Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Ívar Bragason bæjarlögmaður og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Kynnt vinna við umhverfislýsingu ásamt jarðvegsathugun. Fulltrúar VSÓ mæta til fundarins.
Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.
Varmárbyggð ehf. leggur 17.7.2021 inn tillögu að deiliskipulagi Áshamars 1A-2A. Tillagan gerir ráð fyrir 6 fjögurra til fimm hæða fjölbýlishúsum með allt að 170 íbúðum með möguleika á kjallara. Gert er ráð fyrir bílastæðum ofan- og neðanjarðar.
Erindi frestað.
Hamravellir ehf, leggja fram nýtt deiliskipulag fyrir reit 9a. Skipulagshöfundur kynnir.
Skipulags- og byggingarráð samþykkti á fundi sínum þann 10. ágúst s.l. greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 26.07.2021 og lagði til við umsækjanda að leggja fram uppfærð gögn í samræmi við framangreinda greinargerð. Ný gögn hafa borist og erindið tekið fyrir á ný.
Með vísan til greinargerð skipulagsfulltrúa dags. 26.7.2021 hafnar skipulags- og byggingarráð erindinu eins og það liggur fyrir.
Þann 8. apríl s.l. vísaði bærjarráð til skipulags- og byggingarráðs tillögu að deiliskipulagi sem gerði ráð fyrir m.a breyttum lóðarmörkum Suðurgötu 18. Lögð fram tillaga að endurskoðaðri lóðarstærð og skilmálum.
Á fundi skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar þann 29. júní s.l. var samþykkt að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar. Breytingin nær til reits sem afmarkast af Strandgötu, Reykjavíkurvegi, Austurgötu og Linnetsstíg. Í breytingunni felst m.a. að byggingarheimildum frá 2001 er breytt. Afgreiðsla skipulags- og byggingarráðs var staðfest 1. júli sl. af bæjarráði í umboði bæjarstjórnar. Tillagan var auglýst tímabilið 15.07.-26.08.2021. Kynningarfundur var haldinn 25.8.2021. Frestur til að skila inn athugasemdun var framlengdur til 31.8.2021. Athugasemdir bárust.
Lagt fram og skipulagsfulltrúa falið að svara framkomnum athugasemdum.
Á fundi bæjarstjórnar þ. 23. júní sl. var afgreiðsla skipulags- og byggingarráðs frá 15. júní sl. er varðar breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Strandgata 26-30 staðfest og að málsmeðferð fari skv. 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga. Breytingartillagan gerir ráð breyttu byggingarmagni á lóð ásamt blandaðri starfsemi svo sem íbúðir, verslun, þjónustu og hótelrekstur. Tillagan var auglýst frá 02.07. – 16.08.2021. Frestur til að skila inn athugasemdum var framlengdur til 31.8.2021. Ábending barst frá Veitum ohf.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög og að erindinu verði vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.
Tekið til umræðu.
Skipulags- og byggingarráð leggur til að farið verði í vinnu við mótun heildarsýnar fyrir uppbyggingu og skipulag miðbæjar þar sem skýrsla starfshóps um skipulag miðbæjar verði höfð til hliðsjónar.
Lögð fram drög að skilmálum til kynningar.
Óli Örn Eiríksson vék af fundi eftir níunda dagskrárlið kl. 11:02.
Lagt fram til kynningar.
Lögð fram drög að deiliskipulagi vesturbæjar ásamt greinargerð og skilmálum.
Lagðar fram og kynntar hugmyndir að breytingu deiliskipulags Álhellu 1 og Kapelluhrauns.
Lagt fram bréf Skipulagsstofnunar.
Lagt fram.
Lagt fram erindi íbúa við Vitastíg.
Skipulags- og byggingarráð vísar erindinu til umsagnar hjá umhverfis- og skipulagssviði.
Lagður fram úrskurður nr. 1038/2021 úrskurðarnefndar um upplýsingamál.
Helga Stefánsdóttir forstöðumaður mætti til fundarins undir 15. dagskrárlið.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að koma með tillögur að hjólastígum sem gætu komið til framkvæmdar á næsta ári.
Lögð fram fundargerð 849. fundar.