Umhverfis- og framkvæmdaráð

7. apríl 2021 kl. 08:00

á fjarfundi

Fundur 377

Mætt til fundar

  • Helga Ingólfsdóttir formaður
  • Árni Rúnar Árnason varaformaður
  • Skarphéðinn Orri Björnsson aðalmaður
  • Þórey Svanfríður Þórisdóttir aðalmaður
  • Friðþjófur Helgi Karlsson aðalmaður
  • Arnhildur Ásdís Kolbeins áheyrnarfulltrúi
  • Helga Björg Arnardóttir áheyrnarfulltrúi

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.

Ritari

  • Anna María Elíasdóttir skrifstofustjóri

Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn: Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Sigurður Haraldsson sviðsstjóri og Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri.

  1. Almenn erindi

    • 1510061 – Ásvellir, uppbygging

      Lagðar fram niðurstöður útboða á girðingu og vökvunarkerfi fyrir nýja grasvelli á íþróttasvæði Hauka.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að leitað verði samninga við lægstjóðendur, vegna girðinga Skýlir ehf. og vegna vökvunarkerfis Flux-vökvun ehf.

    • 1908381 – Hraunvallaskóli minnisblað

      Lögð fram bókun Fræðsluráðs frá 24.3.2021 er varðar breytingar á húsnæði og flutning fjölgreinadeildar yfir í húsnæði Hraunvallaskóla. “Fræðsluráð vísar erindi Hraunvallaskóla til sviðstjóra mennta- og lýðheilsusviðs til úrvinnslu og óskar eftir samstarfi við starfsmenn umhverfis og skipulagssviðs og vísar erindinu þar með jafnframt til umhverfis- og framkvæmdaráðs.”

      Umhverfis- og framkvæmdaráð óskar eftir minnisblaði frá sérfræðingum sviðsins varðandi ástands lausra kennslustofa og þarfagreiningu og kostnaðarmat á þeirri starfsemi sem óskað er eftir að þær verði nýttar fyrir.

    • 2008282 – Klettahlíð, umferðaröryggi

      Lagt fram minnisblað Eflu dags. 10.3.2021 varðandi aðgerðir til að auka umferðaröryggi í Klettahlíð.

      Lagt fram.

    • 1701334 – Sólvangsvegur 2, hjúkrunarheimili, framkvæmdir

      Lagður fram samningur vegna framkvæmda á 2-4 hæð.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að gengið verði til samninga við E. Sigurðsson.

    • 1903474 – Hestamannafélagið Sörli, framkvæmdasamningur, erindi

      Lögð fram niðurstaða hönnunarútboðs vegna Reiðhallar Sörla.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð heimilar að leitað sé samninga við lægstbjóðandi, Kanon arkitekta.

    • 2012105 – Loftgæði, losun svifryks frá gatnakerfinu á höfuðborgarsvæðinu

      Lögð fram skýrsla um áhrif hraða á mengun vegna umferðar unnin af Háskóla Íslands.

      Lagt fram til kynningar.

    • 2012037 – Loftslagsmál, stýrihópur

      Lögð fram tillaga að skipan starfshóps um loftlagsmál.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð skipar Árna Rúnar Árnason og Tinnu Hallbergsdóttur frá meirihluta og Þóreyju Svanfríði Þórisdóttur frá minnhluta í starfshóp um loftlagsmál. Formaður hópsins verður Árni Rúnar Árnason.

    • 1602126 – Strætó, leiðarkerfi í Hafnarfirði

      Tekinn til umræðu stöðufundur Strætó með Hafnarfjarðarbæ.

      Umhverfis- og framkvæmdaráð ítrekar fyrri óskir sínar um breytingar í samræmi við innsend erindi um breytingar á leið 1 að hringtorgi í Skarðshlíð, pöntunarþjónustu á iðnaðarsvæði við Velli og felur sviðinu að ítreka óskir Hafnarfjarðarbæjar.

    Fundargerðir

Ábendingagátt