Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
í fundarherbergi Norðurhellu 2
Auk ofangreindra ráðsmanna sátu fundinn. Helga Stefánsdóttir forstöðumaður, Guðmundur Elíasson umhverfis- og veitustjóri og Sigurður Haraldsson sviðsstjóri.
Lagðar fram forsendur fjárhagsáætlunar 2023-2026 og tímalína.
Lagt fram.
Lögð fram að nýju sameiginleg svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2033.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagða svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs 2022-2033 og vísar til staðfestingar bæjarstjórnar.
Tekið til umræðu.
Ishmael David mætir til fundarins og kynnir stöðu innleiðingar á nýrri útfærslu flokkunar og sorphirðu í Hafnarfirði sem tekur gildi 2023.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna.
Lögð fram umhverfismatsskýrsla og svör vegna þeirra umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma umhverfismatsskýrslu um uppbyggingu á íþróttasvæði Hauka.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir framlagt svar VSÓ vegna þeirra umsagna og athugasemda sem bárust á auglýsingatíma umhverfismatsskýrslu um uppbyggingu á íþróttasvæði Hauka.
Lagt fram erindi dags. 23. júni sl. frá Skátafélaginu Hraunbúum er varðar heimtaug og spennistöð.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar hjá umhverfis- og framkvæmdarsviði.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur sviðinu að óska eftir frekari upplýsingum um framtíðarhugmyndir á svæðinu.
Lagðar fram hugmyndir af jólalýsingu auk þess sem tekin er fyrir að nýju tillaga um að 5 mkr. af fjármagni sem merkt er “Fjölgun á sértækum leiktækjum” sé flutt yfir á fjárfestingar í jólalýsingu.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tilfærslu fjármagns og felur sviðinu að vinna áfram að málinu. Gert verði sameiginlegt átak í að skreyta stofnanir og byggingar bæjarins.
Tillögur til viðurkenninga árið 2022 lagðar fram.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tilnefningar til viðurkenninga snyrtileikans 2022.
Tekið fyrir að nýju erindi Stefaníu Ámundadóttur fh. íbúa Austurgötu 36-47 og Lækjargötu 1-11 frá 29.7.2022. Lögð er inn beiðni um að hafist verði handa við skipulag og framkvæmdir á opnu svæði við Austurgötu 44.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til umfjöllunar í skipulags- og byggingarráði vegna endurskoðunar á skipulagi svæðisins.
Tekið fyrir erindi varðandi skipulag og gróður í Áslandi 3.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar íbúum fyrir ábendinguna og vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar 2023.
Lögð fram tillaga að staðsetningu ærslabelgs í Áslandi.
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að ærslabelgur verði staðsettur á leiksvæði við Stekkjarás og vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar.
Lagðar fram tillögur að verkefnum til næstu þriggja ára og tillaga að forgangsröðun verkefna árið 2023.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar tillögum tvö til fimm til fjárhagsáætlunargerðar og tillögu sex til afgreiðslu sviðsins.
Lagt fram erindi fræðsluráðs frá 15. júní og 24. ágúst varðandi úttektir á lóðum grunnskóla og leikskóla.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til vinnslu á umhverfis- og skipulagssviði.
Andri Ómarsson verkefnastjóri menningar- og markaðsmála mætir til fundarins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð þakkar kynninguna og vísar tillögu fulltrúa Samfylkingarinnar sem lögð var fram 24.8.sl. og ráðið tók jákvætt í til bæjarráðs. Tillagan er svohljóðandi: Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að nú þegar verði unnið að lagfæringum og endurbótum á skiltum þeim sem eru við bæjarmörk Hafnarfjarðar og gefa vegfarendum til kynna að þeir séu komnir til Hafnarfjarðar. Skiltin eru lítil, gefa fátt til kynna og illsjáanleg vegfarendum. Það þarf að lagfæra og stækka skiltin og gera áberandi, betrumbæta lýsingu og auka upplýsingar um bæinn. Kannaðir verði möguleikar á samkeppni um útlit og gerð. Skrifstofa sviðsstjóra bæjarskipulags og framkvæmdasviðs leggi fram tillögur um framkvæmdina. Vitinn bæjarmerki Hafnarfjarðar verði að sjálfsögðu áfram í öndvegi skiltanna.
Tekið fyrir.
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til að gerð verði áætlun til þriggja ára um hönnun og framkvæmd á hringtorgum bæjarins.
Tekið fyrir að nýju.
Tekin til umræðu tillaga að skoðanakönnun íbúa um sundstaði bæjarins.
Umhverfis- og framkvæmdaráð felur þjónustu- og þróunarsviði í samráði við forstöðumenn sundstaðanna að leggja fram skoðanakönnun fyrir notendur sundstaðanna um nýtingu þeirra og hugmyndir að nýjungum.
Tekið til umræðu húsnæðismál Brettafélags Hafnarfjarðar.
Umhverfis- og framkvæmdaráð vísar erindinu til umfjöllunar íþrótta- og tómstundanefndar.
Sviðsstjóri fer yfir stöðu viðræðna.
Lögð fram fundargerð 1. fundar framkvæmdanefndar.
Lagðar fram fundargerðir framkvæmdanefndar nr 1-3.
Lagðar fram fundargerðir stjórnar Strætó Bs. nr. 357 og 358.