Gæsluvöllur/róló á Hvammi í sumar

Barnvænt sveitarfélag Fréttir

Í sumar verður starfræktur gæsluvöllur/róló við leikskólann Hvamm, Staðarhvammi 23. Gæsluvöllurinn verður opinn frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00, vikurnar 21. júlí – 25. júlí og 28. júlí – 1. ágúst.

Gæsluvöllur/róló á Hvammi í sumar

Í sumar verður starfræktur gæsluvöllur/róló við leikskólann Hvamm, Staðarhvammi 23. Gæsluvöllurinn verður opinn frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00, vikurnar 21. júlí – 25. júlí og 28. júlí – 1. ágúst. Gæsluvöllurinn er fyrir börn á aldrinum 3-5 ára (fædd 2022-2020).  Hægt er að skrá sig í gegnum Völu og kaupa 5 eða 10 skipta kort. Eitt skipti af korti jafngildir vistun fyrir eða eftir hádegi (1 skipti af korti = að hámarki 3 klst. vistun).

Almennar upplýsingar til foreldra

  • Börnin þurfa að koma klædd eftir veðri.
  • Gæsluvöllurinn er einungis ætlaður til útileikja og getur ekki komið í stað leikskóla.
  • Ráðlagt er að hafa ung börn ekki lengur en 1,5 klst. í senn á dag.
  • Ekki eru aðstæður til að skipta á börnum og því verða þau að geta notað salernið sjálf.
  • Gott er að hafa meðferðis vatnsbrúsa og létta hressingu.

Foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að fylla út eftirfarandi spurningalista og merkja við fyrirhugaða mætingu hér.

Umsjónarstýrur námskeiðsins:

Júlíana Dögg, s. 896-2673

Berglind, s. 664-5606

Hlökkum til að sjá ykkur!

Ábendingagátt