Fyrstu farþegaskipin komin til Hafnarfjarðarhafnar

Fréttir

Líkt og víða þá er lífið á Hafnarfjarðarhöfn smám saman að færast aftur í eðlilegt horf. Fyrstu skemmtiferðaskip sumarsins eru farin að leggjast að bryggju að nýju. Í síðustu viku kom fyrsta skip sumarsins, Le Dumont-d´Urville frá Ponant skipaútgerðinni í Frakklandi til Hafnarfjarðar, en þetta var jafnframt fyrsta skipið sem kemur til Íslands á þessu ári. Von er á 15 skipakomum í sumar, allt fram í miðjan september.

Ponant skipin hafa heimahöfn í Hafnarfirði milli þess að þau sigla í viku umhverfis landið. Þetta skip er nýsmíði, um 10 þús. brt, tekur tæplega 200 farþega og í áhöfn eru um 130 manns. Í þessari fyrstu ferð voru um 150 farþegar, en góðar bókanir eru í ferðir skipsins í sumar. Allir farþegar koma með flugi erlendis frá en farþegaskipti fara fram í Hafnarfirði á miðvikudögum. Skipið kemur að jafnaði til hafnar á þriðjudagsmorgnum og leggur í nýja hringferð umhverfis landið á miðvikudagskvöldum.

Mynd: Guðmundur Fylkisson 

Ábendingagátt