Fyrsta vinnustofan af fjórum um lýðræðisþátttöku
Fyrsta vinnustofan af fjórum um lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna verður haldin í Nýsköpunarsetrinu næsta laugardag.
Vinnustofa sem eflir lýðræðisvitundina
Á annan tug hafa þegar skráð sig á fyrstu vinnustofuna um lýðræðisþátttöku íbúa af erlendum uppruna. Búist er við enn fleirum, enda mörg áhugasöm.
Vinnustofan er haldin laugardaginn næsta 7. febrúar milli kl. 10-17 í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn. Þar verður fjallað um réttindi hvers og eins, hlutverk sveitarstjórna, sveitarstjórnarkosningar og hvernig hver og einn getur tekið þátt í lýðræðinu á Íslandi. Vinnustofan er gjaldfrjáls.
„Við viljum efla lýðræðislega þátttöku innflytjenda í Hafnarfirði. Þetta er stór hópur sem getur haft áhrif þekki hann réttindi sín og veit hvernig samfélagið virkar,“ segir Hildur Ýr Jónsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ. Magnea Marinósdóttir stjórnmálafræðingur stýrir för á vinnustofunni.
„Laugardagurinn næsti er fyrsti dagurinn. En við kennum fjórum sinnum,“ segir Hildur og hvetur Hafnfirðinga til að hnippa í nágranna af erlendum uppruna og láta vita. „Samfélög virka best þegar við tökum öll þátt.“
Gott er að skrá sig til leiks hér. Öll velkomin.
Vinnustofur:
- Vinnustofa I: Laugardagur 7. febrúar frá kl. 10-17
- Vinnustofa II: Þriðjudagur og miðvikudagur 10. og 11. febrúar frá kl. 19:30 til 21:30
- Vinnustofa III: Sunnudagur 15. febrúar frá kl. 10-17
- Vinnustofa IV: Þriðjudagur og miðvikudagur 10. og 11. mars frá kl. 19:30-21:30
- Herferðarvinnustofa: Sunnudagur 22. mars 13-16 – skiltagerð
Verkefnið er þátttakendum að kostnaðarlausu og er styrkt af Félag- og húsnæðismálaráðuneytinu í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ.