Skipulags- og byggingarráð

26. apríl 2022 kl. 08:30

í fundarherbergi Norðurhellu 2

Fundur 758

Mætt til fundar

  • Ólafur Ingi Tómasson formaður
  • Lovísa Björg Traustadóttir aðalmaður
  • Stefán Már Gunnlaugsson aðalmaður
  • Gísli Sveinbergsson aðalmaður
  • Óli Örn Eiríksson áheyrnarfulltrúi
  • Sigurður Pétur Sigmundsson áheyrnarfulltrúi
  • Anna Karen Svövudóttir varamaður

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn:
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Ívar Bragason bæjarlögmaður.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn:
Þormóður Sveinsson skipulagsfulltrúi, Anna Margrét Tómasdóttir arkitekt, Guðrún Guðmundsdóttir arkitekt, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri, Helga Stefánsdóttir forstöðumaður og Ívar Bragason bæjarlögmaður.

  1. Almenn erindi

    • 2204136 – Reykjanesbraut frá Lækargötu að Kaplakrika

      Fulltrúar Vegagerðarinnar mæta til fundarins og kynna frumdrög vegna breytinga á Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Kaplakrika.

      Skipulags- og byggingarráð þakkar kynninguna.

    • 2111310 – Óseyrarhverfi, deiliskipulag

      Skipulagshöfundar mæta til fundarins og kynna tillögu að deiliskipulagi Óseyrarhverfis.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að tillaga að deiliskipulagi Óseyrarhverfis verði auglýst og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.
      Hugmynd um Hvaleyrarbraut í stokk er sett fram í greinargerð skipulagsins. Skipulags- og byggingarráð samþykkir að skoðaðir verða valkostir og kostnaðarmat vegna hugsanlega breytinga á skipulagi Hvaleyrarbrautar.

    • 2101519 – Ásland 4, deiliskipulag

      Bæjarstjórn samþykkti þann 9. febrúar sl. að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Áslands 4 samhliða breytingu á aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013-2025 vegna Áslands 4 og 5. Tillagan gerir ráð fyrir blandaðri lágreistri byggð sérbýla og fjölbýla á 44 hektara svæði. Tillagan var auglýst tímabilið 25.2.2022-12.4.2022. Athugasemdir bárust. Umsögn skipulags- og byggingarsviðs lögð fram ásamt uppfærðum uppdrætti og greinargerð þar sem m.a. fallið hefur verið frá notkun djúpgáma.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir uppfærða tillögu að deiliskipulagi Áslands 4 að teknu tilliti til framkominnar umsagnar og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

    • 2201064 – Hamranes reitur 19.B, deiliskipulag

      Á fundi bæjarstjórnar þann 23. febrúar sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi reitar 19.B í Hamranesi. Tillagan gerir ráð fyrir tveimur fjölbýlishúsum 4-7 hæða með allt að 70 íbúðum. Bílastæði eru á lóð. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 19.4.2022. Athugasemd barst.

      Skipulags- og byggingarráð felur skipulagsfulltrúa að taka saman umsögn vegna framkominna athugasemda.

    • 2202097 – Hamranes, þróunarreitur 30B, deiliskipulag

      Á fundi bæjarstjórnar þann 23. febrúar sl. var samþykkt að auglýsa tillögu að deiliskipulagi reitar 30.B í Hamranesi. Tillagan gerir ráð fyrir þremur fjölbýlishúsum, 2-6 hæða með allt að 55 íbúðum, einnig er heimild fyrir verslun- og/eða þjónustu á hluta jarðhæða. Gert er ráð fyrir bílakjallara og bílastæðum á lóð. Frestur til að skila inn athugasemdum var til 19.4.2022. Engar athugasemdir bárust.

      Skipulags- og byggingarráð samþykkir að erindinu verði lokið í samræmi við skipulagslög.

    • 1709028 – Hellisgerði 100 ára

      Lögð fram bókun umhverfis- og framkvæmdaráðs frá 13.4.2022 þar sem óskað er eftir að unnið verði deiliskipulag vegna þjónustuhúss í Hellisgerði í samræmi við tillögu Landslags.

      Skipulags- og byggingarráð heimilar að hafin verði vinna við deiliskipulag vegna þjónustuhúss í Hellisgerði í samræmi við tillögu Landslags.

    • 1706356 – Miðbær, deiliskipulag, endurskoðun

      Tekið til umræðu deiliskipulag miðbæjar.

      Skipulags og byggingarráð samþykkir að hafin verði vinna við heildarendurskoðun á deiliskipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar.

    Fundargerðir

    • 2204009F – Afgreiðslufundur skipulags- og byggingarfulltrúa - 880

      Lögð fram fundargerð 880 fundar.

Ábendingagátt