Skipulags- og byggingarráð

16. nóvember 2021 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 746

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Ágúst Bjarni Garðarsson varaformaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson aðalmaður
  • Kristján Jónas Svavarsson varamaður
  • Sigurjón Ingvason varaáheyrnarfulltrúi
  • Helga Björg Arnardóttir varaáheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Ósk Soffía Valtýsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir forstöðumaður.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Ósk Soffía Valtýsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Helga Stefánsdóttir forstöðumaður.

  1. Almenn erindi

    • 1907017 – Hafnarsvæði, Aðalskipulagsbreyting

      Lögð fram tillaga að aðalskipulagsbreytingu hafnarsvæðis. Breytingin nær til suður og austur hluta Suðurhafnar, Flensborgarhafnar og strandlengju meðfram Strandgötu í átt að miðbæ Hafnarfjarðar. Í breytingartillögunni felst að marka stefnu um þéttingu byggðar á svæðinu og breyta landnotkun í samræmi við stefnuna.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa aðalskipulagsbreytinguna og vísar til staðfestingar í hafnarstjórn.

    • 2111310 – Óseyrarhverfi, deiliskipulag

      Lögð fram tillaga um að hefja vinnu við deiliskipulag Óseyrarhverfis.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við deiliskipulag reits ÍB15 og vísar erindinu til staðfestingar í hafnarstjórn.

    • 2110443 – Óseyrarbraut 27b, breyting á deiliskipulagi

      Páll Poulsen fh. lóðarhafa sækir um breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 27b. Lögð fram tillaga að breytingu dags. 15.10.2021. Breytingin felst í nýjum byggingarreit á austurhluta lóðar og aðkomu að lóð frá Óseyrarbraut á móts við miðjan nýja byggingarreitinn. Nýtingarhlutfall lóðar verður N=0.30.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Óseyrarbrautar 27b og vísar til staðfestingar í hafnarstjórn.

    • 2111309 – Hellnahraun 4, deiliskipulag

      Lögð fram tillaga um að hefja vinnu við deiliskipulag iðnaðarsvæðis í Hellnahrauni 4. áfanga.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að hefja vinnu við deiliskipulag reits I4.

    • 2106549 – Hringhamar 9, reitur 21.B, deiliskipulag

      Skipulags- og byggingarráð samþykkti 10.8.2021 að auglýsa deiliskipulag reitar 21.B. Erindinu var vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar. Bæjarstjórn samþykkti þann 12.8.2021 samhljóða afgreiðslu skipulags- og byggingarráðs. Tillagan var auglýst tímabilið 27.8 – 22.10.2021 auk þess sem tillagan var kynnt á almennum kynningarfundi þann 30. september sl. Engar athugasemdir bárust Umsögn Veitna lögð fram.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir erindið og að því verði lokið í samræmi við skipulagslög.

    • 2110307 – Hamranes reitur 4.A, deiliskipulag

      Jóhann Örn Logason fh. lóðarhafa sækir 17.8.2021 um samþykki fyrir nýju deiliskipulagi í Hamranesi, Áshamar, reitur 4.A. Lögð fram tillaga að deiliskipulagi reitar 4.A dags. 12.11.2021.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir tillögu að deiliskipulagi með fyrirvara um að stöllun húsa gagnvart Áshamri verði eins og skýringamyndir gera ráð fyrir. Uppfærð gögn verði auglýst og vísað til bæjarstjórnar til staðfestingar.

    • 1903510 – Hellnahraun 3. áfangi, endurskoðun deiliskipulags

      Á fundi skipulags- og byggingarráð þann 1.6.2021 var skipulagsfulltrúa falið að hefja vinnu við deiliskipulag vestari hluta Hellnahrauns 3. áfanga. Lögð fram tillaga að breyttu deiliskipulagi Hellnahrauns 3. áfanga dags. 12.11.2021.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2101519 – Ásland 4, deiliskipulag

      Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Áslands 4. Skipulagshöfundar mæta til fundarins.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2109613 – Vikurskarð 5, breyting á deiliskipulagi

      Hástígur ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi Vikurskarðs 5. Lögð fram tillaga að breytingu dags. 13.09.2021. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða, stækkun byggingarreits og hæðir verði tvær.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að grenndarkynna erindið.

    • 2110101 – Álfhella 2 og Einhella 1, beyting á deiliskipulag

      Agros Móhella 1 ehf. sækir um breytingu á deiliskipulagi. Helstu breytingar eru að Álfhella 2 og Einhella 1 verða sameinaðar í eina lóð og nýtt lóðarheiti verður Einhella 1.
      Helstu breytingar felsast í færslu á innkeyrslum og bætt við tveimur innkeyrslum við Breiðhellu. Bundin byggingarlína dettur út, byggingarreitur er stækkaður. Hámarks hæð útveggja verður 10,5m. Nýtingarhlutfall verður 0,5.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi.

    • 2111279 – Reykjanesbraut, deiliskipulag

      Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Reykjanesbrautar vegna breikkunar dags. 14.10.2021. Skipulagshöfundur mætir til fundarins.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir deiliskipulagið í auglýsingu í samræmi við skipulagslög og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2107071 – Selhella 7, hönnunargögn, tungumál, mál nr. 108 árið 2021, kæra

      Lagður fram til kynningar úrskurður í máli 108/2021.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2105289 – Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar og fyrirtækja hans 2022 og 2023-2025

      Lögð fram tillaga bæjarfulltrúa Viðreisnar, Jóns Inga Hákonarsonar, við fjárhagsáætlun sem vísað var til skipulags- og byggingarráðs. Tillagan er svohljóðandi: “7. 20 milljónir í greiningar og undirbúnings á deiliskipulagi vegna Borgarlínu”

      Sáttmáli um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu sem var undirritaður í september 2019 gerir ráð fyrir fjárfestingu upp á 120 milljarða króna, sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu leggja til 15 milljarða af þeirri upphæð. Þann 2. október stofnuðu ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu: Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, opinbert hlutafélag um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Þetta nýja félag heitir Betri samgöngur ohf. og mun hafa yfirumsjón með framkvæmdum vegna uppbyggingar samgangna og fjármögnun þeirra, þar á meðal innviði almenningssamgangna. Vegagerðin og Betri samgöngur hafa undirritað samkomulag um framkvæmd verkefna, þar kemur fram að Vegagerðin mun annast undirbúning, hönnun og verklegar framkvæmdir sem ráðist verður í og mun hafa samráð við viðkomandi sveitarfélög. Samkvæmt því sem hér er nefnt er unnið eftir samþykktum og fjármögnun sem nefnd eru hér að ofan og því tillagan ekki tæk sem slík í fjárhagsáætlun. Skipulags- og byggingarráð hafnar tillögunni.

      Fulltrúi Viðreisnar bókar: Bent er á að ekki hefur verið hugað nægilega að kostnaði vegna verkefna, sem tengjast Borgarlínu, en falla utan samkomulags sveitarfélaganna og Vegagerðar. Þar má nefna hugsanlegar breytingar á aðliggjandi skipulagssvæðum, könnun á þörf fyrir uppkaup eigna o. fl. Ljóst er að þörf er á fjármagni í slíka verkþætti og æskilegt að huga tímanlega að því.

    Fyrirspurnir

    • 2110520 – Tinnuskarð 6, fyrirspurn, deiliskipulag

      Lögð fram fyrirspurn MA Verktaka ehf. þar sem óskað er eftir að breyta deiliskipulagi Skarðshlíðar 3. áfanga vegna Tinnuskarðs 6. Óskað er m.a. eftir að fá að fjölga íbúðum úr þremur í fjórar.

      Skiplags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að erindið verði grenndarkynnt þegar fullnægjandi gögn berast.

    • 2106231 – Drangsskarð 13 og Hádegisskarð 22, fyrirspurn

      Þann 10.6. sl. leggur Kristinn Ragnarsson inn fyrirspurn til skipulagsfulltrúa þar sem óskað er eftir að gera deiliskipulagsbreytingar á deiliskipulagi Skarðshlíðar 2. áfanga er nær til lóða við Drangsskarð 13 og Hádegisskarð 22. Breytingin gerir ráð fyrir sameiningu lóða og tilfærslu á byggingarreitum sem taka mið að því að minnka innskot milli eignarhluta. Allir eignarhlutar verði 2 hæðir með tilheyrandi hækkun á hæðarskilum og breikkun á byggingarreitum um 1 m. Hæð húsa hækkar sem nemur á bilinu 0,8-1,0 m. Íbúðafjöldi eykst úr fjórum íbúðum í sex íbúðir. Að öðru leyti gilda skilmálar gildandi deiliskipulags. Skipulags- og byggingarráð óskaði eftir umsögn skipulagsfulltrúa um erindið á fundi sínum þann 10.8.2021. Umsögn skipulagsfulltrúa lögð fram.

      Erindi frestað.

    Fundargerðir

    • 2110029F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 858

      Lögð fram fundargerð 858. fundar.

    • 2111008F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 859

      Lögð fram fundargerð 859. fundar.

Ábendingagátt