Furðulegir fiskar á Flensborgarhöfn

Fréttir

Um 300 hafnfirsk dorgveiðibörn á aldrinum 6-12 ára munduðu veiðarfærin á Flensborgarhöfn í blíðviðrinu í dag og kepptust þar um að veiða furðulegasta fiskinn, stærsta fiskinn og flestu fiskana. Einn og sami fiskurinn reyndist bæði furðulegastur og stærstur. Vinningshafar fengu veiðistöng og bikar að gjöf fyrir aflann og árangurinn.

Um 300 hafnfirsk dorgveiðibörn á aldrinum 6-12 ára munduðu
veiðarfærin á Flensborgarhöfn í blíðviðrinu í dag og kepptust þar um að veiða
furðulegasta fiskinn, stærsta fiskinn og flestu fiskana. Einn og sami fiskurinn
reyndist bæði furðulegastur og stærstur. Vinningshafar fengu veiðistöng og
bikar að gjöf fyrir aflann og árangurinn.

Dorg_-5

Keppni sem á hug og
hjörtu margra Hafnfirðinga

Þessi árlega dorgveiðikeppni leikjanámskeiðanna í
Hafnarfirði, sem jafnframt er opin öllum hafnfirskum börnum á aldrinum 6-12
ára, er ein fjölmennasta dorgveiðikeppni landsins. Þátttakendur telja á
hundruðum ár hvert og hefur keppnin náð að stimpla sig inn í hug og hjörtu bæði
barna og foreldra og forráðamanna sem oft á tíðum fylgjast spenntir með á
hafnarbakkanum. Þrjú ungmenni fengu verðlaun í ár. Jóel Ingi Ragnarsson vann
bæði keppnina um Furðufiskinn og stærsta fiskinn fyrir einn og sama fiskinn. Um
var að ræða rauðmaga sem reyndist 436gr. Þær Aldís Von Árnadóttir og Oddvör
Skorastein Sigurðardóttir urðu svo sameiginlegir sigurvegarar um flestu
fiskana.

Í um 30 ár hefur Hafnarfjarðarbær staðið fyrir þessari
dorgveiðikeppni. Leiðbeinendur sumarfrístundar ásamt starfsmönnum úr
vinnuskólanum voru með öfluga gæslu á meðan á dorgveiðikeppni stóð auk þess sem
Siglingaklúbburinn Þytur var með björgunarbát siglandi um svæðið.

Ábendingagátt