Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
á fjarfundi
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða þann 18. mars 2020 með vísan VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011 að heimilt sé að halda fundi bæjarstjórnar, ráða og nefnda í fjarfundi. Heimild til fjarfunda var endurnýjuð í bæjarstjórn þann 19.8.2020.
Teknar fyrir tillögur sem var vísað til umhverfis- og framkvæmdarráðs frá bæjarstjórn.
Lagt fram og vísað til afgreiðslu aukafundar sem haldinn verður 9. desember 2020.
Fræðsluráð vísar eftirfarandi bókun til umhverfis og skipulagssviðs: “Fræðsluráð vísar ósk Engidalsskóla um stækkun skólans í sjö árganga til umhverfis- og skipulagssviðs þar sem óskað er eftir því að sviðið vinni með skólastjórnendum að undirbúning að stækkun.”
Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir kostnaðarmati.
Fræðsluráð vísar eftir farandi bókun til umhverfis og skipulagssviðs: “Fræðsluráð samþykkir að vísa tillögunni til samþykktar umhverfis- og framkvæmdaráðs og óskar eftir samvinnu um næsta skref.”
Endurbætur skólalóða er þegar í vinnslu og er á fjárhagsáætlun næsta árs.
Lögð fram drög samnings milli Hafnarfjarðarbæjar og Oss hf. varðandi rekstur rafhlaupahjóla og rafhjólaleigu í Hafnarfirði.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagðan samning og heimilar sviðinu að ganga til samninga.
Tekin til umræðu uppsetning öryggismyndavéla innan hverfa.
Ekki er gert ráð fyrir uppsetningu öryggismyndavéla innan hverfa að sinni.
Tekin til umræðu U-beygjubann á Reykjavíkurvegi við Hellisgötu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að ekki verði heimilt að taka u-beygju á Reykjavíkurvegi við Hellisgötu og Hverfisgötu.
Tekið fyrir að nýju.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar framkomið svar Vegagerðarinnar vegna beiðni ráðsins um kostnaðar og áhættumat vegna syðri hluta Bláfjallavegar (417-02) og Leiðarendavegar (402-01). Framkomin gögn sýna að unnt er að gera endurbætur á þessari leið þannig að tryggt verði að umferðaröryggissjónarmið vegna vatnsverndar séu fullnægjandi telur umhverfis- og framkvæmdaráð mikilvægt að árétta að heimild til lokunar var veitt tímabundið vegna forgangsröðunar verkefna í ljósi áforma um framkvæmdir á Bláfjallasvæðinu. Umhverfis- og framkvæmdaráð ítrekar hér með ósk um kostnaðarmat vegna syðri hluta Bláfjallavegar(417-02) og Leiðarendavegar(402-01). Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar svari Vegagerðarinnar til bæjarráðs.
Tekið til umræðu.
Kynnt tillaga að matsáætlun.
Lagt fram til kynningar.
Umsagnarbeiðni um frumvarp til laga um breytingu á lögum um náttúruvernd nr. 60/2013. Frestur til athugasemda er 1. desember 2020.
Umsagnarbeiðni barst vegna frumvarps til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Frestur til að veita umsögn er til 9. desember 2020.
Lagt fram bréf SSH til samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins dags. 10. nóvember 2020,um þörf á að ganga frá rekstrar- og viðhaldsþáttum varðandi skilavegi og að samningar á grundvelli 5. mgr. 6. gr. Samgöngusáttmálans þurfi að eiga sér stað. Einnig lagt fram svarbréf samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, dags. 11. nóvember 2020.
Umhverfis og framkvæmdaráð bendir á að fyrir liggur mikil viðhaldsþörf á þeim vegum sem fyrirhugað er að bærinn taki til sín og nauðsynlegt er að þeim verði skilað í góðu ástandi eða þeim fylgi nauðsynlegt fjármagn til viðhalds og endurnýjunar.
Fundargerð stjórnar nr. 330 lögð fram.
Lögð fram fundargerð 436. fundar.