Fundurinn var haldinn 8. maí og hann sóttu tveir fulltrúar nefndarinnar.
Umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21
í fundarherbergi 3ju hæð, Strandgötu 6
Ritari
- Guðjón Ingi Eggertsson Verkefnisstjóri Staðardagskrár 21
-
Almenn erindi
-
0804058 – Umhverfisstofnun og náttúruverndarnefndir sveitarfélaga, ársfundur 2008.
Kynning og umræður um það sem fór fram á fundinum.
-
0805089 – Spor til framtíðar-menntun til sjálfbærni.
Kynning á málþingi um menntun til sjálfbærni sem haldið verður föstudaginn 16. maí.
Dagskrá málþingsins lögð fram.
-
0805062 – Hundar, hlýðniæfingar á útisvæði
Erindi Valgerðar Stefánsdóttur þar sem óskað er eftir leyfi til að stunda hlýðniæfingar fyrir hunda á útisvæði í bæjarlandi Hafnarfjarðar.
UHN/SD21 óskar eftir því að málið verði skoðað á skipulags og byggingarsviði.
-
0802070 – Græni trefillinn
Greint frá fundi um grænann stíg sem haldinn var 7. maí. Ennfremur lögð fram fyrstu drög að legu græns stígs á höfuðborgarsvæðinu.
Lagt fram.
-
0804346 – Sléttuhlíð, reiðvegir
Hestamannafélagið Sörli sækir um breytingu með bréfi dags. 22.04.2008 á deiliskipulagi á svæði Sléttuhlíðar í Hafnarfirði. Um er að ræða að tengja reiðveg á milli gamla Kaldárselsvegar og Smyrlabúðaleiðar skv. uppdrætti dags. 02.05.2008.%0DSkipulags og byggingarráð vísaði málinu til umsagnar hjá umhverfisnefnd/Staðardagskrá 21.
Afgreiðslu frestað.
-