framkominnar athugasemdar.

    • 2103383 – Snókalönd, innviðir og uppbygging

      Tekið til umræðu erindi Basecamp Iceland ehf. um stuðning til frekari uppbyggingar á aðstöðu til norðurljósa- og stjörnuskoðunar við Snókalönd.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir breytt aðalskipulag fyrir Snókalönd. Málmeðferð verði í samræmi við skipulagslög og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2012157 – Suðurhella 10, óleyfisframkvæmdir, óleyfisbúseta

      Gerð grein fyrir stöðu málsins. Þann 04.05 s.l. samþykkti skipulags- og byggingarráð að fallast ekki á frekari fresti.

      Kynnt staða mála.

    • 2108514 – Kjóahraun, opið svæði

      Kynnt erindi sem varðar opið svæði við Kjóahraun og nýtingu þess sem bílastæði. Svæðið er ekki skilgreint sem bílastæði í gildandi deiliskipulagi. Lögð fram tillaga að breytingu á opnu svæði við Kjóahraun.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að svæði sem afmarkast af enda Kjóahrauns og Reykjavíkurvegi sbr. deiliskipulag Miðbær Hraun-vestur og Einarsreits verði lokað fyrir bílaumferð og gert að almenningsgarði.

    • 2107287 – Atvinnusvæði, skilmálar

      Teknir til umræðu skilmálar atvinnusvæða varðandi breytingar utanhúss og samþykki meðeigenda þegar um er að ræða nauðsynlegar breytingar tengdar rekstri svo sem lofræstistokk eða annar tæknibúnaður.

      Skipulags- og byggingarráð felur sviðinu að taka saman greinargerð varðandi takmarkandi ákvæði byggingarreglugerðar og fjöleignarhúsalaga er varðar atvinnurekstur innan iðnaðarsvæða og skilmála svæða.

    • 2108341 – Reykjavíkurvegur 50, beiðni um að afmá kvöð á lóð

      Lagt fram bréf húsfélagsins þar sem óskað er afléttingar á kvöð í lóðarleigusamning er varðar búsetu forsjáraðila barna. Jafnframt kynnt erindi er varðar umferð og akstur um lóðina.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að ræða við hlutaðeigandi aðila er varðar kvaðir á lóð.

    • 2108612 – Umhverfismatsdagurinn, málþing

      Lagt fram fundaboð á árlegt málþing Skipulagsstofnunar um umhverfismat, Árangursríkt og skilvirkt umhverfismat, sem fer fram miðvikudaginn 1. september næstkomandi kl. 13.00-16.30.

      Lagt fram.

    Fyrirspurnir

    • 2108468 – Reykjavíkurvegur 72, fyrirspurn

      Lagt fram erindi Grímansfells ehf. f.h. lóðarhafa á s.k. Trönureit, um að hefja skipulagsvinnu sem tekur mið af rammaskipulagi fyrir Hraun-vestur sem samþykkt var 15.05.2018.

      Hafin er vinna við breytingu á landnotkun í Aðalskipulagi vegna Hrauns vesturs. Skipulags- og byggingarráð tekur jafnframt jákvætt í fyrirhugaða skipulagvinnu lóðarhafa m.t.t. rammaskipulags frá 2018.

    Fundargerðir

    • 2106025F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 842

      Lögð fram fundargerð 842. fundar.

    • 2107001F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 843

      Lögð fram fundargerð 843. fundar.

    • 2107004F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 844

      Lögð fram fundargerð 844. fundar

    • 2107005F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 845

      Lögð fram fundargerð 845. fundar.

    • 2107007F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 846

      Lögð fram fundargerð 846. fundar.

    • 2108001F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 847

      Lögð fram fundargerð 847. fundar.

    • 2108008F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 848

      Lögð fram fundargerð 848. fundar.

Ábendingagátt