Kynntu þér göngu- og hjólaleiðir, fjölbreytt íþróttastarf eða sundlaugar bæjarins en frítt er í sund fyrir 18 ára og yngri.
Börn og ungmenni hafa aðgang að góðri menntun, frístund og fjölbreyttum tómstundum.
Praktískar upplýsingar um strætó, sorphirðu, götuhreinsanir, umferð, dýrahald og fleira.
Hafnarfjarðarbær reynir að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi allra íbúa. Kynntu þér hvaða aðstoð er í boði.
Finndu tengilið farsældar fyrir barnið þitt og úrræðalista skóla og Hafnarfjarðarbæjar.
Þjónustuverið sinnir margvíslegri þjónustu og upplýsingagjöf fyrir íbúa, fyrirtæki og ferðamenn í Hafnarfirði.
Í Hafnarfirði er menningarhúsið Bæjarbíó, ýmis söfn og reglulegir viðburðir á dagskrá.
Hægt er að gista á hótelum, gistiheimilum eða fjölskylduvænu tjaldsvæði.
Í Hafnarfirði eru margir möguleikar til að létta lundina með útivist og hreyfingu.
Skoðaðu hvaða spennandi viðburðir eru fram undan eða skráðu nýjan.
Hlæðu með álfum og víkingum í menningu bæjarins.
Frá hugmynd að húsi. Allar upplýsingar sem tengjast því að byggja mannvirki.
Skoðaðu teikningar af húsum, lausar lóðir, vatns- eða hitafráveitur, staðsetningar grenndargáma, bekkja, leikvalla og margt fleira.
Upplýsingar um allar lóðir sem eru lausar til úthlutunar.
Kynntu þér hvaða skipulagsmál eru á döfinni í bænum.
Leitaðu eftir starfsfólki eða starfi hjá bænum.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar er skipuð 11 bæjarfulltrúum. Bæjarstjórnarfundir eru öllum opnir og sendir út í beinni útsendingu.
Skoðaðu fundargerðir allra ráða og nefnda bæjarins.
Skoðaðu opið bókhald bæjarins, húsnæðisstefnu og gögn um vefinn á einfaldan og myndrænan máta.
Hér má finna gjaldskrár bæjarins fyrir margs konar þjónustur sem boðið er upp á.
Kynntu þér stjórnskipulag Hafnarfjarðar, ráð og nefndir málaflokka og stefnur þeirra.
Vertu með á nótunum og fylgstu með fréttum, tilkynningum og auglýsingum um starfsemi bæjarins.
Opnað var fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun íbúðahúsalóða í 3. áfanga Skarðshlíðarhverfis um miðjan mars síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 22. apríl 2019 og var fyrstu lóðunum úthlutað á fundi bæjarstjórnar í dag. Uppbygging í hverfi er þegar farin af stað.
Opnað var fyrir umsóknir í fyrstu úthlutun íbúðahúsalóða í 3. áfanga Skarðshlíðarhverfis um miðjan mars síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 22. apríl 2019 og var fyrstu lóðunum úthlutað á fundi bæjarstjórnar í gær. Uppbygging í hverfi er þegar farin af stað. Öllum lóðum í 1. áfanga hefur verið úthlutað, nokkrum fjölda í 2. áfanga og mikill áhugi fyrir lóðum í þriðja og síðasta áfanganum.
Allar upplýsingar um lausar lausir í Skarðshlíð, stærð, útlit og verð er að finna á upplýsingasíðu um Skarðshlíðarhverfi: www.skardshlidin.is
Skarðshlíðin er nýtt og fjölskylduvænt íbúðahverfi í Hafnarfirði sem stendur á flata og í brekku sunnan og vestan í Ásfjalli. Við hönnun og skipulag hverfisins hefur áhersla verið lögð á heildræna sýn, heildrænar götumyndir, vistvænt skipulag, sjálfbærni, grænt yfirbragð og fjölbreytt útisvæði. Stutt er í alla þjónustu, möguleikar á að starfa í heimabyggð miklir og mikil nálægð við uppland Hafnarfjarðar og fallegar náttúruperlur.
Í Skarðshlíðarhverfi rís blönduð byggð einbýlishúsa, parhúsa, raðhúsa og lágreistra fjölbýlishúsa. Lóðir fyrir fjöleignarhús standa á flata nálægt skólanum en byggðin greinist svo upp Skarðshlíðarbrekkuna með raðhúsum og parhúsum neðst og einbýlishúsum ofar þar sem landhalli er meiri. Hverfið er til þess fallið að taka á móti öllum, hvort sem um er að ræða pör, litlar eða stórar fjölskyldur eða eldri einstaklinga sem vilja minnka við sig en samt komast í nýtt húsnæði. Hverfisskólinn, Skarðshlíðarskóli , hefur þegar tekið til starfa og mun leikskóli taka til starfa haustið 2019. Uppbygging hverfis skiptist í þrjá áfanga:
Samgöngur milli hverfa eru nokkuð greiðar og sífellt að verða greiðari. Ný mislæg gatnamót við Krýsuvíkurveg eru komin í notkun og tvöföldun Reykjanesbrautar innan Hafnarfjarðar í sjónmáli. Ásvallabraut mun svo greiða enn frekar fyrir umferð til og frá hverfinu eins og sjá má á mynd. Við hönnun og skipulag hverfisins er áhersla lögð á heildrænar götumyndir og vistvænt skipulag og eru gönguleiðir í skóla og íþróttaaðstöðu öruggar og góðar. Lega Hamraneslínu í gegnum hverfið hefur staðið uppbyggingu fyrir þrifum. Nú er færsla línunnar í sjónmáli og er gert ráð fyrir að framkvæmdum verði að fullu lokið fyrir lok sumars 2019.
Ítarlegar upplýsingar s.s. deiliskipulagsuppdrátt, greinargerð og skipulagsskilmála, almenna úthlutunarskilmála, hæða- og mæliblöð er að finna HÉR
Yfir fimmtíu þúsund hafa nú stigið inn á Thorsplan og notið Jólaþorpsins með okkur. Nú hefst sjötta og síðasta helgi…
Félagsskapur Karla í skúrnum hefur vaxið og dafnað allt frá því hann var stofnaður 2018 – fyrst hér í Hafnarfirði.…
Stór dagur var hjá Miðstöð vinnu og virkni í gær. Þórdís Rúriksdóttir, forstöðumaður Miðstöðvarinnar, segir að þótt dagurinn hafi verið…
Sundlaugamenning Íslands hefur verið formlega skráð sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns hjá UNESCO.
Fimmta Jólaþorpshelgin verður hlaðin kræsingum og gleði. Fjöldi skemmtiatriða og svo margt sem má upplifa í firðinum okkar fagra.
Tvöföld Reykjanesbraut milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns opnaði formlega síðdegis í gær. Bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar fagnaði því í Haukaheimilinu um leið og…
Tólf starfsmenn hlutu 25 ára starfsaldursviðurkenningu í gærdag. Samanlagður starfsaldur þessa flotta hóps er 300 ár. Aðeins konur prýddu fagran…
„Til hamingju með 25 ára afmælið,“ sagði Valdimar Víðisson bæjarstjóri þegar hann flutti ávarp á fræðsludegi og afmælisfögnuðu PMTO hugmyndafræðinnar…
All verk ehf. byggir búsetuskjarna með sólarhringsþjónustu við Smyrlahraun 41A. Húsnæðið verður tilbúið um mitt ár 2027.
Nú skína jólaljósin skært. Jólabærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga og vini Hafnarfjarðar til þess að senda ábendingu um þau hús, þær…