Gæsluvöllur í Staðarhvammi opinn frá 8. júlí – 5. ágúst

Fréttir

Í sumar er starfræktur gæsluvöllur/róló við leikskólann Hvamm að Staðarhvammi 23. Gæsluvöllurinn er fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára (fædd 2014-2018).

Í
sumar er starfræktur gæsluvöllur/róló við leikskólann Hvamm að Staðarhvammi
23. Gæsluvöllurinn verður opinn frá kl. 9 – 12 og 13 – 16 alla virka daga (lokað
í hádeginu) frá 8. júlí – 5. ágúst. Gæsluvöllurinn er fyrir börn á aldrinum 2 –
6 ára (fædd 2014-2018).

Í
boði eru tvennskonar klippikort:

  • 5 skipta klippikort – 1.200.- kr.
  • 10 skipta klippikort – 2.200.- kr.

Hægt
er að kaupa klippikortin á Mínum síðum undir umsóknir – sumarstarf sem
leiðir áhugasama kaupendur áfram á réttan stað:

  • Velja Hafnarfjarðarkaupstaður undir
    “Veldu sveitarfélag”
  • Slá inn gæsluvöllur eða róló í heiti
    námskeiðs. Í boði eru tvö “námskeið” fyrir róló, annarsvegar fimm skipti og
    hins vegar tíu skipti. Viðeigandi “námskeið” er valið og gengið frá greiðslu

Aðeins
hægt að ganga frá greiðslu rafrænt á þennan máta.
Forráðamenn eru beðnir um að koma
með kvittun á staðinn til þess að fá kort afhent. Umsjónarmaður námskeiðsins er
Bergljót Vala Sveinsdóttir í síma: 664-7160

Almennar
upplýsingar til foreldra

Gæsluvöllurinn
er einungis ætlaður til útileikja og getur ekki komið í stað leikskóla. Því er
ráðlagt að hafa ung börn EKKI lengur en 1,5klst í
senn á dag. Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta
notað salernið sjálf. Einnig þurfa börnin að vera klædd eftir veðri.

Hlökkum
til að sjá ykkur!

Ábendingagátt