Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Soffía Valtýsdóttir arkitekt, Berglind Guðmundsdóttir arkitekt, ívar Bragason bæjarlögmaður og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Ágúst Bjarni Garðarsson sat fundinn í fjarfundi og vék af fundi kl. 10:45.
Sumarhús í Sléttuhlíð tekið til umræðu á ný.
Skipulags- og byggingarráð felur umhverfis- og skipulagssviði að óska eftir teikningum bygginga og staðsetningu frárennsli/rotþróa í Sléttuhlíð.
Kynnt áframhaldandi vinna við deiliskipulag Óseyrarsvæðis.
Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.
Tekið til umræðu.
Bæjarstjórn samþykkti 12.1.2022 að auglýsa tillögu Lindabyggðar ehf. að deiliskipulagi reitar 27.B. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur fimm hæða fjölbýlishúsum með 50 íbúðum ásamt reit fyrir einnar hæðar 30 m2 smáhýsi fyrir íbúa. Á jarðhæð sem snýr að Hringhamri verði heimilt að vera með verslun og þjónustu. Tillagan var auglýst 25.1.2022 – 9.1.2022. Lögð fram umsögn Veitna.
Lagt fram og vísað til úrvinnslu skipulagsfulltrúa.
Dverghamrar ehf. sækja 7.3.2022 um deiliskipulag reitar 28.B. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur 5 hæða fjölbýlishúsum með 46 íbúðum ásamt bílakjallara og smáhýsi.
Skipulags- og byggingarráð samþykkir að auglýsa tillögu að deiliskipulagi reitar 28.B og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
Tekin fyrir að nýju umsókn frá Batteríið arkitektar frá 17.1.2022 um deiliskipulag fyrir Hraun vestur Hjallar, reiti 3.3 og 3.4 skv. tillögu dags. 21.12.2021.
Skipulags- og byggingarráð leggur til að byggingarmagn íbúða verði minnkað og atvinnhúsnæði verði gefið meira rými í takt við leiðbeiningar rammaskipulags.
Tekin fyrir að nýju fyrirspurn frá Batteríið Arkitektar dags. 12.1.2022 þar sem óskað er eftir heimild til að gera tillögu að deiliskipulagi í samræmi við Rammaskipulag fyrir Hraun vestur í hverfi 3 á reit 3.1, Hjallar-norðvestur. Umsögn umhverfis- og skipulagssviðs lögð fram.
Skipulags- og byggingarráð tekur jákvætt í erindið.
Lögð fram fundargerð 104. fundar.
Skipulags- og byggingarráð tekur undir bókun fulltrúa Hafnarfjarðar í svæðisskipulagsnefnd. “Fulltrúar Hafnarfjarðar vekja athygli á að Ofanbyggðavegur er skilgreindur í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem stofnvegur. Elliðavatnsvegur/Flóttamannavegur frá Hafnarfirði í Kópavog liggur að stórum hluta í væntanlegri legu Ofanbyggðavegar, sama á við ef Elliðavatnsvegi/Flóttamannavegi yrði breytt í stofngötu. Fulltrúar Hafnarfjarðar benda á að skilgreining á Elliðavatnsvegi/Flóttamannavegi sem skilavegi gengur gegn samþykktu svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins og mælast til þess við Alþingi og Vegagerðina að Elliðavatnsvegur/Flóttamannavegur sé ekki skilgreindur sem skilavegur og verði því áfram í umsjón Vegagerðarinnar.”
Lögð fram fundargerð 874. fundar.
Lögð fram fundargerð 875. fundar.