Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Hér er að finna upplýsingar um úrræði fyrir börn og fjölskyldur á vegum Hafnarfjarðarbæjar
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar veitti í upphafi vikunnar fyrsta byggingarleyfið til framkvæmda í Hamranesi. Þetta fyrsta leyfi markar upphafið að uppbyggingu Hamraneshverfis. Í Hamranesi er gert ráð fyrir grunnskóla og tveimur leikskólum auk hjúkrunarheimilis.
Uppbygging að hefjast á annað þúsund íbúðum í hverfinu
Byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar veitti í upphafi vikunnar fyrsta byggingarleyfið til framkvæmda í Hamranesi, nýjasta íbúðarhúsahverfi Hafnarfjarðar. Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. (BYGG) sótti í desember 2020 um leyfi fyrir 4. hæða fjölbýlishúsi á lóðinni að Hringhamri 1 en til stendur að reisa þar hús með 24 íbúðum hannað af Guðmundi Gunnlaugssyni arkitekt. Þetta fyrsta leyfi markar upphafið að uppbyggingu Hamraneshverfis. Í Hamranesi er gert ráð fyrir grunnskóla og tveimur leikskólum auk búsetuúrræðis fyrir eldri borgara.
Fyrsta skóflustungan var tekin í Hamranesi sl. mánudag. Hreinn Ólafur Davíðsson hjá BYGG tók fyrstu skóflustunguna.
BYGG mun reisa fjölbýlishús með 24 íbúðum að Hringhamri 1 í Hamranesi. Fyrsta framkvæmdaleyfið var veitt í upphafi vikunnar.
25 hektara nýbyggingarsvæði
Hamranesið er um 25 hektara nýbyggingarsvæði sem rísa mun við hlið Skarðshlíðarhverfis. Búið er að úthluta til verktaka sex lóðum með alls 148 íbúðum. Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf. eru þegar farnir af stað með framkvæmdir á tveimur lóðum; við Hringhamar 1 og Nónhamar 4 þar sem áformað er að byggja 12 íbúðir auk þess sem búið er að samþykkja byggingaráform við Nónhamar 6. Búast má við aðaluppdráttum frá fleiri verktökum á næstu vikum. Bjarg íbúðafélag, sem er með þrjár lóðir í Hamranesinu, er þessa dagana að vinna deiliskipulag fyrir 148 íbúðir á lóðunum og að hönnun íbúðanna. Skipulagsvinna, gatnagerð og innviðauppbygging hefur verið í fullum gangi í Hamranesi síðustu vikur og mánuði og allt kapp lagt á að hraða uppbyggingu á hverfinu til að mæta eftirspurn og áhuga eftir hvorutveggja íbúðum og lóðum á svæðinu. Gatnagerð er nú lokið í kringum verktakareiti og í kringum Bjarg en búast má við að annarri gatnagerð ljúki í haust. Þá er búið að úthluta í Hamraneshverfi þróunarreitum með a.m.k. 1022 íbúðum og geta lóðarhafar farið í deiliskipulagsvinnu á sínum reitum. Búast má við að deiliskipulagsvinnan taki allt að 6 mánuði áður en hægt verður að skila inn aðaluppdrætti og gefa út byggingarleyfi.
,,Það er afar ánægjulegt hve eftirspurnin hefur verið mikil eftir lóðum á svæðinu og að finna þann mikla hug sem er í byggingaraðilum“, segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri. „Nú eru lóðir í Skarðshlíð uppseldar og þá tekur uppbygging við í Hamranesinu. Flutningur raflína yfir hverfinu og framkvæmdir við Ásvallabraut hafa þar vitaskuld mikið að segja. Nokkur svæði eiga enn eftir að koma til úthlutunar á þróunarreitum í Hamranesinu og hafinn er undirbúningur skipulagsvinnu á næstu nýbyggingarsvæðum bæjarins í Áslandi 4 og 5. Framundan er því gríðarleg uppbygging íbúðarhúsnæðis í bænum, á umræddum nýbyggingarsvæðum, við Hraun-Vestur, á hafnarsvæðinu og víðar. Fjölbreytnin mun ráða ríkjum á allra næstu árum þegar kemur að nýjum íbúðamöguleikum í Hafnarfirði.“
Uppbygging er mikil þessa dagana í Skarðshlíðarhverfi og við gatnagerð í Hamranesi. Uppbygging í Hamranesi fór af stað í vikunni eftir að fyrsta byggingarleyfið var veitt.
Alls voru 524 nýjar íbúðir fullbúnar í Hafnarfirði í fyrra. Þær bættust í hóp 11 þúsund íbúða í bæjarfélaginu. Nýjum…
FH, Hafnarfjarðarbær og Íþróttabandalag Hafnarfjarðar (ÍBH) hafa tekið höndum saman og bjóða frá 15. janúar fótboltaæfingar fyrir börn í 1.-10.…
Tafir hafa orðið á sorphirðu nú á nýju ári. Ljóst er að tunnurnar verða tæmdar viku á eftir áætlun. Unnið…
Algjörar skvísur verður sú fimmtánda í haustsýningarröð Hafnarborgar. Verkefnið hefur það að markmiði að gefa breiðu sviði sýningarstjóra kost á…
Alls sátu 100 foreldrar PMTO-foreldrafærninámskeið hjá Hafnarfjarðarbæ í fyrra. Foreldrarnir fá kennslu og eru þjálfaðir í styðjandi leiðum í uppeldishlutverki…
Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Valdimar Víðisson, er með opna viðtalstíma alla þriðjudaga frá kl. 9:30 – 11:30. Viðtalstímar eru bókaðir í…
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki úr húsverndarsjóði Hafnarfjarðar. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að varðveislu og viðhaldi eldri húsa…
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna, viðburða og samstarfssamninga á sviði menningar og lista í…
Hafnarfjarðarbær mun á síðasta vetrardag, miðvikudaginn 23. apríl, útnefna bæjarlistamann Hafnarfjarðar fyrir árið 2025. Óskað er eftir umsóknum eða rökstuddum…
Hafnarfjarðarbær hefur svo gott sem lokið við LED-ljósavæðingu götulýsingar bæjarfélagsins. 95% ljósastaura nota LED-lýsingu. Víða í stofnunum bæjarins hefur LED-lýsing…