Gæsluvöllur opinn frá 10. júlí – 7. ágúst að Staðarhvammi
Í sumar verður starfræktur Gæsluvöllur eða róló, staðsettur við leikskólann Hvamm að Staðarhvammi 23, frá 10. júlí – 7. ágúst fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára (fædd 2013-2017). Opnunartími er frá kl. 9 – 12 og frá kl. 13 – 16.
Í sumar verður starfræktur Gæsluvöllur eða róló,
staðsettur við leikskólann Hvamm að Staðarhvammi 23, frá 10. júlí – 7.
ágúst fyrir börn á aldrinum 2 – 6 ára (fædd 2013-2017). Opnunartími er frá kl. 9 – 12 og frá kl. 13 – 16 (lokað í hádeginu).
Í boði eru tvennskonar klippikort á Gæsluvöllinn:
- 5 skipta klippikort – 1.200 kr.
- 10 skipta klippikort – 2.200 kr.
Hægt er að kaupa klippikortin á MÍNUM SÍÐUM undir umsóknir – grunnskólar
– skráning á sumarnámskeið. Nota þarf kennitölu barnsins. Einungis er hægt að ganga frá greiðslu á MÍNUM SÍÐUM. Forráðamenn eru beðnir um að koma með kvittun á staðinn.
Upplýsingar eru í síma: 664-5686 eða á www.fristund.is. Umsjónarmaður námskeiðsins er Salka Sigurðardóttir en hún er útskrifuð með
Bsc próf í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Almennar upplýsingar til foreldra
Gæsluvöllurinn er einungis ætlaður til útileikja og
getur ekki komið í stað leikskóla. Því er ráðlagt að hafa ung börn EKKI lengur
en einn og hálfan tíma í senn á dag. Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta notað
salernið sjálf. Öll börn þurfa að vera klædd eftir veðri.
Hlökkum til að sjá ykkur!