Fyrsta skóflustungan við nýjan búsetukjarna

Fréttir

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna við Arnarhraun 50 var tekin í dag en þar stendur til að byggja sex íbúða kjarna ásamt sameiginlegu rými. Gengið var til samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll ehf. um bygginguna í árslok 2018 og eru verklok áætluð í mars 2020.

Fyrsta skóflustungan að nýjum búsetukjarna við Arnarhraun 50
var tekin í dag en þar stendur til að byggja sex íbúða kjarna ásamt
sameiginlegu rými. Gengið var til samninga við Framkvæmdafélagið Arnarhvoll
ehf. um bygginguna í árslok 2018 og eru verklok áætluð í mars 2020.

Um er að ræða sex íbúða sérbýli með fullu aðgengi fyrir
fatlaða og eitt sérbýli fyrir starfsfólk. Fjölgun búsetukjarna er liður í
áætlun Hafnarfjarðarbæjar um fjölgun heimila fyrir fatlað fólk. Framkvæmdir á
staðnum munu nú hefjast og er ráðgert að eftir rétt um ár muni íbúar geta
flutt inn í ný híbýli að Arnarhrauni. Þegar hefur þremur íbúðum af sex verið
úthlutað. Væntanlegir íbúar mættu í dag og tóku fyrstu skóflustunguna ásamt bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar, Rósu Guðbjartsdóttur, Valdimari Víðissyni formanni fjölskylduráðs, verktaka og Rannveigu Einarsdóttur sviðsstjóra fjölskylduþjónustu.  

Ábendingagátt