Gæsluvöllur lokaður ef loftgæði eru ekki góð
Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu mælast nú víða óholl þannig að foreldrar og forsjáraðilar eru hvattir til að fylgjast vel með á vefnum loftgaedi.is
Ef loftgæðin eru græn er opið annars lokað
Vakin er sérstök athygli á því að gæsluvöllur er lokaður ef loftgæði eru ekki góð. Loftgæði á höfuðborgarsvæðinu mælast nú víða óholl þannig að foreldrar og forsjáraðilar eru hvattir til að fylgjast vel með.
Hægt er að fylgjast með stöðu loftgæða á vefnum: www.loftgaedi.is
————————
Gæsluvöllur/róló á Hvammi í sumar
Í sumar verður starfræktur gæsluvöllur/róló við leikskólann Hvamm, Staðarhvammi 23. Gæsluvöllurinn verður opinn frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00, vikurnar 21. júlí – 25. júlí og 28. júlí – 1. ágúst. Gæsluvöllurinn er fyrir börn á aldrinum 3-5 ára (fædd 2022-2020). Hægt er að skrá sig í gegnum Völu og kaupa 5 eða 10 skipta kort. Eitt skipti af korti jafngildir vistun fyrir eða eftir hádegi (1 skipti af korti = að hámarki 3 klst. vistun).
Almennar upplýsingar til foreldra
- Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri.
- Gæsluvöllurinn er einungis ætlaður til útileikja og getur ekki komið í stað leikskóla.
- Ráðlagt er að hafa ung börn ekki lengur en 1,5 klst. í senn á dag.
- Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta notað salernið sjálf.
- Gott er að hafa meðferðis vatnsbrúsa og létta hressingu.
Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að fylla út eftirfarandi spurningalista og merkja við fyrirhugaða mætingu hér.
Umsjónarstýrur námskeiðsins:
Júlíana Dögg, s. 896-2673
Berglind, s. 664-5606
Hlökkum til að sjá ykkur!